20.04.1927
Efri deild: 54. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 2878 í B-deild Alþingistíðinda. (1994)
20. mál, Landsbanki Íslands
Frsm. meiri hl. (Björn Kristjánsson):
Eins og sjest á nál. meiri hl., þá hefir nefndin gert allmargar breytingar við frv. þetta. Er nefndin öll sammála um margar þeirra, einkum aftur að 4. kafla. Úr því fara að skiftast leiðir.
Jeg hugsa mjer ekki að hafa neinn formála fyrir tillögum meiri hl. yfirleitt, enda er engin ástæða til þess, þar sem nál. meiri hl. er það ítarlegt, að hv. þm. eiga að sjá, hvað fyrir meiri hl. vakir í meginatriðum. Það er að tryggja bankann sem best fjárhagslega og eftirlit hans, og að reyna, eftir því sem unt er, að forða honum frá því að verða fyrir of hvössum flokkspólitískum áhrifum og klíkuskap, þó örðugt muni reynast að forða honum frá því með öllu, eins og nú er komið. Skal jeg svo ekki tefja tímann með lengri formála, en snúa mjer beint að brtt. meiri hl. á þskj. 362.
1. brtt. er við 5. gr. frv., um stofnfje bankans. Þessi till. var ein af þeim örðugustu, sem nefndin átti við, vegna þess að það vantaði allan grundvöll undir það, hve mikið stofnfje seðlabankans ætti að vera. Jeg stakk upp á 7 milj. kr., en annar upp á 6 milj., en niðurstaða nefndarinnar varð 5 milj., með tilliti til brjefs, sem bankastjórnin skrifaði nefndinni. Niðurstaðan varð því sú, að nefndin sætti sig við þetta, með það fyrir augum, að á síðara stigi málsins yrði upphæðinni ef til vill breytt, ef nefnd sú, sem milliþinganefndin gerir ráð fyrir, að skipuð verði til þess að meta hag bankans, legði það til. Upphæð þessi er því aðeins áætlunarupphæð, sem breyta má, ef það kemur í ljós, að bankinn þarf á meira fje að halda.
Þá er 2. brtt., við 7. gr. frv. Eftir orðunum er þetta aðeins formbreyting, aðeins til þess að samræma þessi lög við erlend bankalög. Eftir þessu fær sá maður, sem kemur í bankann með 15 kr. í seðlum, en þar er ekki til minna en 10 kr. gullmynt, 10 kr. í gulli, en 5 kr. í skiftimynt.
Þá er það 3. brtt. a, við 8. gr. frv. Hún hefir langtum meiri þýðingu. Þar er lagt til, að í stað 1/3 af seðlamagni bankans komi 40%. Þarf um þessa till. ekki annað en að vísa til nál. meiri hl. um ástæður nefndarinnar fyrir till. Er það mjög áríðandi fyrir bankann um álit hans út á við, sem er svo einangraður frá umheiminum, að hafa sæmilegan gullforða til þess að geta leyst til sín seðlana og aukið með því traust á landinu og sjálfum sjer erlendis. Það hefir verið tekinn upp í nál. listi yfir gullforða nokkurra Evrópuseðlabanka eins og hann var fyrir ófriðinn. Af þessum lista sjest það, að gullforðinn hefir verið hæstur 50%, en lægstur 33%, en þá 33% í málmi að fullu eða gulli. Að þessari till. stendur öll nefndin.
Þá er það b-liður sömu brtt., við sömu gr. frv., um að síðasta málsgr. falli niður; m. ö. o., það á eftir frvgr. að leyfa að gefa út seðla fram yfir það, sem búist er við, að verði, ef tímabil kemur, er nauðsynlegt er að hafa mikinn gjaldmiðil. Þessi regla er aðeins á Spáni og stafar af því, hversu ljelegur fjárhagurinn er þar. Önnur lönd, sem samið hafa lög um gullforða sinn, hafa ekki tekið hana upp, t. d. þýski ríkisbankinn. Hygg jeg, að ákvæði þetta heldur skaði en bæti álit bankans út á við. Það er öðru máli að gegna um Spán en Ísland í þessum efnum, þar eð Spánn er stórt land með marga banka, og þarf því ekki annað en að fara í næsta banka til að fá gull, ef með þarf, og getur fengið það samdægurs. Og þegar hann hefir dregið inn seðlana, getur hann skilað gullinu á einum degi, eða gefið það út. Þetta getur komið að liði þar, en ekki hjer hjá okkur, sem erum í 300 mílna fjarlægð frá öðrum bönkum, auk þess sem það kostar 1/2–3/4% að fá gull hingað frá útlöndum. Nefndin leggur því til, að þessi síðasta málsgr. 8. gr. frv. verði feld niður, því fremur sem nefndin leggur það til, að gullforðinn yfirleitt hækki.
í 4. brtt. a, við 12. gr., er það lagt til, að fyrri málsgr. frvgr. falli burtu. Er nefndin sammála um þessa brtt. Telur nefndin, að rjett sje að fylgja þeirri reglu, sem gilt hefir undanfarið, að ef upphefja þyrfti innlausn seðla fyrir gull, þá gæfi ríkisstjórnin út bráðabirgðalög og bæri þannig í hvert skifti ábyrgð á þeirri ráðstöfun gagnvart þinginu. En af þessari brtt. leiðir, að það verður í næstu málsgr. á eftir að falla í burtu orðið „Landsbankanefndin“, en „ráðherra“ að koma í staðinn og orðið „þá“.
Þá kem jeg að brtt. við 14. gr. Eins og menn vita, eru tvennskonar ávísanir notaðar í viðskiftum hjer, tjekkar og ávísanir. Tjekkar hafa afsagnarrjett og má innheimta þá eins og víxla. Tjekkar hafa engan greiðslufrest, en verða að borgast við sýningu. Almennar ávísanir hafa hinsvegar engan víxilrjett. Því er lagt til, að orðinu tjekkar sje smeygt inn á eftir víxlar, svo það sjáist, að hjer er um tvennskonar ávísanir að ræða. Þá er ennfremur lagt til, að orðið „ávísanir“ í síðari málsgrein 2. liðs falli burtu. Það er auðvitað, að ávísanir getur seðlabankinn ekki keypt nema þær hafi víxilrjett, en það hafa þær t. d. í Noregi, hjá Noregsbanka. Þá er ennfremur lagt til, að aftan við þessa liði komi heimild til þess, að þær ávísanir, sem seðlabankinn kaupir, fái víxilrjett. Þá getur bankinn keypt þessar ávísanir, annars ekki. Þetta er hagræði bæði bankanum og viðskiftamönnum bankans. Það getur hæglega komið fyrir, að menn gleymi tjekkbókum sínum heima, og standa menn þá uppi peningalausir, þótt þeir eigi nóg fje inni í bankanum. Bankinn getur ekki tekið ávísunina gilda nema hún hafi víxilrjett. Þá kemur e-liður, að aftan við þennan lið komi nýr 3. liður, svo hljóðandi: „Að kaupa víxla, sem greiðast eiga innanlands, með alt að 12 mánaða gjaldfresti, gegn tryggu handveði eða fasteignarveði“. Þetta er tilfærsla úr 4. lið, en þar er talað um að veita lán gegn veði. Í fljótu bragði kann það að virðast sama, hvort lán er veitt út á fasteign til eins árs eða víxill keyptur með fasteignarveði. En í reyndinni er þetta ekki sama. Þegar fasteignalán eru veitt, virða menn ekki gjalddaga, en víxilgjalddagana virða menn betur. Þetta er mín reynsla í þessu efni. Þá er næsta breyting, að 3. liður verði 4. liður, og leiðir það af sjálfu sjer. Þá kemur g-liður. Það er seinni partur af 4. lið í frv. Þar er hert á því, að þessi reikningslán má ekki veita nema gegn handveði eða fasteignarveði. Seðlabankinn þarf að vera sem tryggastur, en það er vitanlegt, að þegar svona tryggilega er um hnútana búið, þá verður þessi deild að hafa lægri vexti en sparisjóðurinn; annars mundi enginn taka lán hjá seðlabankanum. Því mundi bankinn verða að hafa tvennskonar vexti.
Þá kemur h-liðurinn, að lána út á verslunarvörur, sem ekki er hætta á, að skemmist á stuttum tíma, o. s. frv. Það er venja í öllum seðlabankalögum að heimila þetta. Þá er að síðustu lagt til, að 6. liðurinn falli burt, og virðist það sjálfsagt. Þessar brtt. hefir öll nefndin verið sammála um, og bið jeg hv. nefndarmenn að segja til, ef jeg skýri ekki rjett frá.
Þá kem jeg að 15. gr. Við leggjum til, að síðari málsgrein þeirrar greinar falli burt. Það leiðir af því, sem Alþingi hefir þegar gert ákvæði um ábyrgðir fyrir Landsbankann, að málsgrein þessi falli niður. Þá er brtt. við 19. gr. Það er aðeins orðabreyting, að fyrir „formanni bankaráðsins“ komi: „bankaráðinu“. Þessu ættu menn að geta verið samþykkir, hvernig sem menn að öðru leyti líta á bankaráðið og nefndina. Þá er brtt. við 21. gr. Það er bara orðabreyting, sem leiðir af því, að meiri hl. nefndarinnar leggur til, að 15 manna landsbankanefndin falli burt. Þá er brtt. við 22. gr., að aftan við greinina bætist ný málsgrein: Ráðherra úrskurðar reikninga bankans. Í frv. er þessari 15 manna nefnd falið að úrskurða reikningana, en af því að hjer er lagt til, að hún falli burt, þá verður þetta ákvæði að koma í staðinn. Þá er brtt. við 23. gr. Það er aðeins rýmkun. Engin ástæða virðist vera til þess að skylda bankann til að greiða kostnað við seðlagerð og bankabyggingar á 5 árum. Því er hjer lagt til, að hann megi skifta kostnaðinum af því á 10 ár. Allir nefndarmenn voru sammála um þetta. Þá er brtt. við 24. gr. Hjer er lagt til, að varasjóður megi verða fjórar miljónir, í staðinn fyrir þrjár miljónir, til frekara öryggis. Allir nefndarmenn voru sammála um þetta. Þá er brtt. við 26. gr. Eftir þeirri grein á seðlabankinn að eiga fjárhæð, sem nemi 1/3 af varasjóði bankans, í: 1. auðseldum erlendum ríkisskuldabrjefum, 2. víxlum, er greiðast erlendis, eða 3. kröfum á erlenda banka, er verða greiddar innan 6 mánaða, að frádregnum samskonar skuldum bankans. Meiri hlutanum virtist ekki ástæða til þess að blanda víxlum með stuttum eða löngum gjalddaga inn í þessa tryggingu. Varasjóður bankans hreyfist aðeins einu sinni á ári, og ætti því að nægja að nota verðbrjef eða innieign erlendis til þessa tryggingarfyrirkomulags. Þá er brtt. við 28. gr. Þar er alveg sama tilfellið og með seðlabankann. Þar er ætlast til, að orðið „tjekkar“ komi á eftir víxlum.
Þá er 29. gr. Svo er að sjá, sem ráð sje gert fyrir því í frv., að bankinn geti í raun og veru fyrst í stað sneitt hjá því að hafa verðbrjef. Jeg held, að þetta stafi af vangá. Bankinn mun nú þegar eiga fúlgu í verðbrjefum. Samkvæmt reikningi bankans 31. des. 1925 átti bankinn í verðbrjefum sem svarar 12% af sparisjóðsfje sínu, og mun hafa aukið þá verðbrjefaeign sína 1926 að miklum mun. Það ætti því að vera óhætt að skylda bankann þegar í byrjun til þess að eiga 15% í verðbrjefum, og er ætlast til, að hann auki þá verðbrjefaeign sína smám saman upp í 30%.
Þá er jeg kominn að 33. gr. En þar kemur höfuðbreytingin, sem klýfur nefndina. Meiri hlutinn leggur til, að landsbankanefndin falli niður. Eins og sjest af 34. gr. frv., á þessi nefnd að vera skipuð 15 mönnum, kosnum af sameinuðu Alþingi. Hún á að vera æðsti „instans“ í málefnum bankans, kjósa bankaráðið og gera margt fleira, sem upp er talið í 41. gr. frv. Nú er það vitanlegt, að þegar flokkarnir í þinginu kjósa þessa nefnd, þá reyna þeir að setja í hana þá menn, sem þeir treysta sjer best til að ráða við. Meiri hluti nefndarinnar fær nú ekki sjeð, hvað unnið er við þetta fyrirkomulag. Hann fær ekki betur sjeð en að það sama þing, sem velur nefndina, geti eins valið bankaráðið án milligöngu slíkrar nefndar. Jeg fæ ekki sjeð gróðann af þessu fyrirkomulagi. Það verndar ekki, að inn í bankaráðið komi menn, sem standa fyrir utan hita og þunga stjórnmálanna, heldur þvert á móti. Jeg hirði ekki að tala mikið um þetta. Meiri hl. nefndarinnar skoðar þetta alt of mikið bákn. Auk þess á nefnd þessi að starfa kauplaust, en það er nú reynsla hjer á landi, að menn leggja miklu minni rækt við þau störf, sem þeir vinna kauplaust. Meiri hluti nefndarinnar hefir því lagt til að fella 34. gr. burt.
Þá kem jeg að 35. gr. Þeirri grein er breytt allmikið í ýmsum atriðum. Það er þá fyrst að telja, að ríkisstjórnin velur bankaráðsformann til 5 ára í senn. Hina bankaráðsmennina 4, sem skulu vera utanþingsmenn, eiga Ed. og Nd. að kjósa, sína 2 hvor, með hlutfallskosningu. Að þeir eru hafðir utan þings, er gert til að reyna að skapa ró og frið um bankann og til öryggis um það, að þeir sjeu sem minst snortnir af hinum pólitíska eldi í landinu. Flokkapólitík er hjer harðari en víða annarsstaðar, og er því nauðsynlegt að vernda bankann gegn henni. Með þessu móti verða bankaráðsmennirnir kosnir á sama hátt og gæslustjórarnir voru kosnir á sinni tíð. Þeir voru kosnir sinn af hvorri deild. Jeg þarf ekki að lýsa hjer reglunum um það, hvernig fer, þegar menn forfallast. Hjer er ennfremur ætlast til þess, að þetta bankaráð sje starfandi bankaráð og komi í bankann daglega og hafi eftirlit með öllu, er þar fer fram. Það eitt getur gert þá hæfa til að sjá um verk sitt og koma að verulegu gagni. Þá er brtt. um það að fella 36. gr. niður, og leiðir það af sjálfu sjer samkv. því, sem áður hefir verið lagt til. Þá er komið að 42. gr. Þar eru margar og miklar breytingar gerðar, og er næstum því hægara fyrir hv. þm. að lesa þær en skýra frá, hvað í þeim felst. Þær segja greinilega sjálfar frá því, hvað með þeim er meint. Í a-liðnum er talað um það, að bankaráðsmenn skuli hafa daglegt eftirlit í bankanum, þannig að formaður bankaráðsins skal framkvæma eftirlitið daglega, en hinir bankaráðsmennirnir að öllum jafnaði 2 í senn á víxl annanhvern dag ásamt formanninum. Svo er ákveðið, að bankaráðið skuli halda fundarbók, og í hana skal ritað hið helsta, sem gerist á fundum þess. Ef bankaráðsmaður er fjarverandi um stund, ber hann meðábyrgð á því, sem bankaráðið hefir ályktað í fjarveru hans, nema hann skrifi ágreiningsatriði um það í fundarbókina, þegar hann kemur aftur. Loks er ætlast til þess, að þessi fundarbók sje lögð fyrir fjárhagsnefndir Alþingis í hvert skifti, sem það kemur saman, svo þingið geti líka haft eftirlit með bankanum. Þetta ætti að veita þá tryggingu, sem unt er að fá, enda er þetta í samræmi við bankalöggjöf í Noregi. B-liðurinn við 42. gr. er orðabreyting, og í c-liðnum er lagt til, að nokkur orð í síðustu málsgr. 42. gr. falli burt.
Í athugasemdum aftan við nál. hefir verið skýrt, hvers vegna það er. Það er af því, að viðskiftin grípa svo hver inn í önnur og ekki verður sundurgreint milli hinna einstöku atvinnugreina með neinni áreiðanlegri vissu, og því ógerningur að leggja svo mikla og árangurslausa kvöð á bankann.
Þá kem jeg að 43. gr. Jeg verð að fara fljótt yfir, því að annars verður þetta svo langt, en geri ráð fyrir, að síðar muni ýmislegt skýrast, sem jeg kann að hafa of mikla fljótaskrift á. — Við liðinn a. verður sú breyting, að orðin „landsbankanefndinni eða“ falla burt. Það er eðlileg afleiðing af þeim breytingum á yfirstjórn bankans, sem við leggjum til. — Við lið e er bætt við verkefni, sem bankaráðinu beri að annast, sem sje ákveða, hversu hátt veð fjehirðar skuli setja. Það starf heyrði áður landsbankanefndinni til.
Um brtt. við k-lið verð jeg að fara frekari orðum en gert er í aths. við nál.
Eins og kunnugt er, fór fram rannsókn á Landsbankanum árið 1909 að tilhlutun Sveins Björnssonar núverandi sendiherra, Magnúsar Sigurðssonar bankastjóra, Magnúsar Arnbjarnarsonar lögfræðings, og þáverandi ráðherra. Get jeg þessa af því, að til skamms tíma hefir öðrum verið kent um þessa rannsókn, eða eignaður heiðurinn af.
Þegar rannsóknin fór fram, hafði bankinn starfað í 24 ár. Niðurstaða þeirrar rannsóknar leiddi í ljós, að alls reyndist tapið kr. 244595,43. Tap þetta var smámsaman strikað út á árunum 1910–1917. Þá mátti telja, að alt tapið af þessum gömlu lánum væri fram komið. — Eins og sjest af skýrslu bankastjóranna til Alþingis 1911, á þskj. 974, þá voru lánin sjaldnast útstrikuð nema við opinbert gjaldþrot, eða eftir að árangurslaust fjárnám hafði fram farið. Og þá voru engin lög til um nauðasamninga. Þau komu fyrst í gildi 1924.
Sjálfur fór jeg úr bankanum 1. okt. 1918.
Þá koma útstrikanirnar næstu 4 ár og verða þær þessar:
1918 ekkert
1919 ekkert
1920 ............. kr. 159,68
1921 ekkert
Og loks komu 4 árin 1922–1925.
Þá voru þær upphæðir strikaðar út,
sem hjer segir:
1922 kr. 1399673,31
1923 — 692825,61
1924 — 832786,38
1925 — 2589436,68
Samtals kr. 5514721,98
Nú veit nefndin ekkert um ástæðurnar fyrir því, að svona mikið fje hefir tapast, nje um það, hvað eftir kann að vera óútstrikað, þó hún geri ráð fyrir, að fullar ástæður hafi verið til þess. Nefndin hefir sem sagt ekki getað fengið neinar upplýsingar um það, hvers vegna svo mikil upphæð hefir tapast á svo stuttum tíma. Meiri hl. fjhn. treystist ekki til að segja neitt um það, en þykir hinsvegar rjett að setja þó nokkrar skorður við því, að lán sjeu útstrikuð án þess að verulegar ástæður sjeu fyrir hendi, eða tekin verði upp lík útstrikunaraðferð og fylgt var á árunum 1910–1918, með þeirri rýmkun, sem brtt. bendir til, að eftirgjöf á lánum skuldunauta skuli bundin við gjaldþrot eða árangurslaust fjárnám. En opinber nauðasamningur getur líka komið til greina, síðan þau lög voru sett. Telur meiri hl. tryggara að setja slík ákvæði í lög, því að nú er verið að gera bankann að seðlabanka, sem á að vera tryggur og ríkissjóður á að standa í allmikilli ábyrgð fyrir. Því hefir þetta verið lagt til í brtt. við k-lið. Að taka ákvarðanir um eftirgjöf á skuld, það á bankaráðið að gera ásamt bankastjórunum. En það hefir bankastjórnin hingað til gert ein, af því að ríkið hafði ekki sjeð henni fyrir daglegri yfirstjórn.
Mjer þótti rjett að gefa þetta yfirlit, til þess að sýna, hvernig tímarnir hafa breyst. — Þá koma enn viðbótarliðir við 43. gr. Aftan við lið m komi nýr liður, svo hljóðandi: „Að setja reglugerð um stjórn bankans og starfrækslu, er ráðherra staðfestir“. Það átti 15 manna landsbankanefndin að gera, en kemur nú undir verksvið bankaráðsins.
Ennfremur nýir liðir um, að bankaráðið skuli skera úr ágreiningi milli bankastjóra og kjósa 2 endurskoðendur. Kem jeg síðar að ákvæðinu um ágreiningsatkvæðisrjett bankaráðs í sambandi við næstu grein.
Vegna þessara innskota breytir síðasti liður um staftákn og verður Síðasta málsgr. þessarar sömu gr. má falla burtu. Það leiðir af sjálfu sjer. Í greininni stendur, að bankaráðið geti hvenær sem er falið einum eða tveimur úr bankaráðinu að rannsaka ráðstafanir framkvæmdarstjórnarinnar. Þessa þarf ekki með, þegar bankaráðið er daglega starfandi í bankanum.
Þá kemur að 44. gr., sem verður 39. gr., um bankastjórnina sjálfa. Með breytingum okkar er ætlast til, að aðalbankastjóri hafi víðtæka þekkingu og reynslu í viðskiftamálum. Það hefir ekki verið í lögum áður, en er nauðsynlegt, til þess að sjeð sje fyrir, að að minsta kosti einn bankastjóranna sje vel hæfur og hafi verulega reynslu í þessum efnum. En áð öðru leyti er ekki eftir till. meiri hl. ætlast til þess, að aðalbankastjóri hafi meira vald en hinir, heldur hafi hann stjórnartauma daglegrar starfsemi í höndum sjer, kalli saman fundi og vaki yfir, að öll störf gangi greiðlega o. s. frv. En að öðru leyti hafi hann ekki vald fram yfir hina. Einhver verður sá að vera, er gangist fyrir.
Þá er ætlast til, að bankastjórarnir haldi fundarbók, þar sem skrifast skulu allar ályktanir gerðar á fundum, og skrifi þeir allir undir fundarbókina í hvert skifti, enda er það venja erlendis, en ekki eins og hv. 5. landsk. (JBald) stingur upp á, að aðeins tveir skrifi undir, heldur allir, því að allir bera þeir ábyrgðina. Svo hefir aldrei verið sjeð fyrir því, að minni hl., sem oft getur haft rjettara fyrir sjer en meiri hl., geti gert ágreining sinn gildandi. Nú á hann að hafa rjett til að skrifa ágreiningsatkvæði sitt í gerðabækurnar. Það má ætla, að hann hafi töluvert til síns máls, ef hann fer að ómaka sig til að færa ágreininginn inn í fundarbók, enda sje gert að skyldu að áfrýja slíkum ágreiningi til bankaráðs til úrslita. Lík regla gildir og í Noregsbankalögum, og hún er bygð á reynslunni. Eins ef bankastjóri er fjarverandi, þá ber hann fulla ábyrgð á því, sem gerist í fjarveru hans, ef hann ekki gerir athugasemd við það, sem hann er ósamþykkur, í gerðabókunum.
46. gr. verður 41. gr. Breytingin, sem gerð er á henni, er aðeins leiðrjetting á ósamræmi við 44. gr. — Við brtt. nr. 27 skal jeg gera þá athugasemd, að þar hefir slæðst inn prentvilla, á að vera: 47.–59. gr. verða 42.–54. gr.
Þá er 60. gr. Eins og hún er nú breytt samkv. till. okkar, er hún að byrjun til lík og í frv., að kosning bankaráðsmanna (í stað landsbankanefndar) skuli fara fram í fyrsta skifti á Alþingi 1927. Að loknu Alþingi skipi hæstirjettur 5 manna nefnd til þess að meta hag bankans. Síðan er tekið fram, hvað sjerstaklega skuli meta. Þetta er gert vegna þess, að ætla má, að altaf sitji flokkspólitísk stjórn að völdum, og því rjettara, að nefndin sje valin af hæstarjetti, sem hinni hlutlausustu stofnun í landinu. Jeg tel það mundu afla mests trausts alþjóðar, ef úttektin færi fram á þennan hátt og nefndarmenn væru valdir af þessum aðilja. Það er mest trygging fyrir því, að valið tækist vel, ef hæstirjettur velur. Jeg ætla ekki að segja fleira um þetta. En jeg skoða svo, sem úttektin mundi mælast vel fyrir, ef mat færi fram á þennan hátt, bæði hvað trygging og óhlutdrægni snertir.
61. gr. Það liggur í brtt. við 29. gr., um verðbrjefaeign, að síðasta málsgr. falli niður.
Í 62. gr. er óljóst orðað um uppsögn núverandi bankastjóra. Þykir rjett að láta gilda þar um sömu ákvæði og þá er þeir voru settir í stöðuna. Breytingin er aðeins ljósara orðalag.
Loks er lagt til, að lögin gangi í gildi 1. jan. 1928. Ef úttektarnefndin verður skipuð samkvæmt 60. gr., þá ætti hún að vera búin að starfa, þegar bankaráðið tekur við. Þá veit bankaráðið frá upphafi, við hverju það tekur.
Jeg hefi þá ekki meira um brtt. að segja. Verð jeg að biðja afsökunar, hve fljótt jeg hefi farið yfir efni. En það er sjálfsagt, ef háttv. þingmenn æskja frekari upplýsinga, þá skal jeg skýra það, sem jeg get, betur en gert er í nál. og jeg hefi nú rakið munnlega.
Um brtt. hv. minni hl. beggja (JJ og JBald) mun jeg ekki tala, fyr en þeir hafa skýrt, hvað fyrir þeim hafi vakað.