22.04.1927
Efri deild: 55. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 2908 í B-deild Alþingistíðinda. (1997)

20. mál, Landsbanki Íslands

Forseti (HSteins):

Hv. 5. landsk. (JBald) hefir vakið máls á því, að ýmsir hjeldu því fram, að hann sjálfur hallaðist að þeirri skoðun, að ákvæði 15., 68. og jafnvel 47. gr. þessa frv. færu í bág við stjórnarskrána, og hefir beiðst úrskurðar forseta um það, hvort beri að vísa frv. frá af þessum ástæðum.

Nú er það svo, að þótt tvö eða þrjú ákvæði frv. kynnu að fara í bág við gildandi stjórnarskrá, þá gæti ekki komið til mála fyrir þá sök að vísa frv. frá í heild sinni. Þar sem hinsvegar liggja fyrir brtt., bæði frá meiri og minni hl. fjhn., um að fella þau ákvæði burtu, sem hjer ræðir um, sem sje ákvæði 15. og 68. gr. frv., þá er það ótímabært að fella úrskurð um þessi ákvæði, fyr en atkvgr. um þessar brtt. hefir farið fram.

Úrskurður minn í þetta sinn verður því sá, að málinu skuli haldið áfram á venjulegan þinglegan hátt.