27.04.1927
Efri deild: 59. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 3135 í B-deild Alþingistíðinda. (2029)

20. mál, Landsbanki Íslands

Frsm. annars minni hl. (Jón Baldvinsson):

Það er vert að vekja athygli á, hvaða þýðingu hún hefir, brtt. við 1. gr. frv., sem samþ. var hjer við 2. umr. Hingað til hafa allir verið sannfærðir um það, að ríkissjóður bæri siðferðilega ábyrgð á, að menn yrðu ekki fyrir töpum af því að leggja fje sitt inn í sparisjóðsdeild Landsbankans, og sumir hafa jafnvel talið ótvírætt, að honum bæri lagaleg skylda til þess. Og skýringu á þessu er hægt að finna í skilningi hæstv. stjórnar, er hún taldi sjer heimilt án sjerstaks lagastafs að ganga í ábyrgð fyrir láni handa Landsbankanum.

En með því að fella niður þessa lagalegu ábyrgð, þá er líka sú siðferðilega fallin. Stjórnin mundi sem sje ekki telja sjer heimilt að veita Landsbankanum stuðning innanlands, nema fara til þingsins, og þar þarf leyfið að ganga í gegnum allar umr. til þess að verða að lögum. Eins og nú er ákveðið í 1. gr. frv., þarf að samþykkja ný lög til að taka ábyrgð á skuldbindingum bankans.

Hæstv. forsrh. hefir blandað ábyrgð á sparisjóðsfje saman við ábyrgð fyrir erlendum lánum og viljað láta það ríða í bág við okkar fyrri skoðanir. En það er alt annað og ekki sambærilegt, ábyrgð á sparisjóðsfje eða heimild til að ábyrgjast nýtt fje frá útlöndum handa Landsbankanum. Jeg vona, að hæstv. forsrh. og aðrir skilji muninn á því.

Landsmenn hafa lagt fje sitt inn í sparisjóð Landsbankans af því, að þeir hafa talið ábyrgð landsins standa þar á bak við. Því hefir sparifjeð safnast mest í Landsbankann, að þessi var skoðun manna alment. Að svifta bankann þessari ábyrgð mun verða til þess að auka tortryggni manna gagnvart bankanum og óvissu um tryggingu sparifjár. Á erfiðum tímum, er bankinn verður fyrir töpum, getur slík tortrygni orðið bankanum allhættuleg, og getur enda komið sjer illa fyrir landið sjálft. Ætla jeg, að það gæti sem best komið fyrir, að menn tækju upp á að flytja fje sitt úr landi, þar sem þeir teldu því betur borgið en í Landsbankanum án ábyrgðar ríkissjóðs.

Hæstv. forsrh. stendur enn á því fastar en fótunum, að ákvæðið um bankastjórana komi ekki í bág við stjórnarskrána. Jeg nenni ekki um það að karpa lengur. Verður að fara sem orðið er. Jeg held því fast fram, að ákvæðin í 42. gr. frv., ef hún verður samþ., sjeu í fullkomnu ósamræmi við stjórnarskrána, og sömuleiðis ákvæði 64. gr. frv. Háttv. 1. þm. G.-K. vildi halda því fram, að bankastjórar Landsbankans væru frjálsari til starfsemi eftir hans till. heldur en eftir frv. hæstv. stjórnar. En það er mesti misskilningur. Bankastjórarnir eru svo að segja fjötraðir á höndum og fótum. Jeg sje ekki betur en að með þessu ákvæði sje verið að ýta undir minni hluta bankastjórnar að skjóta stöðugt máli sínu til bankaráðsins, en af því mundi ekki annað hljótast en úlfúð og ábyrgðarleysi. Jeg skil ekki, hví hv. frsm. meiri hl. (BK) leggur svo mikið kapp á, að bankastjórarnir geti skotið máli sínu undir bankaráðið. Ef til vill miðar hann við það ástand, sem var í hans bankastjóratíð, en þá var það svo um einn bankastjórann, að hann gat ómögulega verið í samvinnu við hina bankastjórana, heldur flutti sig út í horn í bankastjórastofunni og sat þar fúll og afundinn. Ef til hefði verið bankaráð, sem hægt hefði verið að áfrýja til, þá hefði orðið að hafa sáttafundi daglega og úlfúðin vitanlega magnast enn meir. Það eru víst þessir liðnu tímar, sem hv. þm. hefir í huga, en það er nú vonandi, að ekki komi þeir vandræðamenn í bankann, að þessi raunasaga þurfi að gerast aftur. Jeg vil, að bankastjórarnir við Landsbankann hafi fullkomið eftirlit af bankaráðinu, en jeg vil ekki, að þeir sjeu gerðir svo ófrjálsir að ákvörðunum sínum, að hægt sje að hringla með þær fram og aftur. Það er einkennilegt, að hv. frsm. meiri hl. virðist ekki geta vitað af því, að bankaeftirlitsmaðurinn sje látinn gera upp í Landsbankanum. Hann er nógu góður til þess að athuga Íslandsbanka, en ef hann á að snerta á Landsbankanum, þá er hann strax miklu lakari. En ef bankaeftirlitsmaðurinn er fær um að rannsaka hag Íslandsbanka, þá er hann engu síður fær um að rannsaka hag Landsbankans, nema frekar sje, vegna kunnugleika hans á hag manna.

Hv. þm. komst í svari sínu til hv. 1. landsk. inn á starfsemi kaupfjelaganna hjer í Reykjavík. Satt að segja undraðist jeg þann hugsunarhátt, sem fram kom hjá honum. Hann spurði, af hverju væri nauðsynlegt að hafa hjer kaupfjelög, og mjer skildist hann telja hlutverk þeirra það eitt að tapa fje. Það getur vitanlega komið fyrir kaupfjelög eins og aðra, að þau geti ekki staðið við skuldbindingar sínar. En þau töp, sem orðið hafa á kaupfjelögum, eru hverfandi lítil í samanburði við það, sem tapast hefir á kaupmönnum og útgerðarmönnum, svo að það er undarlegt að vera að draga þetta inn í umræðurnar. Það sannar ekki á neinn hátt, að hjer sje ekki þörf á kaupfjelagi, af því að hjer sjeu margir kaupmenn. Það er vitanlegt, að með kaupmönnum eru oft samtök um að leggja svo og svo mikið á vörurnar. Fjelög neytenda taka ekki þátt í slíkum samtökum, svo að vel getur verið, þó að kaupfjelag hafi tapað hjer einhverju, að bæjarbúar hafi hagnast á því bæði beint og óbeint. Kaupmenn verða að jafnaði að selja vörur sínar lægra verði en ella, þar sem kaupfjelög starfa. Það er vitanlega af beinni óvild til kaupfjelagsstarfseminnar, að hv. þm. viðhefur þessi ummæli sín.

Hv. frsm. meiri hl. og hæstv. forsrh. vilja nú fara að draga úr umræðunum um þetta mál, og er það skiljanlegt. Þeir eru búnir að flækja málið og vefja á þann hátt, að lítt er hugsanlegt annað en til algers stjórnleysis og aðgerðaleysis leiði í Landsbankanum, ef tillögur þeirra verða samþyktar. Það þýðir ekki að tala meira við þá um þetta mál, og jeg býst ekki við að nota rjett minn til að halda eina ræðu enn. Jeg vona, að hv. deild auðnist að greiða úr þeirri flækju, sem þeir hv. frsm. meiri hl. og hæstv. ráðh. hafa komið þessu máli í.