02.05.1927
Neðri deild: 64. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 3154 í B-deild Alþingistíðinda. (2042)

20. mál, Landsbanki Íslands

Forsrh. og fjrh. (Jón Þorláksson):

Hv. þm. Str. (TrÞ) hefir nú lýst því, að honum þyki það hafa verið alveg óforsvaranleg afstaða, sem jeg hefi tekið í Ed. gagnvart tveimur tilteknum atriðum, sem hann nefndi.

Þessi atriði hafa ekki komið til umræðu hjer í deildinni, svo að jeg viti; og úr því að hv. þm. Str. fellir nú þann dóm fyrirfram, að framkoma þeirra sje óforsvaranleg, þá þykist jeg vita, að jeg geti ekki forsvarað þau gagnvart honum, þegar af þeirri ástæðu, að hann þykist of mikill maður til þess að taka aftur dóminn, þótt hann sje kveðinn upp í fljótfærni og án þess að hafa heyrt málavexti. — Jeg ætla að forsvara mínar gerðir gagnvart þeim hv. þdm., sem ekki eru búnir að fella sinn dóm fyrirfram.

Það hefir oft borið á góma þetta atriði um ábyrgð ríkissjóðs á Landsbankanum. Jeg hefi ávalt lýst þeirri skoðun, þegar svo hefir borið undir, sem jeg hefi orðað í lagafrv., að ríkið beri ekki ábyrgð á skuldbindingum Landsbankans eins og bankinn er nú. Ekki nema á slíkum tilteknum skuldbindingum, sem með einhverjum gerningum þings eða stjórnar verða sjerstaklega upp á ríkissjóðinn teknar, svo sem með því að ganga í ábyrgð fyrir tilteknum lánum handa bankanum. Nú liggur fyrir að setja Landsbankanum nýja löggjöf; og jeg skal þá rifja upp aðstöðuna til þessa máls í þeim frv., sem hingað til hafa komið fram í þessu seðlaútgáfumáli.

Fyrsta frv. var samið af sjálfri stjórn Landsbankans og borið fram af fjhn. Ed. árið 1924, eftir beiðni fyrverandi stjórnar. Hver, sem kynnir sjer það frv., hlýtur að ganga úr skugga um það, að þar er tekin upp tilhögun, sem algerlega útilokar þann skilning, að ríkissjóður sje ábyrgur fyrir skuldbindingum bankans. Það er af því, að gert er ráð fyrir innborguðu stofnfje, sem geti verið jöfnum höndum eign ríkissjóðs og annara, — þetta er með öðrum orðum hlutafjelagsfyrirkomulag, sem alveg útilokar, að einn tiltekinn hluthafi geti verið ábyrgur fyrir skuldbindingum fyrirtækisins, að öðru leyti en með stofnfje sínu og með því, sem hann kynni að taka á sig eftir sjerstakri ákvörðun í hvert sinn.

Sömu tilhögun var haldið í stjfrv., sem var lagt fyrir þingið 1925. Það var máske ennþá skýrar orðað, að það væri hlutafjelagstilhögun. Var það af öllum viðurkent, að það væri hin sama tilhögun eins og í því frv., sem Landsbankastjórnin hafði samið.

Fyrstu upptök að löggjöf á þeim grundvelli, að ríkissjóður sje ekki ábyrgur fyrir skuldbindingum bankans, komu því frá núverandi stjórn Landsbankans. Og eftir þeim loflegu ummælum hv. þm. Str. um þá bankastjórn, þá vil jeg vona, að hann telji þetta ekki svo mikið ódæði af mjer, eftir að vera búinn að heyra, hvaðan þetta fyrst er komið.

Í milliþinganefnd varð ágreiningur um þetta atriði, og var það svo að segja eina atriðið. Meiri hl. stakk sem sje upp á tilhögun, sem gerði ríkissjóðinn ábyrgan fyrir skuldbindingum bankans, þótt það væri ekki beinlínis orðað þannig. Það var orðað þannig, að ef bankinn tapaði svo miklu, að varasjóður ekki nægði og stofnfje yrði skert, þá ætti ríkissjóður samkvæmt bankalögunum að bæta honum upp tapið á stofnfjenu. Þannig skyldi hann hafa stofntfje sitt óskert eftir. Þetta er vitanlega sama sem að ríkissjóður taki á sig ábyrgð á öllum töpum bankans.

Háttv. 2. þm. Reykv. (MJ) gerði ágreining um þetta atriði í nefndinni. Í stjfrv. var felt úr frv. milliþinganefndarinnar þetta ákvæði, að ríkissjóður skyldi bæta bankanum upp sjerhvert tap, sem gengur svo langt, að stofnfje hans skerðist við það. Og eftir öllum málavöxtum álít jeg, að burtfelling á þessu ákvæði meiri hl. nægði til þess, að ríkissjóður væri þá ekki samkv. þessum lögum ábyrgur fyrir skuldbindingum bankans.

Nú hefir þetta mál verið tekið upp aftur á þessu þingi, og það við tvö tækifæri. Fyrst kom málið upp í sambandi við það frv., sem fjhn. þessarar hv. deildar bar fram, eftir ósk stjórnarinnar, um almenna heimild handa stjórninni til þess að ábyrgjast rekstrarlán fyrir Landsbankann. Við umr. um þetta mál kom í ljós, að þm. þótti ekki rjett, að stjórnin hefði almenna heimild til þess að ganga í slíkar ábyrgðir fyrir Landsbankann, heldur væri áskilið að heimila það með lögum í hvert skifti, sem slíka ábyrgð ætti að taka á ríkissjóðinn. Og þessi skoðun varð alveg ofan á í þinginu. Frv., eins og það var samþykt, ber vitni um þennan skilning, þannig, að heimildin, sem ríkisstjórnin hefir til að ábyrgjast fyrir bankann, er einskorðuð við það, sem upp er talið í þessum lögum. Það kom svo átakanlega berlega í ljós við umr. um frv., að ekki væri litið svo á, að ríkissjóður væri ábyrgur fyrir skuldbindingum Landsbankans, nema hann hefði sjerstaklega tekið ábyrgð á þeim. Jeg held meira að segja, að hv. þm. Str. hafi þá ekki verið í nokkrum vafa um sína skoðun á þessu sviði. Og hún er sú sama sem hjer kemur fram í þessum lögum um heimild fyrir ríkissjóðinn til þess að ábyrgjast lán fyrir Landsbankann.

Hinsvegar kom þetta sama málsatriði til meðferðar í fjhn. hv. Ed. á þann hátt, að nefndin leitaði álits hjá einum kennara í lögum við háskólann, hvort ríkissjóður sje ábyrgur fyrir skuldbindingum Landsbankans, meðal annars eftir því frv., sem hjer liggur fyrir. Þessi prófessor ljet í ljós sem sína skoðun, að þar sem tiltekið væri, að Landsbankinn væri eign ríkisins — þótt hinsvegar sje berum orðum takmarkað framlag ríkissjóðs til þessa eignarfyrirtækis, — þá mundi mega líta svo á, sem ríkissjóður bæri ábyrgð á öllum skuldbindingum þessarar stofnunar.

En álit þetta fór gersamlega í bága við það álit, sem þetta þing hafði staðfest með lögunum um heimild til að ábyrgjast lán fyrir Landsbankann. Og ennfremur fór það í bága við þann skilning, sem jeg hafði ætlað mjer að leggja í þetta frv., og í bága við þann skilning, sem ótvíræðlega hefir orðið að leggja í frv., sem lágu fyrir árin 1924 og 1925. Og jeg taldi mjer þá skylt, til þess að taka af öll tvímæli, að bera fram brtt. við 1. gr. frv., sem einmitt einskorðaði ábyrgð ríkissjóðsins við framlag hans til þessarar stofnunar, og tel mig þar ekki hafa gert neitt annað en framfylgja þeim skilningi, sem þetta sama þing, sem nú situr, er búið að gera gildandi að því er snertir ábyrgð ríkissjóðs á skuldbindingum bankans.

Nú hefir hv. þm. Str. fundið ýmsar ástæður til þess að álíta ekki rjett að takmarka ábyrgð ríkissjóðs þannig. Hann hefir fært aðallega tvær ástæður á móti þessu. Fyrri ástæðan er sú, að það sje siðferðilega rangt, að sá, sem tekur ágóðann, þegar vel gengur, — í þessu tilfelli ríkissjóður —, hann beri ekki áhættuna, þegar illa gengur. Þegar hv. þm. segir þetta, þá hefir hann ekki athugað nægilega vel önnur ákvæði frv. Það er nefnilega alls ekki frá þessu gengið þannig, að ríkissjóður ætli sjer að reka þennan banka sem gróðafyrirtæki fyrir sig. Fyrst og fremst er sparisjóðsdeild, sem á að hafa alveg sjálfstæðan efnahag. Allur sá afrakstur, sem af henni verður fyr og síðar, á að ganga til hennar eigin varasjóðs, og aldrei nokkur eyrir af því til ríkissjóðs. Þannig er að því er snertir sparisjóðsdeildina einmitt ætlast til þess í frv., að sá beri áhættuna, sem nýtur arðsins, þ. e. sparisjóðsins eiginn sjóður.

Um seðlabankann er það að segja, að þar á ríkissjóður heldur ekki að taka neinn gróða. Það er afskamtað, að hann megi ekki fá meira en 6% ársvexti af því stofnfje, sem hann leggur seðlabankanum, fyr en eftir að varasjóður seðlabankans sjálfs út af fyrir sig er kominn yfir 4 milj. króna; þá fyrst getur komið til mála, að ríkissjóður njóti einhvers umfram þessa vexti. — Hinsvegar tekur ríkið samkvæmt ákvæðum frv. ábyrgð á skuldbindingum seðlabankans með öllu hans stofnfje, sem nú er stungið upp á, að verði 5 milj. króna; þó þannig, að fyrst um sinn er seðlabankanum aftur gert að skyldu að standa í ábyrgð fyrir sparisjóðinn með því fje, sem Landsbankinn nú þegar hefir fengið frá ríkissjóði og nú þegar er til tryggingar sparisjóði hans. Þetta ákvæði var sett inn í frv. við meðferð málsins í hv. Ed., til þess að gera það öldungis ótvírætt, að það er ekki með þessari lagabreytingu tekin nein sú trygging frá innstæðueigendum við sparisjóð Landsbankans, sem þeir nú hafa og hafa haft hingað til. Nú tryggir frv. ríkissjóði það á engan hátt, að hann fái í öllum árum 6% vexti, eða nokkra vexti, af framlagi sínu til bankans, svo að þótt hann einhverntíma eftir að varasjóðurinn er orðinn 4 milj. kr. kynni að fá eitthvað yfir 6% í sumum árum, þá fer því fjarri, að ákvæðin til samans feli það í sjer, að ríkissjóður eigi að hirða gróðann af seðlabankanum, þegar vel gengur.

Hin ástæðan, sem hv. þm. hafði í móti ákvæðinu, var sú, að ástand atvinnuveganna væri svo alvarlegt og óstöðugt, að ekki mætti gera neitt, sem gæti skapað óróa um peningastofnanirnar í landinu. En jeg get ekki ímyndað mjer, hvernig það getur skapað óróa, þótt verið sje að ræða og gera að lögum frv., sem leggur bankanum til 3 milj. kr. stofnfje umfram það, sem hann hefir haft hingað til. Í sambandi við þetta nefndi hv. þm. Str. till., sem ekki komst inn í frv., en borin var fram af meiri hl. fjhn. í Ed., um mat á bankanum áður en hann tæki skipulega til starfa. Hv. þm. misskildi algerlega tilgang þessarar till. og kom ekki auga á samband þessa og ákvörðunar um stofnfje og tryggingar, sem bankinn á að fá. Landsbankinn hefir orðið fyrir miklum töpum, sem kunnugt er og reikningar hans sýna. Hugsun meiri hl. fjhn. með till. var því sú, að meta skyldi hag bankans til þess að komast að fastri niðurstöðu um það, hversu mikið fje ríkissjóður þyrfti að leggja bankanum til, til þess að stofnfje hans væri óskert þegar í byrjun. Það er tryggingarráðstöfun að láta slíkt mat fara fram, til þess að ganga úr skugga um það þegar í upphafi, að ekki neitt af því stofnfje, sem lögin tilgreina, sje tapað. Er þá ætlast til, að töpin sjeu fyrst gerð upp og síðan borgað inn úr ríkissjóði til þess að stofnfjeð sje óskert sjálfseign bankans. Þennan góða tilgang með till. hefir háttv. þm. alveg misskilið. Nú er svo ákveðið í frv., að ráðherra sjái um, að úttekt á bankanum fari fram í hendur bankaráðs, og þetta er að efni til alveg sama ákvæði og hitt, sem hv. þm. áfellir svo mjög.

Það, sem hv. þm. sagði um ummæli háttv. 1. þm. G.-K. (BK) í Ed. um Landsbankarannsóknina 1909, þarf jeg ekki að koma inn á, annað en geta þess, að þar sem hv. þm. Str. sagði, að sú rannsókn hefði verið framkvæmd að ráði hv. 1. þm. G.-K. sem árás á bankann, þá tel jeg mjer skylt að skýra frá því hjer í þessari hv. deild, að hv. 1. þm. G.-K. gerði grein fyrir því í Ed., að sú rannsókn hefði ekki farið fram fyrir sitt tilstilli.

Hafi jeg, eins og hv. þm. Str. ljet á sjer skilja, gert samband við hv. 1. þm. G.-K. um afgreiðslu málsins í Ed., þá tel jeg það ekki nema báðum okkur til sóma að hafa gengið í bandalag um afgreiðslu svo merkilegs máls.

Ef háttv. þm. Str. vill kynna sjer breytingar þær, sem frv. tók í Ed. og samþ. voru með atkv. okkar beggja, hv. 1. þm. G.-K. og mínu, mun hann þar finna ákvæði, sem engum blandast hugur um, að eru gerð stofnuninni til styrktar og eflingar, t. d. aukið stofnfje, stytting þess tíma, er bankinn er skyldur að endurkaupa víxla af Íslandsbanka, o. fl. Þetta ætti að nægja til þess að hnekkja hugarburði hv. þm. Str. um andúð gegn Landsbankanum frá mjer og öðrum í sambandi við afgreiðslu þess máls þar. Afstaða mín er hin sama og áður fyr. Jeg hefi reynt að vega sem nákvæmast alla málavöxtu og þræða meðalveginn milli hagsmuna, sem mönnum finnast rekast á, í sambandi við endanlega skipun seðlaútgáfunnar.