02.05.1927
Neðri deild: 64. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 3190 í B-deild Alþingistíðinda. (2051)

20. mál, Landsbanki Íslands

Forsrh. og fjrh. (Jón Þorláksson):

Hv. 4. þm. Reykv. (HjV) spurði, hver jeg áliti, að ætti Landsbankann. Hv. þm. þarf ekki annað en taka frv. og lesa 1. línu 1. gr. til þess að sjá það. Þar stendur svo, með leyfi hæstv. forseta: „Landsbanki Íslands er sjálfstæð stofnun, sem er eign ríkisins, undir sjerstakri stjórn“ o. s. frv. Brtt. sú, sem sett var inn í frv. í hv. Ed., afmarkar þessa eign ríkisins frá öðrum eignum þess og tilefni til hennar var gefið af prófessor Ólafi Lárussyni. Jeg bar brtt. fram til þess að útiloka ágreining um þetta efni, en ekki vegna þess, að jeg álíti skoðun prófessorsins rjetta. Þá þótti mjer leitt að heyra þennan hv. þm. halda því fram sem sinni skoðun, að ríkið mætti hvenær sem er ráðstafa gróða þessarar stofnunar með lögum. Það kann að vera, að þingið hafi að formi til þessa heimild, en þó líklega ekki gagnvart skuldbindingum, sem fallnar eru á bankann; en það verður að standa fast, að seðlabankinn sje verndaður fyrir tilhneigingu löggjafarvaldsins til þess að rjetta hendina niður í fjehirslu hans og nota fjeð til annars en eigin þarfa bankans. Skoðun hv. 4. þm. Reykv. og mín á markmiði Landsbankans er mismunandi. Hv. þm. vill sem góður jafnaðarmaður, að Landsbankinn sje eina peningastofnun landsins, en jeg og fleiri eru þeirrar skoðunar, að affarasælast sje að stýra seðlabanka okkar inn á sömu braut og gert er hjá þeim þjóðum, sem bankamálin eru lengst á veg komin hjá, sem sje að draga hann sem mest út úr áhættusamri lánsstarfsemi. Starfsemi seðlabankans á að vera fólgin í því, sem felst í 4. gr. frv., að stuðla að tryggri skipun á peningamálum landsins, með það fyrir augum, að gull og gullgildir seðlar geti sem fyrst orðið og haldi síðan áfram að vera hinn almenni gjaldeyrir í landinu. Því er best, að hann sje laus við að lána til áhættusamra atvinnuvega. Að þessu eigum við að stefna, en ekki að því að láta Landsbankann soga að sjer innlánsfje frá öðrum stofnunum, heldur hafa eðlilega samkepni um það, uns það þykir tímabært að skilja sparisjóðsdeildina frá seðlabankanum.

Hv. 1. þm. Reykv. þarf jeg ekki miklu að svara. Það hefir aldrei verið ágreiningur um það, að sjerstaka ábyrgð þyrfti að láta í tje til þess að ríkissjóður ábyrgist skuldbindingar Landsbankans. Um hitt hefir verið deilt, hvort stjórnin geti veitt ábyrgðina án lagaheimildar, og úr því hefir verið skorið nú á þessu þingi; stjórnin þarf lagaheimild í hvert sinn. Þetta er ósamrýmanlegt því, að ríkissjóður beri ábyrgð á öllum skuldbindingum Landsbankans. Hví skyldi þá hverju sinni, er bankinn tekur lán, þurfa að leita til þings og stjórnar um ábyrgð?

Þá spurði þessi háttv. þm., hvers vegna jeg hefði gert till. milliþinganefndarinnar um þingsetu bankastjóranna að minni tillögu. Þegar jeg tók við frv. milliþinganefndarinnar til þess að leggja það fyrir þingið, þá vildi jeg ekki breyta öðru í því en því, sem jeg fann rök fyrir, að breyta þyrfti. Þetta ákvæði taldi jeg heppilegt, og því tók jeg það upp og bar það fram, að því viðbættu, að sama regla skyldi gilda um hina stjórnskipuðu bankastjóra Íslandsbanka. Jeg legg ekki svo mikið kapp á þetta, að jeg vilji taka það upp í stjórnarskrána. Jeg álít þetta atriði ekki stærra en svo, að rjett sje, að almenni löggjafinn geti úr því skorið. Jeg mun því ekki bera fram brtt. um þetta við stjórnarskrárfrv. Hv. 4. þm. Reykv. vísaði um þetta til ákvæða 44. gr. stjórnarskrárinnar, um embættismenn. En það kemur auðvitað ekki til mála að líta á bankastjórana sem embættismenn. Landsbankastjórana ræður bankaráð, en ekki stjórnin, og þeir eru ráðnir með uppsagnarfresti. Bankastjórar Íslandsbanka eru framkvæmdarstjórar í hlutafjelagi, en starfa ekki í þjónustu ríkisins. Samherja hv. þm. í Ed., háttv. 5. landsk., datt heldur ekki í hug að halda þessu fram, heldur reyndi hann að heimfæra þetta undir 30. gr. stjórnarskrárinnar, en áleit, sem rjett var, að þetta kæmi ekkert við 44. gr.