02.05.1927
Neðri deild: 64. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 3193 í B-deild Alþingistíðinda. (2052)

20. mál, Landsbanki Íslands

Sveinn Ólafsson:

Á síðasta þingi fylgdi jeg þessu máli með töluverðum áhuga. Jeg leit svo á, að afgreiðsla þess mætti ekki dragast, og lít reyndar svo á það enn. Nú mundi einnig horfa annan veg við um málið, ef það væri hjer í sama búningi, sem það hafði við afgreiðslu hjeðan úr deildinni á síðasta þingi. Frv. hefir nú tekið miklum breytingum í hv. efri deild og mjer er til efs, að jeg geti fylgt því hjeðan í óbreyttum búningi, þótt jeg sjái, að nauðsynin á því, að það nái fram að ganga, sje ríkari nú en nokkru sinni áður. Jeg þarf ekki að fara ítarlega út í orsakir þær, sem gera það að verkum, að jeg get ekki sætt mig við frv. eins og það er nú. Þær hafa verið taldar hjer áður og eru aðallega tvær. Hin fyrri er breyting sú, sem sett var inn í Ed. við 1. gr. frv., um ábyrgðarleysi ríkisins á Landsbankanum eða vörslufje í honum, en hin er sú, að tekið hefir verið burt ákvæðið, sem sett var inn í Landsbankalögin 1919, um það, að Landsbankinn skuli ávaxta fje opinberra sjóða og stofnana. Jeg geri nú ráð fyrir því, að þetta innskot í 1. gr., um ábyrgðarleysi ríkisins, yrði ekki notað, ef til þess kæmi, að vörslufje týndist, heldur verður að skoða þetta sem hræðu fyrir eigendur innlánsfjár, aðvörun um að geyma fjeð annarsstaðar en í Landsbankanum. Slík aðvörun er í senn bæði skaðleg bankanum og ósæmileg af hendi þingsins. Hún er vantraustsyfirlýsing á þeirri stofnun, sem þjóðin vill láta hafa forustu í öllum fjármálum sínum út á við. — Ábyrgð ríkisins verður í reyndinni sama og áður hefir verið eftir óskráðum lögum, eins og sýndi sig nýlega, er lánsstofnun ein hjer í nágrenni lenti í vanskilum og Alþingi beindi þeirri ósk til Landsbankans að leysa innstæðueigendur án mikils tjón. Ríkisins mundi leitað um hjálp, ef innstæðurnar týndust, jafnvel þótt hjá einkalánsstofnun væri. Þess vegna er líka þessi fráleiti varnagli í 1. gr., um ábyrgðarleysið, óhafandi.

Niðurfelling 52. gr. frv., eins og það fór frá þessari deild á síðasta þingi, þ. e. ákvæðin um ávöxtun opinberra sjóða í Landsbankanum, er líka að mínum skilningi hrein óhæfa. Þetta firtir sjóðeigendur frá bankanum og er þá aðeins til hagsmuna öðrum lánsstofnunum. Jeg vil því leyfa mjer að skora á hv. fjhn. að bæta úr þessu tvennu við væntanlega meðferð málsins, taka þennan fleyg burt úr 1. gr. og taka upp aftur 52. gr. frv. frá í fyrra.

Að vísu eru ýmsar aðrar misfellur komnar inn í frv. frá því á síðasta þingi, svo sem niðurfelling bankanefndar o. fl., en þær eru þó ekki jafnfráleitar og þær tvær, sem fyr voru nefndar.

Fleira skal jeg ekki um málið segja að þessu sinni, en vil aðeins geta þess, að jeg mun tæpast sjá mjer fært að fylgja málinu á síðari stigum þess, ef ekki fást þessar tvær aðalbreytingar fram.