03.05.1927
Neðri deild: 65. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 3195 í B-deild Alþingistíðinda. (2055)
20. mál, Landsbanki Íslands
Klemens Jónsson:
Mjer virðist þetta enginn úrskurður um það atriði, er jeg óskaði eftir, heldur er því beint til nefndarinnar, að hún breyti þeim atriðum, sem um er deilt. En vilji nefndin ekki breyta þessu, þá eiga menn á hættu, að hæstv. forseti vísi málinu frá við 2. umr. Því vil jeg fara þess á leit á ný, að hæstv. forseti leggi hreinan úrskurð á málið áður en fjhn. leggur út í erfiði við rannsókn þess og athugun.