13.05.1927
Neðri deild: 74. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 3243 í B-deild Alþingistíðinda. (2071)

20. mál, Landsbanki Íslands

Jón Auðunn Jónsson:

* Að jeg hefi skrifað undir nál. án fyrirvara, þýðir ekki það, að jeg hafi skift um skoðun, að svo sje málinu best fyrir komið, að seðlabankinn hafi ekki með önnur bankastörf að ræða. En jeg sje þess enga von, að slík stofnun verði lögfest, hvorki á þessu ári eða þeim næstu, þar sem meiri hluti þingmanna er þessu fyrirkomulagi fylgjandi.

Flestir þingmenn munu gefa kost á sjer við næstu kosningar, og mun meiri hluti þeirra ná þeim, og þarf því ekki að búast við því, að málið taki nokkrum breytingum, þótt kosningar sjeu á milli. Það ber að játa, að frv. hefir tekið stórum stakkaskiftum frá till. milliþinganefndarinnar í bankamálinu, og þau stakkaskifti eru að mun til bóta. Með því fyrirkomulagi, sem nú er hugsað, er hægt að aðskilja seðlafje bankans og sparisjóðsdeild hans, og þannig verður bankinn seðlabanki með sama fyrirkomulagi og seðlabankar annarsstaðar hafa. Jeg vænti þess, að málum bankans verði þannig stýrt í náinni framtíð, að þessi aðskilnaður reynist ekki torveldur.

Á öðrum sviðum hefir frv. líka tekið bótum frá því, sem milliþinganefndin stakk upp á, bæði um fyrirkomulag og stjórn bankans. Lögð hefir verið niður nefnd, sem fyrirsjáanlegt var, að aldrei yrði annað en ábyrgðarlaust og þekkingarlítið hrófatildur, og í stað hennar sett bankaráð með því valdsviði, sem venja er til annarsstaðar, að bankaráð hafi.

Flestar breytingarnar, sem hv. fjhn. leggur til, tel jeg fremur til bóta á frv., og þótt ýmsir nefndarmenn sjeu ekki algerlega sammála, vænti jeg þess, að flestar þeirra nái samþykki hv. þingdeildar.

Að öðru leyti ætla jeg ekki að minnast á einstök atriði frv. að öðru en því, að jeg tel ekki rjett að draga úr valdi bankaráðs, sem því er ætlað eins og er, og ekki vert að stofna til bankaráðs, sem vinni minna í bankanum en ráð er fyrir gert, og hafi þannig minni þekkingu á starfsemi bankans, ef bankaráðið á að geta starfað eftir tilgangi sínum og venju í öðrum löndum.