13.05.1927
Neðri deild: 74. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 3256 í B-deild Alþingistíðinda. (2079)
20. mál, Landsbanki Íslands
2079Forsrh. og fjrh. (Jón Þorláksson):
Því er nú alls ekki til að dreifa, að ríkið beri enga ábyrgð á því fje, sem lagt er inn í bankann.
Ef þetta frv. verður samþ., leggur ríkið fram 5 miljónir til tryggingar því fje, sem bankinn tekur við. Af þessari fúlgu er sparisjóðsdeildinni ætlaður nokkur hluti, þangað til varasjóður hennar hefir náð þeirri stærð, sem núgildandi almenn sparisjóðslöggjöf telur nægilega til tryggingar, sem sje 10% af innstæðuupphæðinni.