14.05.1927
Neðri deild: 75. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 3260 í B-deild Alþingistíðinda. (2085)

20. mál, Landsbanki Íslands

Forseti (BSv):

Það þekkist ekki í þingsköpum að taka aftur brtt. til næstu umr., þótt stundum sje svo að orði kveðið hjer í þingdeildunum. Og þar sem það er á valdi hv. þm. sjálfra, hvort þeir bera fram aftur við síðari umr. brtt. þær, sem þeir hafa tekið aftur við fyrri umr., þá er óvíst, hvort nokkurntíma gefst færi á að greiða um þær atkvæði. En það er rjettur þingmanna að taka upp einstakar greinir eða frumvörp, sem flutningsmenn taka aftur, þegar á sama fundi, og koma þessar brtt. því til atkvæða nú.