25.03.1927
Efri deild: 36. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 3332 í B-deild Alþingistíðinda. (2115)
2. mál, stjórnarskipunarlög
Jóhannes Jóhannesson:
Eins Og hv. þdm. er kunnugt, hefir frsm. meiri hl. nefndarinnar verið lasinn undanfarið og er ekki enn búinn að ná sjer að fullu. Jeg hefi því tekið að mjer að fylgja nál. á þskj. 119 úr hlaði með nokkrum orðum.
Nefndin gat ekki orðið sammála um þetta frv. Meiri hl. hennar leggur til, að það sje samþ. óbreytt eins og það kom frá stjórninni, með skírskotun til athugasemda stjórnarinnar og nál. á þskj. 119. Aftur á móti hefir minni hl. nefndarinnar gefið út nál. á þskj. 151 og lagt til, að sumar greinar frv. falli niður. Sú brtt. er að vísu óþörf, þar sem hver grein frv. verður borin upp sjerstaklega við þessa umr. samkvæmt fyrirmælum þingskapanna.
Öll nefndin hefir orðið sammála um, að þau ákvæði skyldi samþ., sem mæla svo fyrir, að reglulegt Alþingi skuli háð aðeins annaðhvert ár. Þeirri breytingu er samfara mikill sparnaður, þar sem þingið kostar nú um 200 þús. krónur á ári og er því orðið allmikil byrði á þjóðinni. En margir líta svo á, að ekki liggi þau afrek eftir öll þingin, að betra væri að verja þessu fje til vegarspotta eða brúargerðar, en slíkar framkvæmdir verður að takmarka vegna fjárhagsörðugleika. Það þykir nú sannreynt, að þingin sjeu ekki styttri en áður, þótt þau sjeu háð á hverju ári. Að vísu liggur þetta að nokkru í því, að þingmönnum hefir verið fjölgað og breytingar ýmsar og framfarir meir hraðfara en áður, en því er líka um að kenna, að nú er talað miklu meira en áður um einstök mál, svo að dæmi eru til, að ein umr. hafi enst í 3–4 daga í hv. Nd., og verður þó stundum lítill árangur þeirra mála, sem svo mikið eru rædd. Málafjöldi fer líka stöðugt vaxandi. Það þykir ekki nema eðlilegt, að borin sjeu fram ýms mál, til þess að hafa eitthvað að gera meðan fjvn. er að ljúka starfi sínu, sem tekur jafnan nokkurn tíma. En þessi mál verða oft svo mörg, að þingið kemst ekki yfir þau og gengur frá þeim án þess að leiða þau til lykta. Um það eru allir sammála, að óskir þjóðarinnar gangi í þá átt, að reglulegum þingum sje fækkað. Og get jeg fyrir mitt leyti aðhylst það, því jeg lít svo á, að venjulega sje hægt að komast af með þing annaðhvert ár, þegar svona langt er liðið frá ófriðarárunum, svo framarlega sem það ástand, sem nú er, breytist ekki vegna ófyrirsjáanlegra orsaka.
Það liggur í augum uppi, að hjer er ekki um lítinn sparnað að ræða, og það því fremur, þegar kosningar eiga fram að fara næsta haust. Þarf því ekki að efna til sjerstakra kosninga vegna þessarar breytingar.
Þá er öll nefndin sammála um, að gera eigi leiðrjettingar þær á tölum í 26. gr. stjórnarskrárinnar, sem felast í 3. gr. frv.
Loks er öll nefndin sammála um, að svo þurfi að ganga frá, að ekki komi til landskjörs, þó að það komi fyrir, að bæði landskjörinn þingmaður og varamaður hans deyi eða forfallist á kjörtímabilinu. Minni hl. telur nóg að breyta kosningalögunum til þess að fyrirbyggja þetta, en jeg lít svo á, að það sje ekki nægilegt; til þess þurfi breytingu á stjórnarskránni. Það hefði kannske mátt komast hjá þessum kosningum í sumar vegna stjórnarskrárinnar, en með því þá að samþykki allra flokka hefði komið til og að kosningalögunum hefði verið breytt á eftir. En þetta samkomulag náðist ekki, og því varð að setja alla þjóðina í kosningahreyfingu, aðeins til þess að kjósa einn mann. Hjeðan af verður því ekki aftur snúið með þetta; það er búið að skýra þetta ákvæði stjórnarskrárinnar á þennan eina veg og slá því föstu. Að sjálfsögðu getur það oft komið fyrir, að aðalmaður og varamaður deyi eða forfallist á kjörtímabilinu og því þurfi að kjósa upp. Þannig færi t. d., ef svo óheppilega skyldi tiltakast, að hv. 1. landsk. forfallaðist, svo að hann gæti ekki setið á þingi, eða dæi, því að varamaður hans er fyrir nokkru dáinn.
Það, sem einna mestum ágreiningi hefir valdið í nefndinni, er lenging kjörtímabils hinna kjördæmakjörnu þingmanna úr 4 árum upp í 6 ár, og breyting sú á landskjörinu, sem felst í frv.
Jeg fæ ekki sjeð, að breytingin á kjörtímabilinu geri mikinn mismun, því þó að kosið sje til 6 ára, þá er ekki kosið nema til þriggja þinga, en nú er kosið til fjögurra þinga. Hin breytingin, sem er þyrnir í augum hv. minni hl., er, eins og jeg tók fram áðan, breytingin á landskjörinu. Hann lítur svo á, að verði sú breyting samþykt, þá sje hinu upphaflega hlutverki landskjörnu þingmannanna, að vera kjölfesta Alþingis, kastað fyrir borð.
Jeg sje ekki, að þetta sje rjett hjá háttv. minni hl. Altaf er þó sá munur á þeim og kjördæmakjörnum þingmönnum, að þeir hafa ekkert sjerstakt kjördæmi til þess að bera fyrir brjóstinu, og geta því óskiftir beitt sjer fyrir alt landið, en eins og kunnugt er, verða kjördæmakjörnu þingmennirnir altaf að hafa dálitla hliðsjón af hag og óskum kjördæmis síns. Þá hefir og það töluverða þýðingu, að þeir eru kosnir af eldri mönnum en hinir kjördæmakjörnu, engum yngri en 35 ára. Gerir það töluvert meiri festu í kosningunni.
Það er margt, sem mælir með því að láta kjördæmakosningar og landskjör fara fram á sama tíma. Með því myndi fyrst og fremst sparast allmikið fje fyrir þjóðina, því eins og nú hagar til, eru kjördæmakosningar 4. hvert ár og landskjör á þriggja ára fresti. Og eins og allir vita, kostar þetta mikið, — já, svo mikið, að jeg býst við, að fæstir geri sjer í hugarlund, hve dýrt það er, ef alt væri reiknað.
Því verður ekki neitað, að kjördæmaskifting landsins er næsta ófullkomin, sökum þess að kjördæmin eru svo mismunandi mannmörg. Úr þessu bætir landskjörið að því leyti, að þar nýtur hvert kjördæmi þeirra atkvæða í heild. Jeg fyrir mitt leyti sje því ekki, að hægt sje að fækka þingmönnum eða leggja niður landskjörið, nema þá því aðeins, að áður sje búið að koma sjer niður á rjettlátari kjördæmaskiftingu en nú er.
Eftir núgildandi lögum eiga að fara fram kosningar til landskjörs sumarið 1930, einmitt á meðan á hátíðahöldunum á 1000 ára afmæli Alþingis stendur. Það hljóta allir að sjá, hve óheppilegt þetta er. Undirbúningsfundir myndu verða illa sóttir og fjöldi kjósenda fjarstaddir, þegar kjósa ætti. Jeg sje því ekki betur en nauðsyn beri til að gera ráðstafanir til þess, að landskjör fari ekki fram það ár. En það er ekki hægt nema með stjórnarskrárbreytingu, og það helst á þessu þingi, því verði slík breyting látin bíða til næsta þings eða 1929, þá kostar það þingrof og aukakosningar.
Um brtt. einstakra þingmanna ætla jeg ekki að tala nú, en skal aðeins taka það fram, að þar sem hjer er um stjfrv. að ræða og jafnframt stórpólitískt mál, þá væntir meiri hl. þess, að hæstv. forsrh. skýri afstöðu sína til brtt. þessara um leið og hann heldur aðalræðu sína.