25.03.1927
Efri deild: 36. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 3346 í B-deild Alþingistíðinda. (2118)

2. mál, stjórnarskipunarlög

Einar Jónsson:

Jeg gat þess Við 1. umr. þessa máls, að aðalbreytingar stjfrv. mundu vera breytingar, sem þjóðin óskaði eftir. En ef til vill er líka nauðsynlegt að koma með fleiri brtt. við stjórnarskrána, úr því að farið er að breyta henni á annað borð. Þess vegna hefi jeg leyft mjer að koma fram með brtt. á þskj. 192. Hv. 5. landsk. (JBald) mintist á það, að það væri títt um óvana þm. að koma með brtt. við stjórnarskrána, ef svo bæri við, að hún væri til umr. Þetta mun rjett vera hjá hv. þm. Engu að síður hefi jeg nú leyft mjer að koma fram með þessa brtt. mína.

Um þessa brtt., sem fer fram á fækkun ráðherra úr 3 niður í 2, er það að segja, að hún er ekki beint nýmæli. Samskonar till. hefir verið á ferðinni áður hjer í þinginu. Ástæðurnar fyrir því, að jeg ber þessa brtt. fram, eru aðallega þrjár. Í fyrsta lagi vegna þess sparnaðar, er hún hefir í för með sjer. Þó að hv. 4. landsk. (MK) gerir lítið úr hverju einstöku sparnaðaratriði og reikni í því efni með 10 aurum eða 1 kr. á mann, þá verður hann að athuga það, að margt smátt gerir eitt stórt, o. s. frv. önnur ástæðan er sú, að í þetta sinn stendur svo á, að ekki þarf, þó að till. í þessa átt verði samþ., að svifta neinn mann embætti hans. Ráðherrarnir starfa nú aðeins 2 og hafa, að því er virðist, getað komið störfum sínum af engu að síður, og ætti það að geta verið eins í framtíðinni. Jeg skal játa það, að velja þarf vel hæfa menn til þess að gegna ráðherrastörfum, ef þeir eru aðeins 2, en jeg hygg, að til þess verði jafnan gerð tilraun, þegar val á ráðherrum fer fram, enda sama nauðsyn á vali hæfra manna, hvort sem um 2 eða fleiri er að ræða. Þriðja ástæðan er sú, að það er kunnugt orðið, að þjóðin er hlynt og óskar þessarar tilhögunar um tölu ráðherranna.

Þó að brtt. á þskj. 192 sje í 4 stafliðum, þá er hún að efni til ekki nema ein till., um að breyta tölu ráðherranna; en hitt, sem í brtt. getur, er aðeins afleiðing af þeirri breytingu.

Brtt. er auðskilin, og sje jeg því ekki ástæðu til að hafa um hana langt mál. Jeg læt mjer það nægja, að jeg hefi komið fram með hana, og hvernig sem atkvæði um hana falla, þá ætlast jeg til, að hver einasti hv. þm. deildarinnar fari að eigin vilja og óskum kjósenda úti um land, en sje þar ekki með alvöruleysi og hlýðni við aðra. Jeg læt mjer því nægja þessi orð að sinni.