25.03.1927
Efri deild: 36. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 3384 í B-deild Alþingistíðinda. (2127)
2. mál, stjórnarskipunarlög
Halldór Steinsson:
Hv. 4. landsk. (MK) og jeg höfum áður setið saman hjer í deildinni, og jeg sagði honum 1917, að honum væri ekki svarandi, vegna þess að ræður hans væru fullar af öfgum, útúrsnúningum og rangfærslum. Jeg get að vísu ekki alveg tekið eins djúpt í árinni nú, en það stappar nærri, að jeg geti sagt með sanni það sama um hans síðustu ræðu og jeg sagði þá.
Hann sagði, að jeg og hv. þm. A.- Húnv. (GÓ) vildum telja eftir kaup þingmanna. Við komum hvergi nærri því Þarna er dæmi um rangfærslur þessa hv. þm.! Við viljum fækka þingmönnum, en hv. þm. heldur, að við með því sjeum að telja eftir þeim kaupið. Hann var að tala um, að þingmenn ættu að vinna kauplaust, en við myndum því mótfallnir. Nei, við skyldum vera fyrstir manna til að samþykkja það. Hann ætti því að koma með brtt. um það. Við hv. þm. A.- Húnv. myndum fylgja henni. Þá sagði hv. 4. landsk., að jeg hefði sagt, að ekki hefðu valist neinir hæfileikamenn til landskjörsins. Það hefi jeg aldrei sagt. En jeg sagði, að ekki myndu veljast meiri hæfileikamenn til landskjörs heldur en í hin þjóðkjörnu þingsæti. Þarna er einn útúrsnúningurinn enn, og ennþá verri en sá fyrri. Hann sagði, að þetta virtist benda á eitthvert vonleysi hjá mjer yfir að komast ekki í landskjörsstöðu. Jeg veit ekki, hvernig hann getur sjeð það. Mjer fanst jeg ekki lýsa svo glæsilega landskjörinu, að mig langaði nokkuð til þess að komast þar að. En það var einmitt þessi háttv. þm., sem orðinn var vonlaus um að komast í landskjörsstöðu, þar til nú, að honum tókst það með erfiðismunum. Það er því skiljanlegt, að hann geri ráð fyrir vonleysi hjá öðrum, og hann vill ógjarnan missa þennan sess, sem hann svo lengi hefir þráð.
Þá fór hv. þm. að tala um kostnaðinn við landskjörið. En hann reiknaði auðvitað skakt, eins og við var að búast. Komu þar líka fram hjá honum öfgarnar, sem jeg mintist á áðan. Hann gerði nú fyrst og fremst ráð fyrir því, að allir hinir landsk. þm., eða að minsta kosti 5 þeirra, mundu verða úr Reykjavík. (MK: Jeg miðaði við ástandið eins og það er). Það þarf ekki að vera svo. Eru meira að segja líkur til þess, að það verði ekki framvegis. Og með allri virðingu fyrir Reykjavík álít jeg, að finna megi yfirleitt jafnhæfa menn úti um land til þess að taka að sjer landskjörsstöður. En samkvæmt því fjekk hann kostnaðinn aðeins upp í 1500 kr. En það er of lágt. Það er ekki of hátt reiknað, ef tekið er tillit til þess, að sumir þm. sjeu úr Reykjavík og aðrir utan af landi jöfnum höndum, að 2000 kr. komi á hvern þeirra. Kostnaðurinn við þingsetu þeirra verður þá um 11–12 þús. kr., og er þó tekinn hjer undan ýmislegur kostnaður annar. En þar var einmitt veiki punkturinn, sem hv. þm. treysti sjer ekki til að eiga við.
Þann kost taldi hann helstan við landskjörið, að með því fengjust þingvanir menn. Ekki skal jeg neitt um það segja. En hingað til hefir það nú verið svo, að eins oft hafa hjer komið inn óþingvanir þm. Jeg get því ekki sjeð þennan kost. En ef 8 ára þingseta gerir menn þingvana, þá gildir það auðvitað alveg eins þá þjóðkjörna þm., sem endurkosnir eru. Ástæða þessi fellur því af sjálfri sjer. — Þá taldi háttv. þm. það kost, að hinir landsk. þm. þyrftu ekki að líta á hagsmuni einstakra kjördæma, en gætu horft í gleraugun fyrir alt landið. En jeg legg ekki mikið upp úr þessu, enda hefir reynslan sýnt annað. Þetta væri gott og blessað, ef hinir landsk. þm. stæðu utan við öll pólitísk bönd í þinginu. En þar sem þeir eru nú í hinum pólitísku flokkum, þá koma eiginleikar þessir ekki fram hjá þeim, eða geta að minsta kosti ekki notið sín.
Háttv. þm. sagði, að till. mínar væru í afturhaldsáttina. Ef sparnaður er afturhald, þá eru till. mínar það auðvitað, og þá tel jeg mjer líka sóma að því að vera afturhaldssamur í þeim skilningi.
Þá fór nú hv. 4. landsk. að tala um ýms óskyld efni. Mintist hann á draugagang í því sambandi og sagði sögu þar að lútandi. Ef það heyrir til að segja hjer sögur, þá get jeg líka sagt sögu af manni, er var góður flokksbróðir minn um nokkur ár. Loks sálaðist hann úr flokknum, en stuttu síðar skaut honum upp sem mögnuðum draug í öðrum flokki. Jeg veit, að hv. þm. þarf ekki frekari skýringar við til að vita, við hvern jeg á, og mun þá ekki hætta sjer út í fleiri draugasögur.
Það er ekki viðeigandi í þessu sambandi að vera að draga Snæfellinga inn í umr., því að jeg get ekki sjeð, að þeir komi þessu máli við. Það var talað um kyrstöðu hjá þeim, eða að þeim þokaði ekkert áfram. Jeg verð nú að halda því fram, að jeg sje kunnugri Snæfellingum en háttv. 4. landsk., og jeg fullyrði, að þeir standa ekki á lægra menningarstigi yfirleitt en aðrir landsmenn. Þeir hafa jafnvel tekið meiri framförum en aðrir nú á síðari árum. Jeg ætla alls ekki að fara að þakka mjer það neitt sjerstaklega. En jeg veit, að til þeirra, eins og annara landsmanna, hafa komið menningarstraumar, sem þeir engu síður en aðrir hafa verið móttækilegir fyrir. Það er því ástæðulaust fyrir hv. þm. að ætla að slá sig til riddara á þeim. Jeg hygg, að heldur hafi gætt kyrstöðu í því hreiðri, sem 4. landsk. þm. hefir setið í undanfarin ár, og líklega hvorki landi eða þjóð til blessunar.