25.03.1927
Efri deild: 36. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 3388 í B-deild Alþingistíðinda. (2129)
2. mál, stjórnarskipunarlög
Frsm. minni hl. (Ingvar Pálmason):
Jeg átti ókvittaðar ofurlitlar sendingar frá hæstv. forsrh. (JÞ). Jeg varð fyrir nokkrum vonbrigðum hjá honum, því að hann vildi nú ganga frá því, sem jeg þóttist skilja á ræðu hans hjer í dag, að hann teldi æskilegt, að jeg lýsti því yfir, að jeg áskildi mjer rjett til þess að koma fram með brtt. við 3. umr. Af því dró hann líka þá ályktun í síðustu ræðu sinni, að von væri samkomulags frá mjer. (Forsrh. JÞ: Ekki við þessa umr.). Það getur vel verið, að hæstv. forsrh. ætli nú að fara að slá svona úr og í. En jeg verð að slá því föstu, að minni hl. hefir frá byrjun gert sitt ítrasta til þess að samkomulag náist á þessum grundvelli. Hæstv. forsrh. gekk líka út frá því í fyrri ræðu sinni, að þetta samkomulag væri fyrir hendi. En jeg verð nú að líta svo á, að það hafi ekki verið meining hans, heldur bara gamla sagan.
Jeg varð fyrir vonbrigðum, er hæstv. forsrh. vildi ekki kannast við það, að hafa játað í fyrri ræðu sinni, að með ákvæðum 4. gr. frv. væri skertur kosningarrjettur kjósenda. Jeg skrifaði það þá eftir honum. Hann sagði, að þótt lenging kjörtímabilsins kynni að einhverju leyti að sníða utan af kosningarrjettinum, þá mundi það bætast upp með styttingu kjörtímabils hinna landskjörnu. En jeg vil nú spyrja: Hvað er það, sem þarf að bæta upp? Því að ef um bætur er að ræða, þá er auðvitað eitthvað misgert. Mjer finst hæstv. forsrh. hafa með þessu viðurkent, að um skerðingu væri að ræða, enda talaði hann í seinni ræðu sinni um uppbót, sem þyrfti að koma. Jeg hafði því fulla heimild til þess að álíta, að hæstv. forsrh. hafi kannast við, að 4. gr. væri skerðing á íhlutunarrjetti kjósenda um almenn mál.
Þá kom hann að því í fyrri ræðu sinni, að með fækkun fjárlagaþinga fylgdi eðlilega lenging kjörtímabilsins, og vitnaði hann í það, að ef kjörtímabilið væri ekki lengt, þá sætu þm. aðeins á tveim þingum. Jeg sýndi fram á það áður, að þótt fastákveðið sje, að fjárlagaþing skuli háð aðeins annaðhvert ár, þá geti þó eins vel farið svo, að þing verði haldið á hverju ári. Og þótt þm. sitji aðeins á tveim fjárlagaþingum, geta þeir samt komið til með að sitja á fjórum þingum.
Þá sneri hæstv. forsrh. við blaðinu og fór að tala um, að þm. þyrftu að vera fullkomnir í sinni iðn. En jeg hefi nú einmitt skilið hlunnindi kjósendanna svo, að þeir gætu gert upp við umbjóðendur sína, hvort þeir vildu hafa þá áfram eða ekki, en ekki fengist um það, hvort þm. hafi lært á þessari þingsetu sinni. En ef svo væri, þá væri auðvitað best, að þeir sætu á sem flestum þingum. — Annars eru nú fjögur ár altaf jafnlangur tími, hvort sem haldin eru á þeim fleiri eða færri þing. En það er víst, að aðstaðan getur breyst svo á þessum fjórum árum, að nauðsynlegt sje fyrir kjósendur að geta átt kost á að gera upp við þm. sína. Þótt fjárlagaþing sjeu haldin annaðhvert ár, þá þarf afleiðingin alls ekki að vera sú, að kjörtímabilið lengist.
Hæstv. forsrh. benti á, að þm. úr Framsóknarflokknum hefðu borið fram á þinginu 1924 till. um lenging kjörtímabilsins. Hv. 1. þm. Eyf. (EÁ) hefir nú leiðrjett þá missögn. (Forsrh. JÞ: Það var engin missögn). Það getur verið, að svo megi segja, en jeg læt þá hæstv. forsrh. og hv. 1. þm. Eyf. um að útkljá það. En jeg held nú, að hæstv. forsrh. hafi mint, að hann væri að tala við sína flokksmenn. Jeg tel mig ekki bundinn við það, sem mínir flokksbræður kunna að hafa sagt eða gert einhverntíma. Er því þýðingarlaust að vera að benda á það, enda þótt það væri rjett haft eftir, sem jeg álít nú ekki, því að jeg tel skýringu hv. 1. þm. Eyf. alveg rjetta.
Í lokin held jeg svo, að það hafi dottið upp úr hæstv. forsrh., hvað á bak við þetta alt liggur. Hann sagði, að það gæti farið svo með þessu fyrirkomulagi, að landsk. þm. gætu orðið þess valdandi, að stjórn, sem hefði að baki sjer meiri hluta kjósenda, fengi ekki meiri hluta í þinginu. Það skyldi nú ekki vera svo, að þarna sje rúsínan? Jeg ætla ekki að leiða neinum getum að því. En jeg get ekki skilið þetta nema á þann eina veg, að það eigi við það, að kosningar þær, sem fram eiga að fara áður en langt um líður, geti haft þau áhrif á stærsta flokk þingsins, ef landskjörið helst óbreytt, að hann nái ekki meiri hluta. Hitt getur ekki komið til mála, að það eigi við aðra flokka, því að til þess yrði breytingin að verða töluverð. Ef þetta er ekki svo, þá leiði jeg hest minn frá því að skilja, við hvað hæstv. forsrh. átti.
Jeg held jeg hafi ekki átt ókvittað fyrir meira frá hæstv. forsrh. En út af orðum hv. þm. A.-Húnv. (GÓ) viðvíkjandi síðustu málsgr. 1. gr. og síðari málsgr. 4. gr., um að hann hefði ekki heyrt á þetta minst af nefndarhl., langar mig að segja fáein orð. Þessar gr. segja, að með einföldum lögum megi breyta því aftur, sem hjer er farið fram á að breyta, og þannig sjeu þessi atriði alveg tekin út úr stjórnarskránni. Það er alveg rjett hjá hv. þm. A.-Húnv., að þetta er varhugavert. En jeg vil benda á, að í nál. minni hl. er bent á þetta. Jeg þarf ekki að sýna fram á þetta nema að því er snertir 1. gr., því að 4. gr. leggur minni hl. til að fella burt. — Eins og sjest á nál., telur minni hl. þetta ákvæði síðustu málsgr. 1. gr. óviðeigandi. Getur hv. þm. (GÓ) sjeð það, ef hann les nál., að minni hl. hefir einmitt athugað þetta. Jeg játa, að við höfum ekki viljað gera þetta að neinu ágreiningsatriði. Við höfum yfirleitt ekki viljað gera neitt að ágreiningsatriði, er gæti orðið þess valdandi, að hinar nauðsynlegu umbætur, sem hjer um ræðir, nái ekki fram að ganga.
Jeg ætla nú að láta sitja við þetta, enda mun fyrirfram ákveðið, hvernig atkvgr. fer, svo að ekki er ástæða til að halda lengur vöku fyrir mönnum. Jeg hefi gert grein fyrir till. minni hl., og er þá tilganginum náð.