30.03.1927
Efri deild: 40. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 3427 í B-deild Alþingistíðinda. (2141)

2. mál, stjórnarskipunarlög

Jón Baldvinsson:

í raun og veru getur maður sagt, að sömu gallarnir sjeu á brtt. minni hl. og á 5. gr. stjfrv. En til þess að þetta verði að því gagni, sem tilætlunin er, hefði átt að setja bráðabirgðaákvæði inn í stjórnarskrána um það, að ef stjórnin ætlar að láta ákvæðið um varamennina ganga í gildi, þá hefðu átt að koma inn ákvæði um stundarsakir, sem næðu til landsk. þm., sem kosnir eru eftir eldri ákvæðum.

Samskonar bráðabirgðaákvæði ættu að vera við brtt. minni hl., sem segðu til um það, hvenær þessar tvennar kosningar færu fram saman í fyrsta sinni. Þetta hvorttveggja eru formgallar. Og það væri meiningarlítið af stjórninni að breyta þessu, ef það ætti ekki að gilda um þá, sem áður eru kosnir. Þegar nú er verið að breyta stjórnarskránni, væri ekki úr vegi að gera sjer grein fyrir því, hvað þýða orðin í síðari málslið 5. gr., sem segja, að þegar landskjörinn þingmaður forfallast, skuli varamaður hans taka þingsæti hans. Það væri ekki úr vegi, að hæstv. forsrh. skýrði, hvað stjórnin á við með þessu ákvæði. Jeg veit það vel, að þetta er tekið upp úr eldri stjórnarskrá, en það var sett inn í hana vegna deilu, er reis upp, þegar Hannes Hafstein hætti að sitja á þingi og varamaður hans kom í hans stað. En það er rjett að ræða um það, hvort í þessu á að felast það, að landsk. þm. geti vikið af þingi og komið aftur, eða hvort hann fari endanlega frá, ef hann einu sinni hefir vikið af þingi og varamaður hans komið í hans stað. Þetta þarf að gera sjer ljóst, og sje stjórnarskráin hjer ekki nógu ljós, þarf að lagfæra það. Það er ekkert sagt um það, á hvaða hátt varamaður á að koma, ef aðalmaður forfallast. Það gæti meira að segja verið ástæða til að ræða það, hvort landsk. þm. getur farið í eitthvert kjördæmi, verið þm. þess út kjörtímabilið og svo tekið aftur sæti sitt sem landskjörinn. Það er rjett að athuga, hvað felast á í þessum ákvæðum.

Þótt jeg hafi nú rætt um þetta og fleiri brtt. við frv., þá er það ekki af því, að jeg ætli að veita frv. fylgi mitt, heldur tel jeg rjett, að um það sje rætt, hvað í hinum einstöku ákvæðum frv. eigi að felast, því að skyldi svo óheppilega vilja til, að frv. slampaðist gegnum þingið, þá er betra að vita, hvað verið er að fara með, til þess að þurfa svo ekki að fara að breyta stjórnarskránni aftur á næsta þingi.

Annars felast í frv. ákvæði, sem flestöll miða að því að minka áhrif þjóðarinnar á þingið. Það er fyrir áhrif, sem komin eru annarsstaðar frá og sem gætir meira í hinum minna mentuðu Suðurlöndum, þar sem þingræðið er ekki haft í eins miklum heiðri og í hinum betur mentuðu löndum Norður-Evrópu. Þessi hugsun, að fjarlægja þjóðina þinginu, er flutt inn alveg ótolluð sunnan úr löndum með Spánarvínunum. Og þessara suðrænu áhrifa gætir hjer, vegna þess að ýmsir menn hafa litið aðdáunaraugum til stjórnarherranna suður þar.

Fyrrum tíðkuðust suðurgöngur, þegar æðsti yfirmaður kirkjunnar sat í Rómaborg. Þá fóru menn til hans til þess að sækja sjer trúarstyrk og fá aflausn synda sinna. En á síðustu tímum hafa ýmsir stjórnarherrar tekið upp þessar suðurgöngur, ekki til þess að fá aflausn synda sinna hjá páfanum, heldur til þess að heimsækja hinn mikla íhaldspostula í Rómaborg, Mussolini, til þess að fá nýjan styrk og nýjar skoðanir í stjórnmálum. Ein slík suðurganga var farin rjett fyrir síðustu kosningar, þegar einn helsti stjórnmálamaður þessa lands fór suður til þess að nema stjórnfræði Mussolinis. (Forsrh. JÞ: Þeir voru nú fleiri en einn; hv. þm. má ekki gleyma forseta sameinaðs þings). Jú, fleiri en einn fóru, sumir þeirra hafa staðist freistingarnar, aðrir fjellu fyrir þeim. En hjá þessum eina virtist það falla í góðan jarðveg, sem hann heyrði og sá hjá Mussolini. Það hefir kannske verið eftir áheiti, að hann fór suður, ef hann ynni kosningarnar. Hann mun hafa fengið meira fylgi en hann bjóst við. Og ekki var það lengi að sýna sig, að hann hafði lært vel á Ítalíuferð sinni, því að strax og hann kom til Khafnar, fór hann að gera ráðstafanir um, hvernig ætti að stýra ríkinu. Hann kjöri sig í sínum eigin hug að forsrh. og fór að skipa bankastjóra og fáðstafa konungsritaraembættinu og öðru, sem hann ætlaði að haga til í sínu nýja ríki eftir hinum nýju stjórnmálakenningum sínum.

En þegar hann kom norður í kuldann, þá voru menn ekki eins ginkeyptir fyrir þessum kenningum og þessi herra hafði búist við, því að þótt hann gerði ærlega tilraun í heilan mánuð til þess að ná stjórnartaumunum, þá tókst honum það ekki að komast í efsta valdastólinn, en varð að láta sjer nægja það að setjast í 3. tröppu. Þar hefir honum nú auðnast að sitja, og jeg efast ekkert um það, að kenningar hans hinar mussolinsku hafa mátt sín mikils í stjórninni, því að frv. hennar bera þess merki, þótt jeg ætli ekki að hrella hann með því að nefna þau. En þessu hefir nú haldið áfram og lukkan verið sú, að nú er hann orðinn æðsti maður þjóðarinnar. Og nú á að fara að „praktisera“ Mussolini. Og það fyrsta af því tægi, sem í þá áttina gengur, er stjórnarskrárfrv., sem hjer liggur fyrir. Það færir völdin í landinu í hendur tveggja manna um lengri tíma, svo að þjóðin hefir ekkert að segja. Verði það ofan á, að þing verði aðeins annaðhvert ár, þýðir það einræði stjórnarinnar um allar athafnir hennar, sem er í fullu samræmi við stjórn Mussolini, að lofa stjórnarherranum að ráða mestu um allar framkvæmdir. Næsta sporið verður svo auðvitað það að senda þingið heim. En það, sem hjer er byrjað á, er 1. sporið. Og þetta er sú framkvæmd, sem á ítök í stærstu flokkum þingsins, þótt merkilegt sje. Og annar þessara flokka, Framsóknarflokkurinn, virðist láta sjer þetta vel líka. En samt hefi jeg grun um, að þeir ætli ekki allir í þeim flokki að vera þessu máli trúir, þótt þeir láti ekki annað uppi en að þeir vilji samþykkja frumvarpið.

Það er stundum sagt, að við megum ekki gera þetta eða hitt, vegna þess, hvernig litið yrði á það hjá öðrum þjóðum. En ef nú má marka það, sem stendur í frjálslyndum blöðum á Norðurlöndum um þetta mál, þá er það að segja, að yfir þessu stjórnarskrárfrv. hæstv. stjórnar er kveðinn upp hinn harðasti dómur af þeim blöðum og kalla frv. eitt hið svartasta íhald, að flytja þingið undan áhrifum þjóðarinnar og minka vald þess. Og þau álíta þetta vera spor í öfuga átt við það, sem allar Norðurlandaþjóðirnar nú keppa að. Samþykt þessa frv. myndi gefa þeim til kynna, að hjer á landi rjeði þjóðin engu, heldur ráði hjer öllu fáeinir stjórnarherrar, er láti þingið ekki koma saman nema örsjaldan. Þetta gæti hæglega orðið til þess, að þeir tortrygðu okkur um, að við værum að hneigjast í einveldisáttina, til þess stjórnskipulags, sem þeir fordæma, en sem tekið hefir verið upp á Spáni og Ítalíu.

Að þetta stjórnarskrárfrv. sje eitthvað í sambandi við stjórnarfarið suður á Ítalíu, það gæti gefið ljósa hugmynd um atvik, sem nýlega kom fyrir hjer í Reykjavík. Einn af okkar sögufróðu mentamönnum í Íhaldsflokknum hjelt fyrirlestur um Mussolini, og þar sem þessi maður er sögufróður, hafði hann út frá þekkingu sinni á veraldarsögunni kynt sjer slíka menn sem Mussolini, að þeir hvorki yrðu langgæðir nje að þjóðunum stæði gagn af þeim, enda þótt þeim tækist að skapa sjer orðróm í bili, því að er til lengdar ljeti, hefðu þjóðirnar ekkert annað en bölvun af þeim. Og þessi maður lýsti Mussolini með dökkum litum út frá söguþekkingu sinni. Nú er mjer sagt, að hæstv. forsrh. hafi risið öndverður gegn þessum manni og þeim dómi, er hann hafði felt, og mótmælt honum, og ennfremur að fjölmargir íhaldsmenn hafi líka látið mjög illa yfir honum. Þetta virðist benda til þess, að hæstv. ráðh. ætli að semja sig að siðum Mussolini og íhaldsins í Rómaborg og að stjórnarskrárfrv. hans sje fyrsta sporið í þá átt. Hann reyndi einu sinni að ná völdum, og einu sinni áður er búið að breyta stjórnarskránni. Þetta er 3. tilraunin, og ráðherrann verður líklega til þess hún takist að gera áheit og segja eins og Hrafn inn rauði í Brjánsbardaga, þegar honum þótti hann nauðulega staddur: „Runnit hefir hundr þinn, Pjetr postoli, til Róms tvisvar ok myndi renna hit þriðja sinn, ef þú leyfðir“. Eitthvað þessu líkt get jeg til, að renni í hug ráðherranum, og það getur verið, að hann þurfi að fara þrisvar til Ítalíu til þess að komast að fullri niðurstöðu með það, hvernig ætti að breyta stjórnarskrá Íslands í íhaldsáttina.