04.05.1927
Neðri deild: 66. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 3560 í B-deild Alþingistíðinda. (2188)

2. mál, stjórnarskipunarlög

Tryggvi Þórhallsson:

Jeg get ekki látið hjá líða að blanda mjer ofurlítið í þau orðaskifti, sem fram hafa farið á milli hæstv. forsrh. og hv. 1. þm. Reykv.

Það er enginn líklegri en hæstv. forsrh. til þess að telja það stórt atriði, að fjárlögin, sem betur fer, hafa fengið leiðrjettingu í hv. Ed., enda stóð það líka til að lagfæra frv. hjer, þegar það kæmi hingað aftur.

Það er eins og hæstv. forsrh. vilji segja, að það hefði staðið mikið til, ef fjárlagafrv. fengi ekki þessa leiðrjettingu. (Forsrh. JÞ: Það sagði hv. 1. þm. Reykv.). En það, sem hlýtur að vera efst í huga allra landsmanna, er það, hvernig fjárlög hæstv. stjórn hefir leyft sjer að bera fram ár eftir ár, og þrjú síðustu árin með 21/2 milj. króna hærri útgjöldum en áður voru, og að hún hefir lagt á landsmenn 4 milj. kr. hærri skatta en vant var áður. Að þessi sama stjórn hefir svo látið sjer detta það í hug út af örfáum tugum eða hundruðum þúsunda að rjúfa þing vegna afgreiðslu fjárlaganna, er blátt áfram hlægilegt, þegar um þá stjórn er að ræða, sem hefir slíkan syndabagga á bakinu.