04.05.1927
Neðri deild: 66. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 3563 í B-deild Alþingistíðinda. (2191)
2. mál, stjórnarskipunarlög
Frsm. meiri hl. (Jakob Möller):
Eins og jeg sagði áðan, hafði jeg ekki trúað á þennan söguburð, en vildi þó fá umsögn hæstv. stjórnar um þetta, og meðfram af því, að mjer skildist, að þessi söguburður væri til kominn í þeim miður heppilega tilgangi að gera stjórnina mikla. Mjer finst nú söguburðurinn verka alveg öfugt, en það er nú kannske álitamál og fer eftir því, hvaðan hann hefir borist. Jeg tek svör hæstv. forsrh. svo, að stjórninni hafi ekki dottið þetta í hug og ekki viðhaft nein slík ummæli, sem hefðu getað gefið tilefni til þessa söguburðar. En hitt getur auðvitað komið til mála, að ágreiningur verði milli þings og stjórnar út af ýmsu. En að ætla að fara að grípa til þess að rjúfa þing rjett áður en kosningar eiga að fara fram, það finst mjer alveg tilgangslaust, nema þá að stjórnin neiti að taka við fjárlögunum, verði ekki breyting á þeim gerð. Jeg hefi bent á það, að það væri skoplegur sparnaður að ætla að stofna til aukaþings út af 300 þús. kr. tekjuhalla.