08.03.1927
Neðri deild: 24. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 7 í C-deild Alþingistíðinda. (2238)

10. mál, heimavistir við Hinn almenna menntaskóla

Ásgeir Ásgeirsson:

Jeg á hjer litla brtt. þess efnis, að lagaheimildin verði ekki bundin við núverandi lóð mentaskólans. Þar með á jeg ekki við það, að húsið megi ekki byggja á lóð skólans, ef það verður álitið heppilegt, heldur að landsstjórn og skólastjórn verði frjálst að velja um, hvar húsið verði reist. Með þessu er aðeins verið að benda á, að fleiri staðir geti komið til greina. Það þarf að sjá fyrir því, að skólinn með heimavistum hafi næga lóð til frambúðar, en jeg efast um, að núverandi lóð mentaskólans sje nægilega stór. En það virðist liggja vel við, að stækka hana, og ef það ráð verður tekið í tíma, býst jeg við, að enginn staður væri heppilegri fyrir heimavistirnar eða sjálfsagðari. En það virðist heldur ekki vera nein frágangssök, að byggja húsið nokkurra mínútna gang frá skólanum. Aðalatriðið er að hafa nægilegt landrými til leikja og íþróttaiðkana fyrir skólanemendur. Hefi jeg oft áður lýst þeirri skoðun minni, að meira sje undir því komið, að glæða íþróttir og fjelagslíf í skóla þessum, heldur en þótt breytt yrði um eina eða tvær námsgreinir.