08.03.1927
Neðri deild: 24. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 37 í C-deild Alþingistíðinda. (2251)

10. mál, heimavistir við Hinn almenna menntaskóla

Atv.- og dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Hv. þm; Str. (TrÞ) vill altaf vera spámaður og er nú að geta í eyðurnar um það, hvernig fjárhagsástæðurnar verði 1928. En um þetta efni veit hann ekkert fremur en jeg. Það getur vel verið, að hægt verði að byggja heimavistarhús fyrir mentaskólann 1928, enda þótt hv. þm. (TrÞ) trúi því ekki.

Því, sem hann var að tala um sveitapiltana, get jeg svarað þannig, að jeg þekki miklu betur til þeirra heldur en biskupssonurinn, hv. þm. Str. (TrÞ), af mölinni í Reykjavík.