24.02.1927
Neðri deild: 14. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 77 í C-deild Alþingistíðinda. (2270)
36. mál, bann gegn næturvinnu
Ólafur Thors:
Jeg gat því miður ekki haft þá ánægju, að heyra framsöguræðu hv. flm. (HjV), en fjekk aftur á móti þá óblöndnu ánægju, að heyra svarræðu hans til hv. 3. þm. Reykv. (JÓl). Ræðu þessa hv. þm. (JÓl) heyrði jeg að vísu ekki, en jeg þykist vita, að hann hafi fært þau rök fyrir máli sínu, sem hann stendur manna best að vígi til að flytja. En jeg verð að segja það, þegar hv. flm. (HjV) er að tala um þetta mál og sannanir sinar fyrir rjettmæti þess, þá kom mjer í hug, að nú syngi við annan tón í hv. þm. (HjV) en fyrir skemstu, er við áttum tal um málið. Samningaumleitanir um kaupgjald stóðu þá yfir milli útgerðarmanna og verkamfjel. , Dagsbrúnar“. Hv. 4. þm. Reykv. (HjV) og hv. 5. landsk. (JBald) sögðu þá báðir, að það væru margir menn, sem sæktu sjerlega eftir þessari vinnu, vegna þess, að hún væri svo vel borguð, og með því að þetta er svo, þá þykir mjer það með öllu óviðeigandi, að löggjafarvaldið fari að gripa hjer inn í, þvert ofan í vilja hlutaðeigandi einstaklinga og þarfir þjóðfjelagsins. Þegar jeg sá þetta frv., varð mjer að orði: „höggur sá, er hlífa skyldi“, og þótti mjer undarlegt, að hv. flm. (HjV) skyldi vera að ráðast á þá menn, sem hafa stutt hann til þingsetu. Ef hjer er svo mikið nauðsynjamál á ferðinni sem af er látið, þá finst mjer, að hv. þm. (HjV) geti gripið til þess ráðs, að láta það fjelag, sem hjer á hlut að máli, verkamannafjelagið „Dagsbrún“, gera samþykt um að banna næturvinnu. Fjelagið hefir til þessa ekki vílað fyrir sjer að skamta verkamönnum kaup, án samþykkis atvinnurekenda, svo því er engan veginn ætlað að leggja út á nýja braut. Mjer segir nú svo hugur um, að hv. þm„ sem er formaður „Dagsbrúnar“, vilji hliðra sjer hjá að láta ræða málið í fjelaginu, af því hann veit, að skoðanirnar eru mjög skiftar, en mjer sýnist ástæðulaust, að löggjafarvaldið leysi vandræði hans. Jeg skora á hv. þm. að boða til fundar í „Dagsbrún“, auglýsa vel umræðuefnið og leggja svo fyrir hv. deild fundarsamþykt, er sýni, að það sje óskiftur vilji fjelagsmanna, að næturvinna sje lögbönnuð. Geri hv. þm. (HjV) þetta, mun jeg reiðubúinn að athuga málið að nýju. — Þessi hv. þm. (HjV) gat um áskriftalista til Alþingis, seni komið hafi, þegar „vökulögin“ voru á ferðinni. Jeg verð að segja, að það væri ráð að gera þetta líka núna, og þá sjerstaklega að afla áskrifta frá þeim mönnum, er sjálfir vinna næturvinnu. Jeg skal vera hv. þm. hjálplegur með upplýsingar um, hvaða menn það eru hjá því útgerðarfjelagi, er jeg starfa við. Ef hv. 4. þm. Reykv. (HjV) kæmi með þessa lista, mætti fara að athuga málið. En það er annars ákaflega spaugilegt með þessa áskriftarlista og áskoranir, sem eru að berast utan af landi. Þetta er alt búið til og samþykt í 40 manna „fulltrúaráði“ hjer í Reykjavík. Síðan fer Jón Baldvinsson, sem nú er 5. landsk., í símann, sendir út þessa áskorun til allra verkalýðsfjelaga á landinu, ásamt áskorun um að senda hana aftur. Svo kemur áskorun til Jóns Baldvinsson frá „Verkamannafjelaginu á Húsavík“, og nokkrir hestburðir af öðrum áskorunum. Jón Baldvinsson verður sennilega ekki mjög hissa, því að allar áskoranirnar sendir hann út um landið fám dögum áður.
Eftir þeim kafla af ræðu hv. þm. (HjV), sem jeg heyrði, sje jeg ekki ástæðu til að ræða við hann, bráðókunnugan manninn, um nauðsyn þess, að hafa stundum næturvinnu við afferming og ferming botnvörpunga í aprílmánuði.
Þessar athugasemdir vildi jeg aðeins gera hv. þm. (HjV) til athugunar; vil jeg bæta því við, að það er einkennilegt, að maður, sem leyfir sjer að flytja slíkt frv., sýnist bera miklu minna skyn á þessi málefni heldur en fjöldinn allur af kjósendum hans.