24.02.1927
Neðri deild: 14. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 82 í C-deild Alþingistíðinda. (2273)

36. mál, bann gegn næturvinnu

Ólafur Thors:

Hv. flm. (HjV) var að reyna að gefa mönnum í skyn, að jeg hefði farið með einkamál inn í umræðurnar, þegar jeg hafði það eftir honum, að margir í „Dagsbrún“ óskuðu heldur eftir næturvinnu en dagvinnu. Þetta er rangt hjá honum. Auðvitað hafa fallið einhver orð um þetta á heimilum okkar beggja, en bæði hv. flm. (HjV) og aðrir hafa þráfaldlega sagt þetta opinberlega, bæði í samninganefndum og annarsstaðar. Jeg tek þetta aðeins fram til að bera af mjer þær sakir, að jeg hafi sýnt slíkan ódrengskap sem þann, að blanda leynilegum einkaviðræðum inn í umræður á þingi.

Hv. flm. (HjV) hjelt, að hægt yrði að koma með samþyktir frá verkamannafjelögunum, um að þau væru móti næturvinnu. Mjer þykir nú takmörkuð sönnun í slíkum samþyktum, en þó þætti mjer nokkurs vert, ef hv. flm. (HjV) reyndi að fá slíkt samþykt á opinberum fundi og berðist þar eins og hetja fyrir sínu máli. En helst væri eitthvað hægt að sanna með því, ef hann kæmi með samþykt frá þeim mönnum, sem sjálfir vinna næturvinnu. Jeg hefi lofað að vera honum hjálplegur með að segja honum, hverjir það eru a. m. k. hjá „Kveldúlfi“.

Hv. flm. (HjV) sagði, að jeg talaði í óþökk kjósenda minna, því að þeir væru alveg samþykkir Reykvíkingum um þetta efni. Jeg skal fúslega vera samþykkur síðara atriðinu, að þeir sjeu Reykvíkingum sammála. En hvað vilja Reykvíkingar? Þeir vilja einmitt hafa næturvinnu, og Hafnfirðingar vilja það áreiðanlega líka. Af þessu leiðir vitanlega það, að fyrra atriðið er rangt hjá hv. þm. (HjV), og að jeg er einmitt í besta samræmi við kjósendur mína, án þess að jeg láti vilja þeirra nokkur áhrif hafa á sannfæring mína í málinu.

Þá sagði hv. flm. (HjV) eitt orð, sem jeg vil ekki, að sje ómótmælt. Var það áreiðanlega ekki sagt af því, að hv. þm. vissi ekki betur, eins og svo margt hjá honum, heldur var það mælt af illgirnislegum vanmætti. Hann sagði, að stundum, þegar unnið hafi verið við affermingu togara alla nóttina, lægju skipin aðgerðalaus í marga daga aðeins af því, að skipstjóri þyrfti að hafa sína hentisemi í landi. Þessi ummæli eru bæði ómakleg og svívirðileg um skipstjórana. Vil jeg harðlega mótmæla þeim og veit, að hv. þdm. trúa mjer betur í þessu efni en hv. flm. (HjV).

Að endingu vil jeg benda á, að með þessu frv. er verið að reyna að þvinga tvo aðilja til samninga, sem báðum eru á móti skapi og báðum gera skaða. Margir vilja heldur vinna næturvinnu en dagvinnu, sakir hins háa kaupgjalds; þá á að svifta leyfi til vinnunnar. Útgerðin þarfnast þessarar vinnu. Hún biður um hana, af því að hennar er brýn þörf. Annars mundi hún ekki greiða fyrir hana tvöfalt kaupgjald.

Þeim bændum, sem hjer eiga sæti, vil jeg benda á að athuga, hvað þeim þætti um, ef þingið vildi banna þeim að þurka hey á sunnudögum. Og þó er sá mikli munur á þessari vinnu og sunnudagsvinnu bænda, að útgerðarmenn greiða tvöfalt kaup fyrir næturvinnu, en bændur borga ekkert fyrir sunnudagavinnuna. (MT: Svo!?).

Jeg skora á hv. deild að fella þetta frv. strax og láta það ekki fara til fleiri umræðna.