10.03.1927
Efri deild: 24. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 91 í C-deild Alþingistíðinda. (2282)

75. mál, ölvun embættismanna, skipstjóra o.fl

Ingvar Pálmason:

þetta frv. þykir máske nýstárlegt, af því að lítið sje um slík ákvæði í lögum áður. En jeg vil minna á, að nú á seinni árum hefir brytt á samskonar stefnu, þar sem jeg man ekki betur en að svipuð ákvæði sjeu í lögum og snerta bifreiðastjóra. Það virðist því ekki vera alveg nýtt, að löggjafarvaldið finni ástæðu til að setja einhver slík lög. Jeg veit ekki betur en þessum ákvæðum um bifreiðastjóra hafi verið vel tekið, bæði af þeim sjálfum og eins hinum, sem hafa þurft að nota bifreiðarnar. Þetta virðist benda á, að slík löggjöf sje rjettlát.

Jeg ætla ekki að tilfæra nein dæmi um áfengisnautn embættismanna og annara sýslunarmanna. Jeg hygg, að hver og einn af hv. þdm. hafi orðið var við slíkt, svo að jeg tel það óþarft. Aðeins vil jeg mælast til, að hv. deild taki þessu frv. vel. Það er sjálfsagður hlutur, að í þessu máli er rjett að viðhafa alla varasemi og gætni. Annars sje jeg ekki ástæðu til, á þessu stigi málsins, að fara frekar út í það. Öðru máli er að gegna, ef frv. sætti andmælum. Þá mundi jeg telja mjer skylt að rökfæra ástæðurnar fyrir því, að það er fram komið.