08.03.1927
Efri deild: 22. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 112 í C-deild Alþingistíðinda. (2297)
77. mál, útflutningsgjald
Jóhann Jósefsson:
Það er nú altaf dálítið einkennilegt að vera að ræða um frv. eða till., sem ekki er fram komin.
Frv. á þskj. 127 virðist fram borið til þess að ljetta af öllu útflutningsgjaldi af öðrum höfuðatvinnuvegi þjóðarinnar, og um annað er ekki verið að ræða. Það kemur ekki heldur annað fram í ræðu hv. flm. (JJ) en að frv. beri svo að skilja, að landbúnaðurinn sje undanskilinn útflutningsgjaldi.
Jeg hefi ekkert um það sagt, að landbúnaðurinn eigi eilíflega að bera þennan eða annan skatt. En hitt finst mjer undarlegt, að sami hv. þm., sem á þingi 1925 hafði framsögu í því, að ráðstafa þessum tolli, skuli nú flytja frv., sem fer í þveröfuga átt við það, sem þá var samþ. og hann viðurkendi þá, að væri rjett.
Jeg mintist ekkert á varðskipin; það mál er ekki til umr. nú, enda mun síðar gefast tækifæri að tala um þau. Jeg var heldur ekki með neinar aðdróttanir í hans garð um stuðning hans við strandvarnarmálið. En eitthvað ber það vott um lítið hlýjan hug til strandvarnarskipanna, þessi orð, sem frá honum fjellu um óþarft starfsmannahald á þeim, en um það veitist eflaust tækifæri að tala síðar.
Jeg sje enga ástæðu til að eyða fleiri orðum við hv. flm. (JJ). Jeg treysti svo rjettsýni hv. þdm., að þeir sjái, að frv. eins og þessu beri á engan hátt að sinna.