28.02.1927
Neðri deild: 17. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 183 í B-deild Alþingistíðinda. (230)
13. mál, uppkvaðning dóma og úrskurður
Atv.- og dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):
Það er sama um þetta frv. að segja og það, sem verið var að afgreiða, að það er hingað komið frá hv. Ed., eftir að vera þar samþ. breytingarlaust,
Jeg sje ekki ástæðu til að fara út í hin einstöku ákvæði þess, enda er að þeim vikið í athugasemdum þeim, sem í fylgja. Aðeins vil jeg geta þess, að breyting þessi, nái hún fram að ganga, hefir talsverðan sparnað í för með sjer fyrir ríkissjóð, þegar setudómara er leyft að kveða upp dóma í máli heima hjá sjer, þó að málið hafi hinsvegar verið rekið utan þinghár hans eða lögsagnarumdæmis.
Það hefir oft orðið tilfinnanlega dýrt að senda setudómara langa vegu, t. d. að vetrarlagi, til þess að kveða upp dóm, sem hann hefir að öðru leyti samið heima hjá sjer.
Þessi breyting getur líka orðið til þess að spara aðiljum málskostnað, því að þeim má á sama standa, hvar dómurinn er kveðinn upp, aðeins að þeim sje gert það á sem ódýrastan hátt.
Það ákvæðið, sem felst í 1. gr. frv., hefir minni þýðingu, en stefnir þó í sömu átt, að spara ríkissjóði og aðiljum óþarfa málskostnað.
Frv. þetta var í. allshn., hv., Ed., og geri jeg það að minni till., að því verði að umr. lokinni vísað til allshn. þessarar hv. deildar. (KIJ: Það þarf enga nefnd). Það var í nefnd í hv. Ed., og þar sem ekki er lengra liðið á þingtímann, virðist mjer rjett, að það sæti sömu afgreiðslu hjer. Annars hefi jeg ekkert á móti því fyrir stjórnarinnar hönd, þó að það fari áfram nefndarlaust.