22.03.1927
Efri deild: 34. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 142 í C-deild Alþingistíðinda. (2320)
63. mál, forkaupsréttur kaupstaða og kauptúna á jörð í nágrannahreppi
Jón Baldvinsson:
Það má ekki minna vera heldur en að jeg víki einhverju að hv. landbn., fyrir meðferðina á þessu frv. mínu, en það verður misskift. Jeg finn ástæðu til þess að þakka hv. 2. þm. S.-M. (IP) fyrir vilja hans til að sinna niálinu, sem hann telur þess vert, að verði samþykt, þó að háttv. þm. (IP) sje ekki að öllu leyti samþykkur orðalagi frv.
Jeg vil þá, frá mínu sjónarmiði, færa fram góðar og gildar ástæður fyrir því, að þetta frv. gæti orðið að gagni, og fá lýst því, sem liggur í augum uppi, hvílík nauðsyn það er fyrir kauptún að eignast jarðir í kringum sig, til þess að geta látið íbúa sína fá land til ræktunar, ekki aðeins til þess að fá þá auknu framleiðslu á landbúnaðarvörum, sem þeim er nauðsynlegust, nefnilega mjólk, heldur líka til þess að geta látið menn fá þar atvinnu, þegar svo ber undir.
Aftur á móti get jeg ekki þakkað hv. meiri hl. nefndarinnar meðferð hans á málinu, því að hann vill sálga því með öllu. Nú hafa nær allir deildarmenn talað um þetta frv. mitt, og skifst í tvo flokka, sumir vilja styðja það, en sumir fella það, en ástæðurnar, sem fram hafa komið, hafa allar bent í þá átt, að hvort sem þetta frv. yrði samþykt eða ekki, þá væri nauðsyn á því, að kaupstaðir og kauptún eignuðust sem mest af nærliggjandi jörðum. En ótti andstæðinga frv. er bygður á því, að kauptúnin muni nota forkaupsrjett sinn til þess að eignast jarðir, sem þau ekki hefðu annað við að gera en að koma þangað þeim mönnum, sem þau vildu losna við, með því að koma þeim yfir í annað sveitarfjelag. Jeg held nú, að slikt sje ekki alment. Náttúrlega kann að hafa komið fyrir, að þetta hafi einhvern tíma verið gert. En ef athuguð er meðferð sveitarmálefna á síðari árum, þá held jeg, að hv. þdm. muni fljótlega sannfærast um það, að slík hrekkjabrögð um fátækraframfæri hafa ekki verið mest af hendi kaupstaðanna.
Hv. 1. þm. G.-K. (BK) og fleiri hafa talað um, að það hefði átt að felast hjer rjettur til þess að taka jarðir eignarnámi, en það er svo hæpið að samþykkja með almennum lögum slíkar heimildir, af því að ákvæði stjórnarskrárinnar eiga að ráða, og geta verið því til fyrirstöðu. (BK: Það var sagt, að þegar þetta ákvæði væri ekki í frv., þá væri það gagnslaust). En það veit hv. þm. (BK) vel, að þetta var ekki hægt að setja í frv. (BK: Já, og þess vegna er það gagnslaust). En hvers vegna eru þá hv. þm. á móti frv., þegar þeir vita, að kaupstaðirnir þurfa að eignast land, en vilja þó ekki láta þá fá rjett til að fylgjast með sölu á þeim jörðum, sem í nágrenni eru? Hv. frsm. meiri hl. nefndarinnar (JKr) játaði, eins og jeg hefi bent á, að öll kauptún þurfi að ná í jarðir til ræktunar, en hann hefir ekki trú á þessari aðferð og vill hafa frjálsa verslun með þær. En það er nú svo, eins og bent hefir verið á í umræðunum, að með þessu móti eru jarðirnar kannske síður sprengdar upp, því að annars gæti vel farið svo, að kaupstaðirnir færu að sprengja jarðirnar upp. En með þessu móti fá þeir vitneskju um, hvenær þær eru til sölu, og þurfa ekki að gera yfirboð, og jeg álit, að hið opinbera eigi að hafa meiri rjett heldur en einstakir menn, og svo er það líka, að íbúarnir í nærliggjandi kaupstað eða kauptúni eiga vissan hluta af þeirri verðhækkun, sem verður á jörðum þar í grend, því að verðhækkunin verður fyrst og fremst vegna myndunar kaupstaðanna og kauptúnanna, og bændur í nágrenninu eiga þá hægra með að selja vörur sínar. En móti þessu væri það ekki nema sanngjarnt, að kaupstaðurinn fengi að standa heldur betur að vígi en óviðkomandi menn og fengi forkaupsrjett á eftir sveitarfjelögum og nokkrum fleirum, sem ákveðnir eru í lögum um forkaupsrjett (JKr: Það er ekkert gagn að þessu). Víst er gagn að því, ef kaupstaðurinn v ildi nota sjer það, og jeg hygg, að enginn mundi ganga fram hjá því, að bjóða kaupstað jörð, ef þetta ákvæði væri í lögunum.
Brtt. hv. 2. þm. S.-M. (IP) breytir frv. að nokkru. En þó að jeg áliti, að mitt orðalag sje betra, get jeg þó til samkomulags fallist á hana. En eftir orðanna hljóðan, ef hún þá verður samþykt, þá skil jeg ekki, að forkaupsrjetturinn nái að þeim jörðum, sem liggja að þeirri jörð, því að orðin „er liggur að landi kaupstaðar“, er skilgreining á því, að „land kaupstaðar“ sje kaupstaðarlóðin, en jörðin verður þar fyrir utan, og er þar jafnt fyrir utan, þó að kaupstaðurinn eignist hana.
Þá hefir verið um það rætt af sumum hv. þm., að það væri yfirleitt æskilegt, að þær jarðir, sem kaupstaðir og kauptún eignuðust í nágrenni sínu, yrðu iagðar undir lögsagnarumdæmi kaupstaðarins eða kauptúnsins. En ef það verður sett í lög, þá raskar það miklu af því, sem fyrir er í löggjöfinni, og jeg hygg, að það þyki ekki rjett, nema með því að báðir aðiljar samþykki, að gera breytingar á lögsagnarumdæmunum, og það þarf þá alveg að breyta grundvallarhugmyndinni í löggjöfinni, ef því verður haldið fram, að jörð eigi að leggjast undir lögsagnarumdæmi kaupstaðarins, ef kaupstaðurinn eignist jörðina. Það er líka svo margt, sem kemur til greina, þegar á að leggja jörð undir annað lögsagnarumdæmi. Hreppurinn vill tryggja sig fyrir því, að þurfa að bera byrðar vegna þeirra, sem alist hafa upp á þessari jörð, og seinna kynni að geta orðið hreppnum til byrði. En þetta er alt saman samningar milli sveitarfjelaga, sem jeg hygg, að ekki sje hægt að ráðstafa með lögum.
Hv. þm. A.-Húnv. (GÓ) skaut því fram, að nær væri, að forkaupsrjetturinn gengi handa jarðnæðislausu sveitafólki. En það er nokkuð óákveðið, og ómögulegt er að setja það í lög. Hv. þm. (GÓ) fullyrti, að þetta land kæmi ekki að neinu gagni. En jeg vil benda á það, að í jarðræktarlögunum, sem helstu forkólfar landbúnaðarins hafa samið, er einmitt gert ráð fyrir því, að kaupstaðir og kauptún gangi í það, að rækta bæjarlandið. Í 31. gr. jarðræktarlaganna er einmitt gefið tilefni til frv. þessa, er hjer liggur fyrir. Þar er ákvæði um það, að skifting jarða nái einnig til þjóðjarða og kirkjujarða, ef þær liggja að kaupstað eða kauptúni. Það er óhjákvæmilegt, að þau lönd verði einnig tekin til ræktunar, því að alment er kvartað yfir, að ekki sje til nægilegt land til að yrkja fyrir kaupstaða- og kauptúnabúa. Það kann að vera rjett, að frv. bæti ekki mikið úr þessu, en það styður að því. Er þá líka komið það gagn, sem jeg ætlaðist til, að það ynni. En hver svo sem örlög þess verða nú, þá býst jeg við, að síðar muni fitjað upp á þessu sama, til eflingar ræktuninni í kringum kaupstaðina og kauptúnin. En skilyrði fyrir allri ræktun er það, að gott jarðnæði sje fyrir hendi og nóg fólk til þess að yrkja jörðina. Og þessum skilyrðum fullnægja kaupstaðirnir og kauptúnin.