11.03.1927
Neðri deild: 27. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 151 í C-deild Alþingistíðinda. (2327)

62. mál, skipting Gullbringu- og Kjósarsýslu í tvö kjördæmi

Flm. (Hjeðinn Valdimarsson):

Ef hv. 2. þm. G.-K. (ÓTh) þætti svo mikið ranglæti eiga sjer stað í kjördæmaskipuninni sem hann lætur í veðri vaka, þá væri honum skylt að gera sitt til þess að bæta úr því, annaðhvort með því, að koma með brtt. við kosningalögin, eða þá við stjórnarskrárfrv. það, sem nú liggur fyrir þingimi. Það sjest ekki, að hann hafi gert neitt til þess, hvorki nú eða í fyrra, að reyna að bæta úr þessu ranglæti.

Hv þm. (ÓTh) gat þess, að hann inundi sætta sig við frv., ef fram kæmi brtt. um að Gullbr.- og Kjósarsýslu yrðu trygðir tveir þingmenn. Þetta sýnir, hvernig hv. þm. hugsar sjer rjettláta kjördæmaskipun. Þá yrðu 850 kjósendur fyrir hvern þingmann í Gullbr.- og Kjósarsýslu, en 1300 fyrir einn þingmann í Hafnarfirði. Það er auðsjeð, að hjer er eingöngu hugsað um flokkshagsmuni hv. þm. (ÓTh), því að slík breyting væri miklu ranglátari heldur en að láta Hafnarfjörð hafa einn þingmann, en Gullbr.- og Kjósarsýslu annan. Hv. þm. (ÓTh) kýs það aukna ranglæti, heldur en að fylgja frv. þessu!

Viðvíkjandi því, sem hv. þm. sagði, að fleiri hundruð kjósendur í Hafnarfirði væru á móti skiftingunni, þá vil jeg geta þess, að ekkert orð hefir heyrst þar á móti skiftingunni. En skiftingin hefir verið samþykt á fjölmörgum fundum, og jeg man ekki betur en að á einum fundi, þar sem hv. þm. var viðstaddur, væri hún samþykt í einu hljóði, svo að ef 'margir kjósendur á þeim fundi hafa verið á móti henni, hefðu þeir átt að leyna vel sannfæringu sinni, liklega ganga af fundi, áður en til atkvgr. kom, og hvísla því í eyra hv. þm. (ÓTh), að þeir væru á móti skiftingu kjördæmisins, en láta engan annan mann um það vita. Hjer virðist það eitt ráða skoðun íhaldsmanna á þingi, að þeir geti áfram eins og undanfarið haldið niðri 2/5 hlutum kjósenda í kjördæminu í flokkshagsmuna skyni, þótt annar stærsti bærinn á landinu verði sem heild látinn gjalda þess.