05.03.1927
Neðri deild: 22. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 185 í B-deild Alþingistíðinda. (233)
13. mál, uppkvaðning dóma og úrskurður
Frsm. (Jón Kjartansson):
Jeg þarf ekki að hafa langa framsögu fyrir þessu máli. Með frv. er ítarleg greinargerð, og getur allshn. algerlega fallist á þær ástæður, sem þar eru fram færðar. Frv. hefir verið samþ. óbreytt í hv. Ed., og leggur allshn. til, að svo verði hjer einnig gert. Þetta getur ekki kallast stórt mál, en það er gott mál og mun spara mikinn óþarfa kostnað. Vona jeg, að hv. deild samþykki frv. óbreytt.