01.03.1927
Neðri deild: 18. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 171 í C-deild Alþingistíðinda. (2351)

44. mál, yfirsetukvennalög

Forsrh. og fjrh. (Jón Þorláksson):

Þetta er eingöngu launamál, og jeg álít rjett, að gefa hjer þær upplýsingar, að samkvæmt því sem um var talað á síðasta þingi, hefir ljósmæðrum verið greidd dýrtíðaruppbót af þeim hluta launanna, sem ríkissjóður greiðir. Þetta er talsverð launabót. Mjer er ekki kunnugt um, hvort sýsluefndir hafa greitt dýrtíðaruppbót af sínum hluta, en jeg hygg þó, að það hafi verið gert, a. m. k. sumstaðar.

Jeg hefi ekki annað um þetta mál að segja en það, sem jeg sagði á síðasta þingi, nema það, að tíminn nú er enn síður til þess fallinn, að hækka laun. Kaup fer lækkandi að krónutali, og tekjur manna yfirleitt. Jeg get hugsað mjer, að þó ljósmæðralaun þyki lág nú, liði ekki mörg ár, þar til þau þykja viðunandi, í samanburði við það, sem aðrir starfsmenn landsins verða að sætta sig við.

Það er ekkert að því vikið í grg. frv., hverja útgjaldaukning þetta hefði í för með sjer. Jeg skýt því til nefndarinnar, sem fær frv. til meðferðar, að hún athugi þessa hlið málsins og geri sjer hana ljósa. Um ljósmæðraekluna skal jeg ekkert segja, þar sem það heyrir ekki undir mitt ráðuneyti. En samkvæmt greiðslum, sem fram hafa farið til ljósmæðra, verður ekki sjeð, að á þeim hafi verið veruleg ekla, enda eru ekki kvartanir um það fram komnar frá landsmönnum sjálfum, heldur stjettarfjelagi ljósmæðra.