13.04.1927
Neðri deild: 54. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 181 í C-deild Alþingistíðinda. (2359)

44. mál, yfirsetukvennalög

Frsm. minni hl. (Halldór Stefánsson):

Jeg vildi gjarnan verða við þeim tilmælum, að vera stuttorður, og jeg get það því frekar, vegna þess að við höfum gert grein fyrir afstöðu okkar í nál. á þskj. 313, og hjá hv. frsm. meiri hl. kom ekkert nýtt fram. Okkur, minni hl. mönnum, sýnist þetta ekki svo aðkallandi í þetta sinn. Laun þessa starfsmannaflokks voru bætt í fyrra með því, að ljósmæðrum var ákveðin dýrtíðaruppbót af ríkissjóðshluta launanna, og einnig var skorað á aðra aðila, að þeir gerðu slíkt hið sama. Að hve miklu leyti það hefir orðið, er mjer ókunnugt. Mjer finst, að áður en ljósmæður koma fram á ný með óskir um launahækkun til þingsins, að þær ættu fyrst að ganga eftir því, að hinir aðrir aðilar intu af hendi skyldu sína í þessu efni. Auk þess er á það að líta, að það á að endurskoða launalögin í heild á næsta þingi. Það vill nú verða svo, að þegar einhverjir opinberir starfsmenn koma fram með kröfur um launahækkun, að það reynist auðvelt að finna ástæður fyrir því, að launin sjeu of lág. En jafnframt því, að launin þurfa að sníðast eftir þörf manna, verður líka að líta á gjaldþol almennings og ríkissjóðs.

Jeg skal ekki fara langt út í ástæður hv. meiri hl. Aðalástæða hans er yfirvofandi ljósmæðraskortur, en það vantar bara að sýna fram á og færa rök fyrir því, að það sjeu launakjörin ein saman, sem honum valdi. Í fyrra var talað um það, að ljósmæður mundu gera verkfall, ef þær fengju ekki sínum kröfum fullnægt, en nú er þessi höfuðástæða ekki færð fram, heldur ógnað með ljósmæðraskorti. Hvað því veldur, veit jeg ekki, en get ímyndað mjer, að þessi verksfallshótun í fyrra hafi ekki þótt reynast vel, og þess vegna sje gripið til þessarar ástæðu nú. — Annars má draga það í efa, hvort ljósmæðraskorturinn er eins mikill og af er látið, og ef svo er, hvort launakjörin eru þá eina ástæðan. Það er alkunna, að áhugi fyrir ýmsum störfum getur verið misjafn á ýmsum tímum og af ýmsum ástæðum. Og geta mætti þess til, að málfærsla sú, sem höfð hefir verið uppi nú um hríð um þetta mál, ætti sinn drjúgan þátt í því, enda er fátt auðveldara en að gera menn óánægða með kjör sín. — Og enn má geta þess, að læknahjeruð hafa á stundum staðið óskipuð, og má þó segja, að ekki muni launakjör annara opinberra starfsmanna vera rífari — og enginn skortur á lærðum læknum — svo að þar til mun þá vera að leita annara orsaka en lágra launa. Það má segja, að þinginu sje vandi á höndum í þessum efnum og vansjeð, hvenær störf eru fulllaunuð. Sá hugsunarháttur er nú orðinn mjög ríkjandi, að alt fáist fyrir peninga, og ekkert nema fyrir peninga. Jeg held, að þjóðin sje þá illa komin, ef peningarnir eru mönnum alt, en áhuginn fyrir þeim störfum, sem þörf er á að vinna, ekkert. Hv. frsm. meiri hl. (JakM) var að bera saman kjör ljósmæðra og kjör vinnukvenna. En jeg lít svo á, að þau sjeu ekki sambærileg, vegna þess, að ljósmæðrastörf geta ekki talist fullkomin störf, a. m. k. í sveitum. Fæðingar eru svo fáar í flestum ljósmæðrahjeruðum, að þær geta sint miklum aukastörfum. Í fámennum hjeruðum, þar sem launin eru lægst, ca. 200–300 kr., eru fæðingar líka fáar og störfin lítil.

Jeg hefi búið til dálítið dæmi um þetta, hver launin eru á hverja fæðingu, eftir fólksfjölda hjeraðanna. Í hjeraði með 1000 íbúa má búast við að fæðingar sjeu árlega samkv. meðalviðkomunni, eins og hún er talin í hagskýrslum, 10–12. Í slíku hjeraði mundu, eftir þessu frv., frumlaunin með dýrtíðaruppbót verða 432 kr., en hámarkslaun með aldursuppbót og dýrtíðaruppbót 720 kr. Dæmið lítur þá þannig út, miðað við hjeruð, sem hafa frá 1000 og niður í 600 íbúa:

Laun:

lágm.

Hám.

432 kr.

720 kr.

Á hverja fæðingu af 12:

36 —

60 —

— — — — 10:

43 —

72 —

— — — — 8

54 —

90 —

— — — — 6

72 —

120 —

Við þetta má bæta þeirri aukaborgun, sem þær fá frá foreldrum, og mun óhætt að áætla hana fullar 20 kr.

Það sem maður tekur strax eftir við þennan samanburð er það, að launin standa mjög í öfugu hlutfalli við störfin, og því meir sem þau eru minni, ef fram ganga till. meiri hl. Jeg efast þess vegna um, að lengi yrði ánægja með þetta. Þó að við breytum þessu nú, myndu launakjörin fljótt valda óánægju og e. t. v. ekki dragast lengur en til næsta þings, að nýjar kröfur kæmu fram.

Við álítum, minni hl. menn, að naumast geti talist full ástæða til að breyta þessu nú. En jeg býst við, að við munum þó frekar geta hallast að brtt. hv. meiri hl. en að frv. sjálfu. En þó að brtt. meiri hl. verði samþ., munum við samt greiða atkv. á móti frv.