13.04.1927
Neðri deild: 54. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 184 í C-deild Alþingistíðinda. (2360)
44. mál, yfirsetukvennalög
Frsm. meiri hl. (Jakob Möller):
Jeg tók það fram þegar í byrjun, að jeg mundi ekki koma fram með neitt nýtt í þessu máli, og jeg varð þess heldur ekki var, að hv. frsm. minni hl. kæmi fram með neinar nýjar ástæður gegn því. Mjer skildist, að höfuðmótbára hv. minni hl. væri sú, að þar sem ætti að endurskoða öll launalögin á næsta þingi, þá væri ekki ástæða til að taka þennan eina starfsmannaflokk út úr nú. En það er einmitt ástæða til þess. Það er ekki hægt að benda á neinn annan starfsmannaflokk, sem eins sje ástatt um og þennan. Ef þannig væri ástatt um aðra starfsmannaflokka, yrði einnig að taka þá til athugunar. En svo er ekki. Ef t. d. væri óskipaður mikill fjöldi læknishjeraða og þeim færi stöðugt fjölgandi, held jeg, að engum mundi blandast hugur um, að vert væri að taka launakjör þeirra til athugunar út af fyrir sig. Ljósmæður eru í þessu efni vel sambærilegar læknum. Þær eiga að inna af hendi merkilega heilbrigðisstarfsemi. Þetta er það, sem meiri hl. legur aðaláhersluna á. Og þótt hv. frsm. minni hl. (HStef) gefi vonir um, að þetta verði tekið til athugunar á næsta þingi, þegar almenn launalög verða endurskoðuð, þá er það ekki nóg, fyrst ekki eru gefin ákveðin loforð um endurbætur á kjörunum. Hv. frsm. minni hl. (HStef) segir, að það vanti sannanir fyrir því, að það sjeu launakjörin, sem valdi ljósmæðraskorti. Hvað ætti það að vera annað? Hver veit þess dæmi, að ekki fáist menn í þau störf, sem eru sæmilega launuð? Hv. frsm. minni hl. (HStef) segir, að áraskifti sjeu að því, hve áhuginn sje mikill fyrir ýmsum störfum. Það held jeg að sje ekki rjett, nema ef til vill að litlu leyti, heldur eru áraskifti að því, hve vel borgar sig að sinna ýmsum störfum. Hv. frsm. harmaði það, hve allur starfsáhugi færi nú minkandi, og sagði, að menn heimtuðu peninga fyrir alla hluti. Svona er þetta á öllum sviðum. Jeg efa jafnvel, að hv. frsm. (HStef) fengist til að taka að sjer fyrirhafnarmikil störf af einskærum áhuga.
Þá kvað hann það rangt, að bera saman laun ljósmæðra og þau kjör, er vinnukonur eiga við að búa. Má vera, að svo sje. Hjer er verið að bera saman þau kjör, sem öllum konum standa til boða, án þess að hafa nokkuð lært, og laun ljósmæðra, sem gegna ábyrgðarmiklu starfi og hafa orðið að búa sig allmikið undir að taka það að sjer. Það er því ljóst, að sje þessi samanburður ekki allskostar rjettmætur, þá er það mjer í óhag, en ekki hv. frsm. minni hl. (HStef). Hann segir, að ljósmóðurstarfið verði aldrei aðalstarf í hinum smærri hjeruðum. Það fer nú alveg eftir atvikum. Ef ljósmóðirin er jafnframt húsmóðir, getur hún vitanlega að nokkru gegnt þeim störfum um leið. En nú er það athugandi, að það eru aðallega ungar stúlkur, sem taka við þessum störfum. Það er ljóst, að þær geta þá ekki ráðið sig til neins annars fasts starfs, því að ljósmóðurstörfunum er þannig háttað, að ómögulegt er að vita fyrirfram, hve mikill tími fer til þeirra eða hvenær þau helst ber að höndum. Þess vegna verða hinar ógiftu ljósmæður oftast að kaupa sjer bæði húsnæði og fæði. Aukatekjur þeirra verða mjög svo óvissar og á hlaupum. Þarna tók jeg til samanburðar stúlkur, sem ekkert hafa lært, vinnukonurnar. Þær hafa ekki minna kaup, auk fæðis og húsnæðis, sem vitanlega er mjög mikils virði. Jeg held, að það sje nokkurs virði að gera þennan samanburð, því að það er einmitt mjög oft þetta tvent, sem ungar stúlkur eiga um að velja að leggja fyrir sig. Og fylsta sönnunin fyrir því, að þessi samanburður verður ljósmæðrum ekki í hag, er sú, að ekki fást nógu margar stúlkur til að vera ljósmæður. — Alþingi verður að horfast í augu við afleiðingarnar af því, að greiða þessari stjett ekki nægilegt kaup: lærðum ljósmæðrum fækkar, og rekur lengra og lengra inn á þá braut, sem þegar er byrjað að ganga, að skipa ólærðar ljósmæður.
Fleiru held jeg að jeg þurfi ekki að svara hjá hv. frsm. minni hl., en jeg vil beina því til hæstv. forseta, að láta atkvgr. ekki fara fram, nema deildin sje sæmilega skipuð.