13.04.1927
Neðri deild: 54. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 190 í C-deild Alþingistíðinda. (2364)
44. mál, yfirsetukvennalög
Hákon Kristófersson:
Þegar þetta frv. var hjer síðast til umr., var jeg því heldur andvígur, af ástæðum, sem jeg þá tók fram. Nú hefir hv. fjhn. haft frv. til meðferðar, og nú kemur það frá henni með þeim brtt., sem sjá má á þskj. 293.
Jeg skal viðurkenna, að stefnu hv. nefndar, hvað launagreiðslur snertir, gæti verið rjett að samþykkja, því að hún er sanngjörn og eðlileg að mínu áliti. En jeg tel hana þó hafa farið heldur langt um launahækkun, þegar hún gerir ráð fyrir því, að dýrtíðaruppbót skuli greidd af laununum. Hvað þetta atriði snertir, tel jeg tillögum nefndarinnar ekki í hóf stilt. Mjer skilst það svo, að þegar yfirsetukonur komist upp í 500 kr. laun, sem margar komast fljótt upp í, þá muni þær fá þó dálítið í viðbót, en það verður þó ekki hærra en svo, að þær nái 700 kr.
Nú hefir því verið haldið fram, að það þurfi að hækka launin vegna skorts á ljósmæðrum. Þetta má vel vera satt, en það er samt ekki af því, að það læri of fáar konur, því að maður veit, að það eru ekki nein vandræði að fá ljósmæður í bæjunum, og þó er gert ráð fyrir mikilli launahækkun þar, en undanfarin ár sýna, að það hafa ekki verið nein vandræði við að fá þau umdæmi skipuð, en hitt má vera, að í fámennum hjeruðum og erfiðum eigi það nokkurn þátt í því, en þá kemur það til skoðunar, hvort þjóðfjelagið sje þannig efnum búið, að það geti borgað svo há laun, sem að sjálfsögðu þyrfti til þess að fá þau hjeruð skipuð, og þá sýnist mjer ekki ólíklegt, að betra væri að greiða þar einhverjar sjerstakar erfiðleikaupphæðir, en þó vil jeg taka fram, að það væri dálítið athugaverð leið, og því kannske tæplega rjett að fara inn á hana. En eins og jeg benti á við síðustu umr. þessa máls, þá er það svo, að ef ástæða væri til, að laun þessara kvenna væri hækkuð, eins og nú er farið fram á, þá er það af því, að þau hafa verið sett alt of lág seinast, þegar ákveðið var um þau, en þá var, mjer vitanlega, ekki nein óánægja út af þeim. Jeg skal síst hafa á móti því, að það væri að öllu æskilegast, að það væri hægt að setja þessi laun svo há, að þær, sem þeirra eiga að njóta, gætu verið sæmilega ánægðar með þau, en það er eins og hv. frsm. minni hl. (HStef) benti á, að það verður að vera í dálitlu samræmi við aðra starfsmenn ríkisins, og jeg er ekki í neinum vafa um það, að það gefi þeim mönnum, sem nú koma fram með kröfur um launabætur, eðlilega ástæðu til að halda þeim ennþá fastar fram, ef sá verður upp tekinn, að bæta laun þessa flokks starfsmanna, eins og hjer er farið fram á.
Hv. frsm. meiri hl. (JakM) sagði, að það væri þeirra að sanna, sem hjeldu því fram, að önnur ástæða en launakjörin væri þess valdandi, að ljósmæður fengjust ekki í hin ýmsu hjeruð. Það má vel vera, að þetta hafi einhvern rjett á sjer, en jeg sje ekki, að það sje sanngjarnara, að þeir, sem hafa þá skoðun, komi með fastar ástæður, aðrar en bygðar á sínum besta kunnugleika, frekar en hv. meiri hl., og þeir, sem líta svipað á, komi með ábyggilegar sannanir fyrir sínu máli. En mjer vitanlega hefir ekki tekist að leggja fram óhrekjandi rök því viðkomandi. En sem sagt: brtt. fela það sjálfar í sjer, að þetta er ekki aðalatriðið, launakjörin, þó að einmitt á þeim stöðum, þar sem best er launað, sje þessi starfi, ef til vill, heldur eftirsóttur. En þar sem hv. meiri hl. hefir nú snúið þessu máli í það horf, sem mjer þykir nokkru betur fara, þá mun jeg fylgja málinu til 3. umr., en alls ekki út úr deildinni, með þeim launaákvæðum, sem eru í hans áliti, og það er með tilliti til þessa starfa, að mjer virðist of langt gengið, enda þótt jeg geti gengið inn á það, að það væri eitthvað bætt við það sem nú er, þá sje jeg mjer ekki fært að fara svona langt, og jeg verð að taka það fram, eins og hv. frsm. minni hl. (HStef) hefir bent á, að tæplega sje rjett að láta ganga til atkvæða um þetta mál að sinni. En ef hv. meiri hl. telur það rjettara, þá verður það líklega svo að vera, En þó að jeg fylgi þessu nú, við þessa umr., þá er það með þeim ákveðna hug, að koma með lækkunartill. við 3. umr. En það, sem dregur mig til samninga um þetta mál, er fyrirkomulagið á greiðslunni.