20.04.1927
Neðri deild: 56. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 206 í C-deild Alþingistíðinda. (2389)
32. mál, kosningar til Alþingis
Frsm. minni hl. (Hjeðinn Valdimarsson):
Þegar ákveðið er, hvenær kjördagur skuli vera, þá er auðvitað rjett, að það sje sá dagur, þegar sem flestir kjósendur geta kosið, og á þeim tíma ársins, að sem flestir kjósendur geti sint stjórnmálum og kynt sjer það, sem kosið er um.
Það hefir þótt svo um langan tíma, að heppilegasti tíminn væri að haustinu. Aðrir kjördagar hafa verið reyndir, en það hefir altaf farið svo, að best hefir þótt að láta kjördaginn vera fyrsta vetrardag. Nú er komin fram tillaga um að breyta þessu á ný og færa kjördaginn til 1. júlí. En jafnan, þegar slíkar óskir hafa komið fram, hafa borist mótmæli víðsvegar af landinu, og það er auðsjeð, að óskir manna um að fá kjördaginn fluttan, eru ekkert svipaðar því, sem óskir manna um að fá að halda þeim kjördegi, sem nú er. Að minsta kosti er það svo, að frá sjávarsíðunni virðist það vera eindregin ósk manna, að halda kjördeginum, 1. vetrardegi, og það er ekki nema úr einstökum sveitum, að komið hafa fram óskir um að flytja kjördaginn. Það mun vera tekið fram í 10 þingmálafundargerðum, með fáum atkvæðum, og að því er sjeð verður, virðist það ekki vera almennur vilji, sem knýr málið fram, heldur eru það einstakir þingmenn sem vilja fá kjördaginn fluttan.
Sú andúð, sem er gegn færslu kjördagsins, stafar af því, að kjósendur vita, að væri kjördagur 1. júlí, væru þeir tilknúðir að greiða atkvæði um mál, sem þeir á þessum mesta annatíma Íslendinga hefðu ekki getað gefið sjer nægan tíma til að hugsa um, nje sækja þingmálafundi þá. En það er þó raunar skylda hvers kjósanda, til þess að ákveða stefnu sína og hverjum hann eigi með atkvæði sínu að fela það, að fara með umboð sitt á Alþingi. Gildir þetta jafnt um sjávarmenn sem sveitamenn, þótt kjósendur við sjávarsíðuna eigi enn verri aðstöðu, og þá aðallega verkalýðurinn, sem verður að sækja vinnuna landshornanna á milli og flyst eftir atvinnunni, sjerstaklega vertíðunum, hringinn í kringum landið. Þess vegna er það mjög fátt af verkafólki, sem er á kjörstað sínum, þegar kosning fer fram.
Nú hefir hv. frsm. meiri hl. (ÁJ) getið þess, að hjer væri annað frv. á ferðinni um atkvæðagreiðslu utan kjörstaðar kjósanda við alþingiskosningar, og rætt það nokkuð. En jeg vil geta þess, að enda þótt það frv. yrði samþykt, og færsla kjördagsins um leið, þá kæmi þetta viðbótarfrv. að litlu gagni, því að menn væru þrátt fyrir það jafnuppteknir af störfum sínum og gætu jafnlítið kynt sjer málin, sem þeir þurfa að taka afstöðu til, þótt þeir hefðu leyfi til að greiða atkvæði á dvalarkjörstað sínum. Það er svo, eins og öllum mun vera kunnugt, að þegar menn eru utan síns heimilis, þá kjósa þeir miklu síður, heldur en þegar þeir eru heima. Mjer er það líka kunnugt, enda þótt hv. flm. frv. (ÁJ) telji sig vera forvígismann bænda í þessu máli, að mikill fjöldi bænda telur haustið heppilegri tíma til kosninga heldur en sumarið, og óskar þess vegna ekki, að kjördagurinn verði fluttur. Gagnið af færslu kjördagsins mundu þeir einir hafa, sem hafa hag af sem mestum doða yfir stjórnmálunum. Þeir óska þess, að sem stystur tími líði á milli þess, að þingi er slitið og þangað til kosningar fara fram, svo að kjósendur hafi sem stystan tíma til þess að kynna sjer málstað þingflokkanna.
Því hefir verið borið við, að óveður geti hindrað bændur í að sækja kjörstað 1. vetrardag, en þetta er ekki rjett. Fyrst og fremst er í kosningalögunum heimild til að fresta kjördegi, ef sýnt þykir, að óveður muni hamla kjörsókn. Kjörstjórn lætur þá út ganga þingboð um frestun kjörfundar. Í öðru lagi er lagaheimild fyrir því, að hafa megi fleiri en einn kjörstað í hverjum hreppi. Þessarar lagaheimildar munu hreppar enn ekki hafa neytt, svo að ekki er hægt að segja, að hún komi ekki að notum. Hefði þetta ráð verið upp tekið í haust í hinum frægu stórhríðum, sem „Tíminn“ hefir mest talað um, mundi kjörsókn hafa verið ólíkt betri, og má því með miklu meiri rjetti kenna forsjáleysi um ljelega kosningasókn í norðursveitunum heldur en stórhríðum. Loks er auðvelt að gera bændum enn ljettara um kjörsókn heldur en lög standa nú til, og hefi jeg flutt brtt. þess efnis, sömu sem hv. þm. Dal., Bjarni Jónsson frá Vogi, flutti á þinginu 1924, að kjördagar í sveitum skuli vera þrír dagar í röð. Verði brtt. þessi samþ. til viðbótar, má búast við því, að það geti varla komið til mála, að menn geti ekki sótt kjörfund vegna óveðurs, þrjá daga í röð, með kjördeildum í hæfilegri fjarlægð og heimild til að fresta kjörfundi. Og enn er hjer með mikil rjettarbót fyrir kvenfólkið, því að það gæti venjulega sótt kjörfund, ef hann stæði þrjá daga í röð, en nú verður það oft að sitja heima, er karlmennirnir fara burt af bænum til kosninga.
Með þessari breytingu álít jeg, að málinu sje miklu betur fyrir komið, heldur en með því að flytja kjördaginn til 1. júlí. Menn geta betur sint stjórnmálum og haft lengri tíma til að sækja kjörfund.
Þá má líka geta þess, að jafnvel þó að slíkt óveður kæmi sem átti sjer stað síðastliðinn kjördag, þá virðist það eingöngu hafa hamlað kjörsókn í Þingeyjarsýslunum báðum, en annarsstaðar á landinu var þá kjörsókn meiri heldur en á kjördaginn s. l. sumar, og sannur þetta það, að atvinnuvegurinn að sumrinu dregur meira úr kjörsókn heldur en verstu óveður.
Loks mun hvorki það veður nje hríðarveður það, sem síðar kann að koma á kjördegi, vera slíkt gerningaveður, að það hamli frekar sókn eins stjórnmálaflokks heldur en annars, og mundi því í kjördæmakosningum úrslitin verða hin sömu sem í blíðviðri, þó að atkvæðafjöldinn yrði annar. Nokkru öðru máli kann að vera að gegna um landskjörið, en það fer lögum samkvæmt nú fram 1. júlí, og er ekki ætlast til þess, að því verði breytt.
Jeg vil svo leyfa mjer að benda hv. deild aftur á það, hvaða rjettlæti er í því, að draga ennþá meira úr kosningarrjetti þeirra, sem búa við sjávarsíðuna, eins og gert er með þessu frv., þegar þeir, eftir öllum rjettlætiskröfum, eiga að hafa margfalda þátttöku á löggjafarþingi þjóðarinnar á við það, sem nú er. Er það sjerstaklega með tilliti til verkalýðsins, sem jeg minnist þessa, þó að sama gildi raunar um alla bæjarmenn. Þegar kjördæmaskipun er svo hróplega ranglát, að verkalýðurinn og flokkur hans, Alþýðuflokkurinn, hefir aðeins tvo fulltrúa á þingi, en ætti að hafa fjórða hluta þingmanna, þá finst mjer rangsleitnin keyra úr hófi, er reynt er að koma á sjerstakri löggjöf til þess að draga úr möguleikumn jafnaðarmanna að ná þeirri þátttöku í stjórn landsins og þingáhrifum, sem hann getur náð með núverandi úreltu kjördæmaskipun.