04.05.1927
Efri deild: 65. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 247 í C-deild Alþingistíðinda. (2411)

29. mál, bæjarstjórn á Norðfirði

Jón Baldvinsson:

Háttv. frsm. (GÓ) hefði ekki átt að fara að svara þessum fáu orðum, sem jeg sagði, úr því að hann heyrði þau ekki. Enda hafði hann skakt eftir mjer, þar sem hann sagði, að jeg hefði sagt, að engin ný rök hefðu komið fram í málinu frá því í fyrra. Þetta voru ekki mín orð. Jeg sagði, að engin ný rök þyrftu að koma fram í því, þar sem það hefði verið svo vel rökstutt þá, að því hefði ekki verið með rökum á móti mælt. Annars er það býsna undarlegt, að menn skuli ekki vilja leyfa þessu kauptúni að búa að sínu, aðeins fyrir trygð við hið gamla skipulag. Hjer ræður því hið gamla íhald, sem engar breytingar þolir. Hv. frsm. gerði enga tilraun til þess, að afsaka það, sem jeg sagði, að hann hefði flutt skemtilega útúrsnúningaræðu, til þess að koma sjer hjá að tala með rökum um málið.

Þá sagði hv. frsm., að jeg hefði haldið fyrri ræðu mína sjálfum mjer til skemtunar. Jeg er satt að segja hissa á þessum hv. þm., sem annars er fyndinn, að vera að koma með þetta í stað raka, því að það er engin fyndni í því heldur. Það sýnir því meðal annars, að málstaður hans er ekki góður, þar sem hann reynir allar mögulegar leiðir til þess að forðast að tala um málið sjálft. Enda hefi jeg ekki heyrt nein rök hjá honum gegn því, að þetta væri nauðsynlegt mál. Það má kannske segja, að hann hafi tæpt á einni; það er embættafjölgunin. En þar sem ekki er talað hjer um meira en 3000 kr. laun, þá tel jeg ekki, að það spursmál, út af fyrir sig, gefi ástæðu til þess, að þingið setji sig á móti þessu. Enda hefir háttv. frsm. ekki haft á móti því, að ríkissjóður gæti hagnast af því, að hafa þarna sjerstakan lögreglustjóra, því að eins og kunnugt er, og hv. flm. hefir skýrt frá, er mikil sigling til Norðfjarðar á sumrin, og ef innheimta á samviskusamlega öll gjöld, sem falla þar til, þá er það sannarlega nægilegt starf fyrir einn mann.

Annars finst mjer allar þær ástæður, sem fram hafa verið færðar með frv. þessu, svo mikilvægar, að ekki verði hjá því komist að framfylgja því. Jeg segi þetta ekki aðeins af umhyggju fyrir Norðfirðingum, til þess að þeir geti betur búið að sínu, heldur líka fyrir þá sök, að jeg tel hag ríkissjóðs betur borgið, ef frv. verður samþykt.