10.05.1927
Efri deild: 70. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 257 í C-deild Alþingistíðinda. (2428)

61. mál, mat á heyi

Einar Jónsson:

* Þó að hjer sje ekki um stórmál að ræða, þá fór það samt svo, að landbn., sem altaf hefir staðið saman í vetur, varð í fyrsta skifti ósammála, þegar kom að afgreiðslu þess. Jeg gat ekki sjeð, að frv. þetta væri nauðsynlegt, og meðnefndarmenn mínir gátu ekki sannfært mig um nauðsyn þess. Jeg tel það óþarft, og legg til, að það verði ekki samþykt.

Mjer sýnist ekki betur en aðalefni þess sje að skapa milliliði milli kaupanda og seljanda, sem ekki verða til annars en hækka verð heysins, án þess þó að seljandi fái meira fyrir það, því að jeg er þeirrar skoðunar, að þessir matsmenn geti á engan hátt trygt kaupanda fullkomin gæði vörunnar. Þeir geta aðeins athugað það, að heyið sje vel þurt og grænt, en um fóðurgildi þess geta þeir ekkert sagt. Til þess að fá fulla vitneskju um það, þyrfti að setja á stofn efnarannsóknarstofu, en það held jeg að væri ofvaxið í þessu tilfelli.

Annars finst mjer vera líkt með þetta heymat eins og var um fjeð áður, sem keypt var eftir vigt. Það var gefið sama verð fyrir pundið í því, hvort sem það var af góðu haglendi, feitt og holdmikið, eða þó að það væri af hinu rýrasta haglendi og því ekkert nema gorið og gallið.

Þá taldi háttv. frsm., að kostnaðurinn af framkvæmd þessara laga mundi ekki verða mikill, og sömuleiðis, að ekki mundu mikil vandkvæði á að framkvæma lög þessi yfirleitt. En þar er jeg ekki á sama máli. Jeg get þvert á móti búist við, að töluverðan kostnað leiði af framkvæmd þeirra. Sömuleiðis er jeg ekki viss um, að svo auðvelt verði að framkvæma þau. Að minsta kosti skal jeg taka það fram fyrir mitt leyti, að ekki treysti jeg mjer til að meta hey neina á minni jörð; er jeg þó alinn upp í sveit og hefi dvalið þar alla mína tíð, og þekki því vel heyþurk og heyverkun. Er því fjarri sanni, að jeg treysti mjer til að gera öðrum til hæfis í þessum efnum, þar sem jeg þekki ekki heygæði, jarðlag o. fl.

Annars er það ekki ætlun mín að gera þetta að miklu þrætuatriði. Jeg hefi lýst þeirri skoðun minni, að jeg tel málið óþarft, og legg því til, að það verði ekki samþykt.

* Ræðuhandr. óyfirlesið af þm.