12.05.1927
Neðri deild: 73. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 307 í C-deild Alþingistíðinda. (2457)
83. mál, hvíldartími háseta á íslenskum botnvörpuskipum
Frsm. meiri hl. (Hjeðinn Valdimarsson):
Jeg skoða það ekki sem nein rök í málinu, að reynt sje að rægja flm. með því, að hann beri málið fram fyrir peninga. Hefi jeg síst ofmælt um þessa tvo hv. þm., því að slíkar aðdróttanir sýna best, hversu óhæfir þeir eru til þingsetu og hvernig þeirra eiginn hugsanaferill er.