05.05.1927
Efri deild: 66. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 328 í C-deild Alþingistíðinda. (2483)

69. mál, hvalveiðar

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Jeg get ekki sjeð, að þó að þetta frv. yrði að lögum, þyrfti það á nokkurn hátt að raska þeirri stefnu, sem tekin var upp með fiskiveiðalöggjöfinni 1922. Hjer stendur öðruvísi á. Jeg legg ekki til, að frv. verði samþ. í því skyni að slaka á fiskiveiðalöggjöfinni, en hitt er öllum ljóst, að ekki er útlit fyrir, að í bili sje fáanlegt annað fje til þessa fyrirtækis en útlent. Ef endilega á að bíða eftir framkvæmdum í þessa átt, þangað til innlendar peningastofnanir eru reiðubúnar að leggja fram það fje, sem þarf, þá býst jeg við, að við megum lengi bíða. Röksemdir hæstv. ráðh (JÞ) og hv. 5. landsk. afsanna engan veginn það ástand, sem er á þessu sviði, þar sem vitanlegt er, að útlendingar veiða hvalinn hjer við land og fara með hann í önnur lönd til vinslu. Önnur lönd hafa tekjur af honum, og annað fólk hefir atvinnu við hann, en íslenskum þegnum er meinað með lögum að njóta nokkurs góðs af. Það er í sjálfu sjer ekki veruleg ástæða á móti frv., þó að benda megi á, að þessi atvinnuvegur sje stopull. Það er hann vitanlega, eins og allir aðrir atvinnuvegir, sem að sjónum lúta. En eftir því sem reynslan hefir sýnt undanfarin ár, er ekki hægt að gera ráð fyrir, að það þyrfti að vera mönnum til skaða, þó að hvalveiðastöðvarnar gætu ekki starfað um ótakmarkaðan tíma. Mjer þykir líklegt, að þær legðust niður, en jeg fæ ekki sjeð, að þeir, sem atvinnu nytu við þær, væru ver settir eftir en áður. Meðan hvalveiðar voru stundaðar hjer, flutti fólk sig ekki búferlum á stöðvarnar, heldur var það þar vissan tíma árs, eins og nú gerist um síldarvinnu.

Jeg er sammála hæstv. forsrh. (JÞ) um, að það sje til einskis, að vísa þessu máli til stjórnarinnar, eftir undirtektum hennar að dæma. Í fyrra gerði hún ekkert í því, sem ekki var von, eftir afstöðu hennar. En eftir árferði og öðru ástandi í landinu álít jeg ekki rjett að fella frv.