16.05.1927
Efri deild: 75. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 330 í C-deild Alþingistíðinda. (2489)
69. mál, hvalveiðar
Jón Baldvinsson:
Jeg hefi borið fram nokkrar brtt. í því skyni að bæta úr verstu göllum þessa frv. Sú fyrsta er á þá leið, að orðin „nema hrefnur“ í 1. línu 1. gr. falli niður. Þessi breyting þýðir það, að allir skíðishvalir skuli friðaðir í landhelgi. Í 1. gr. er sýslunefndum heimilað að banna með samþyktum hrefnuveiðar í landhelgi, en eins og menn þekkja, gefast slíkar sýslusamþyktir misjafnlega, og í þessu tilfelli gæti árangurinn orðið æði broslegur. Samkvæmt þessari heimild gæti vel farið svo, að tvær reglur giltu þar sem tvær sýslur liggja að sama firði. Tökum t. d. Eyjafjörð. Að honum liggur Þingeyjarsýsla öðrumegin, og kunnugir vita, að Þingeyingar mundu samþ. hjá sjer friðun. Hinsvegar er talið, að Eyfirðingar, sem búa hinumegin fjarðarins, vilji hafa hrefnuna ófriðaða. Sýslunefndarsamþyktir mundu því verka þarna ærið skringilega.
Í 2. gr. er gert ráð fyrir, að hafa megi flotstöðvar í landhelgi. Jeg tel ekki rjett, að leyfa flotstöðvar, þó sjerleyfi sje veitt, og vil, að þetta sje felt niður. Svo gæti farið, að hvalveiðin þætti ekki borga sig nema 1–2 sumur, og yrði þá flotstöð frekar flutt burt heldur en föst stöð í landi. Í samræmi við þetta eru brtt. mínar við 2. gr. á þskj. 567, a. og b. liður. Það er beinlínis tekið fram í brtt., að ekki megi veita sjerleyfi til að nota flotstöðvar, er geri sama gagn og stöðvar í landi. Í sömu átt fer brtt. við 3. gr. a-liður, að orðin „í landi“ falli niður.
Þá þykir mjer það broslega lítið, sem gert er ráð fyrir, að greitt skuli af hverju hvalveiðaskipi. Þetta er stór atvinnuvegur hjá Norðmönnum, svo að það lítur nokkuð einkennilega út, að taka aðeins 500 kr. af skipi. Jeg ber því fram brtt. um, að í stað 500 komi 1000. Þá þykir mjer rjett, ef þetta kemur til framkvæmda, að svo sje fyrir mælt, að hvalveiðastöðvar og hvalveiðaskip noti innlenda menn, bæði á skipunum og í landi, meðan menn fást, sem kunna starfið. Síðasti liður brtt. við 3. gr., c. 2, er á þá leið, að ríkissjóði skuli heimilt, hvenær sem er á sjerleyfistímanum, að kaupa hvalveiðastöðvar og hvalveiðaskip fyrir verð, er dómkvaddir menn meta, ef samkomulag um kaupin nást ekki á annan hátt. Jeg álít, að þessi brtt. sje nauðsynleg fyrir ríkið, af því að útlendingar eiga í hlut, sem farið gætu burtu með skip og önnur áhöld fyrirvaralaust, ef þeir álitu frekar fengs von annarsstaðar, t. d. í suðurhöfum. Starfsfólk gæti þannig skyndilega mist atvinnu og orðið illa statt. Jeg geri þessa brtt. að svo miklu kappsmáli, að jeg mun ekki undir neinum kringumstæðum geta greitt frv. atkv., ef hún verður feld, og raunar vafasamt, að jeg geti það, þó að hún verði samþ.