10.02.1927
Efri deild: 2. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 23 í B-deild Alþingistíðinda. (25)

Kosning fastanefnda

Forseti (HSteins):

Eins og jeg tók fram áðan, hefir þetta verið venja hjer mörg undanfarin þing; deildin hefir oft svo fám mönnum á að skipa, þar sem ráðherrarnir, einn eða fleiri, geta átt sæti hjer, að hjá þessu verður ekki komist. Og þegar búið er að skipa fjhn., samgmn. og fjvn. fimm mönnum, eins og gert hefir verið, þá verður ekki hjá því komist, að sumir þingmenn verði í fleirum en 2 nefndum. Jeg sje því ekki ástæðu til þess að breyta til nú, en mun haga þessu eins og að undanförnu.