30.03.1927
Neðri deild: 42. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 337 í C-deild Alþingistíðinda. (2500)
11. mál, útrýming fjárkláða
Pjetur Þórðarson:
Þegar jeg kvaddi mjer hljóðs, ætlaði jeg mjer að taka fram hjer um bil það sama og hv. þm. Str. sagði.
Jeg vona, að þessi mál sjeu svo vaxin, að þau þoli að standa jafnfætis við 2. umr. Þó að lagt sje kapp á að koma stjfrv. fram fyrir hitt, álít jeg það ætti ekki að sæta mótspyrnu, í trausti þess að hjer verði, er til úrslita kemur, svo margir menn viðstaddir í þessari hv. deild, að þeir geti fylgt því fram, er heilbrigðara er fyrir þjóðina. Jeg fyrir mitt leyti ætla að minsta kosti ekki hv. þm. þá dul, að þeir samþ. frv. fyrir það eitt, að það kemur á undan öðru hagkvæmara máli um sama efni til úrslita. Jeg ætla þeim meiri sanngirni og dómgreind en svo, að þeir hiklaust fari að samþykkja þetta frv.