06.04.1927
Neðri deild: 48. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 353 í C-deild Alþingistíðinda. (2511)
11. mál, útrýming fjárkláða
Jörundur Brynjólfsson:
Það er út af ummælum háttv. 2. þm. N.-M. (ÁJ) að jeg stend upp. Jeg hefi enn ekki eytt neinum orðum að þessu frv., hvorki fyr nje síðar. En háttv. þm. nefndi nafn mitt, og það með talsverðum þjósti, í sambandi við þetta mál. Sje honum mjög kært að fá mig til að taka þátt í umræðunum, þá má vera, að kostur gefist á því, og þá fyrst, er hann hefir fagnað sigri af þeirri hólmgöngu, getur hann látið drýgindalega.
Að svo vöxnu máli ætla jeg ekki að grípa inn í umræðurnar, en mjer þætti vænt um að heyra, hvers vegna háttv. þm. hafi fundið sig knúðan til að nefna mitt nafn. Jeg hjelt í fyrstu, að honum hefði orðið mismæli og að hann hefði átt við annan þingmann, með því að honum var allskapþungt. En úr því hann hefir ekki leiðrjett þetta, eftir að hann komst meir til jafnvægis, verð jeg að álíta, að hann hafi gert það af ásettu ráði.