06.04.1927
Neðri deild: 48. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 361 í C-deild Alþingistíðinda. (2515)
11. mál, útrýming fjárkláða
Pjetur Þórðarson:
Það hefir nú farið svo, að hv. frsm. minni hl. hefir fengið ósk sína uppfylta, um að fá töluverðar umr. um þetta mál. Sennilega hefir hann óskað þess í þeirri von, að atkvgr. mundi fara á annan veg, ef um málið væri talað, en ella. Önnur orsök gat það ekki verið en ótti við atkvgr. þegar í stað.
Mig furðar á því, hvað hæstv. atvrh. hefir viljað gera mikið úr því og lagt áherslu á það, að landbn. hefir tekið aðra ályktun í þessu máli nú en í fyrra, og hið sama hefir hv. þm. Str. gert. En þeir hafa ekki litið á það, að nefndin er nú öðruvísi skipuð en hún var í fyrra. Jeg get ekki sjeð neina ástæðu til að áfellast nefndina fyrir þetta, þar sem vitanlegt er, að hún er nú öðruvísi skipuð og að öðru leyti fullgildar ástæður fyrir því, að afgreiða málið öðruvísi nú en í fyrra. Annars býst jeg við, að þeir einstakir nefndarmenn, sem mest ámæli hafa hlotið fyrir að þeir hafi snúist í málinu, muni svara fyrir sig. En jeg vil svara fyrir mitt leyti, að jeg hefi alls ekki skift um skoðun í málinu frá í fyrra. Hinsvegar tel jeg það, yfirleitt, að skifta um skoðun, alls ekki ámælisvert, ef maður hefir komist að rjettari niðurstöðu við síðari athugun á málinu. Jeg skal taka það fram, að mig undrar það, hvað mikið hv. þm. Str. vill leggja upp úr áliti síðasta búnaðarþings í þessu máli. Hv. þm. V.-Sk. tók af mjer ómakið að svara því atriði, og skal jeg sleppa því hjer, með því að hv. þm. Str. er ekki nærstaddur.
Jeg hygg, að ef þeim hv. 2. þm. N.-M. og hæstv. atvrh. kynni, með öllu því kappi, sem þeir leggja á þetta mál, að takast að koma því í gegn á þessu þingi, að vera megi, að þeim verði það minnisstætt síðar.
Fyrst hv. þm. Str. er ekki mjög fjarri, vil jeg benda honum á það, að það kveður við dálítið annan tón hjá búfjárræktarnefnd síðasta búnaðarþings en hann vildi vera láta. Eftir því sem hv. þm. V.-Sk. las upp áðan, leggur nefndin til, að útrýmingarböðun verði ekki ákveðin með lögum á þessu þingi. Álit þessarar nefndar er í öllum greinum rökstuðningur á móti útrýmingarböðunum, með þeim hætti, sem í þessu frv. er til ætlast, og enda þótt niðurstöðuályktun nefndarinnar sje sú, að rjett sje með lögum að heimila ríkisstjórninni að fyrirskipa allsherjar útrýmingarböðun, þá er síður en svo, að hún ætlist til að það sje gert nú þegar. Vegna þm. sjálfs (TrÞ) og þeirra málefna landbúnaðarins, sem hann er líklegur til að styðja í framtíðinni, vil jeg benda honum á, að hann er ekki búinn að sjá afleiðingarnar af því, ef málinu væri nú ráðið til lykta þvert ofan í vilja bænda alment út um landið. Það er enda ekki nema eðlilegt, að bændur sjeu á móti þessu nú, vegna þess, að langsamlega og yfirgnæfandi meiri hluti þeirra hefir lært svo mikið af reynslunni í þessum efnum, að þeir geta haft og hafa fult vald á að halda kláðanum í skefjum, og öllu heldur að halda honum algerlega frá sjer. Það stendur öðruvísi á nú en fyrir 40–50 árum síðan, þegar svo að segja öll málefni voru háð föðurlegri umsjá yfirvaldanna í Reykjavík. Jeg hugsa, að hv. þm. Str., og aðrir hv. þm., búsettir hjer, hafi ekki athugað nógu vel, hver orsökin er. Ástæðan er sú meðal annars, að bændur eru nú alment að komast til þekkingar á því, á hvern hátt þessum vágesti verði best haldið í skefjum og hvað litlar líkur eru til þess, að hægt verði að ganga á milli bols og höfuðs á honum, eins og hv. 2. þm. N.-M. (ÁJ) komst að orði. Þeir, sem þekkja gang þessa máls, vita vel, að engin trygging er fengin fyrir því, að útrýming hepnist með þessu mjög dýra skipulagi, sem frv. þetta fer fram á. Nei, jeg vil ráða öllum góðum mönnum til þess, að fara ekki mjög geist í það, að ganga á móti því, sem meiri hl. landbn. leggur til í þessu máli.