07.04.1927
Neðri deild: 49. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 379 í C-deild Alþingistíðinda. (2521)

11. mál, útrýming fjárkláða

Frsm. minni hl. (Árni Jónsson):

Um þá hv. þm., sem mælt hafa á móti þessu frv., er það að segja, að þeir hafa forðast eins og heitan eld að koma að kjarna málsins. Það, sem þeir hafa sagt, hafa verið allskonar hugleiðingar í útskefjum málsins, og eru raunar ekki svara verðar. Jeg skal þó drepa á það helsta, sem þeir hafa fært fram gegn frv.

Hv. 1. þm. Árn. (MT) var að tala um þrifabaðanir og fjölyrti mikið um það, hvílíkur búhnykkur þær væru fyrir bændur. Jeg veit nú ekki betur en það sje viðurkendur búhnykkur af þeirra hálfu, eins og það er viðurkendur búhnykkur, að fóðra fjeð vel. Og í því trausti gerði þingið í fyrra ráðstafanir til þess að nema úr gildi lögin um einkasölu á baðlyfjum.

Þá sagði sami hv. þm. (MT), að útrýmingarböðun væri ekki til bóta, fyr en menn væru orðnir vanir sauðfjárböðunum. Jeg veit nú ekki, hve lengi menn þurfa að venjast þrifaböðunum, þangað til menn fara að telja þau til bóta, nema þá að svo sje, að svo lengi megi illu venjast, að gott þyki. Við höfum nú vanist þeim í 12 ár.

Þá sagði þessi hv. þm., að hagur bænda væri ekki svo góður, að ástæða væri til þess að fara að skattleggja þá með þessari útrýmingarböðun. Þetta getur ef til vill talist skattur í bili, en bændur fá hann óreiðanlega endurborgaðan. En hjer er um svo mikið atriði að ræða fyrir bændur, eins og markaðshorfum þeirra er nú farið, að af þeirri ástæðu út af fyrir sig er alveg sjálfsagt að vera með þessu frv.

Þá hafði hv. 2. þm. Árn. (JörB) eitthvað út á það að setja, að jeg hefði nefnt nafn hans í ræðu minni. Mjer hafði fundist hann vera að fetta fingur út í það, sem jeg sagði. En þar sem hann hefir lýst yfir því, að svo hafi ekki verið, þá get jeg vel beðið hann afsökunar á því, að jeg dró nafn hans inn í umr. En þetta má hann ekki skilja sem yfirlýsingu frá minni hálfu um velþóknun mína á honum í þessu máli.

Hv. þm. V.-Sk. talaði á móti frv. eins og í fyrra. Jeg verð nú að segja, að þeim er vorkunn, þingmönnum Skaftafellssýslna, þótt þeir sjeu á þessari skoðun, þar sem upplýst er, að kláða hefir aldrei orðið vart í þeim sýslum, svo að útrýmingarböðunin kæmi þar nokkuð hart niður. En það, sem hv. þm. sagði, var ekki á fullum rökum reist. Hann vildi segja, að búnaðarþing hefði lagst á móti þessu máli og lagt annað fyrir. En eins og tekið hefir verið fram, bæði af hv. þm. Str. og hæstv. atvrh., er það ekki rjett. Þetta frv. fer í sömu átt og tillögur búnaðarþings.

Hv. þm. N.-Ísf. (JAJ) tók það rjettilega fram, að áhuginn fyrir útrýmingu væri mestur, þar sem kláðinn er mestur. Það er vitanlegt, að í þeim sýslum, sem kláðinn er mestur, er áhugi manna fyrir útrýmingu mestur, en í þeim sýslum, sem minst er um kláðann, þar er áhuginn minstur. Þetta fylgist að jafnaði að, eins og jeg þegar hefi bent á. En þegar þetta er athugað, og ef nú verður frestað útrýmingarböðuninni, þá er í raun og veru verið að bíða eftir því, að kláðinn verði svo útbreiddur um sveitir landsins, að meiri hluti landsmanna verði útrýmingarböðuninni fylgjandi. Þetta er ljóst, því að aðalmótbára þeirra hv. þm., sem talað hafa gegn útrýmingarböðunum, er sú, að bændur sjeu alment mótfallnir þeim, vegna þess að kláðinn sje ekki kominn til þeirra. Verður þetta ekki skilið á annan hátt en að þess vegna eigi nú að bíða með útrýmingarböðin, þangað til kláðinn sje orðinn svo útbreiddur, að hann sje kominn á meiri hluta bændabýla landsins. En þegar svo er komið, þá hygg jeg, að erfitt verði að skera kláðann niður.

Hv. samþingismaður minn (HStef) skaut því til hv. þm. N.-Ísf., hvers vegna kláðinn væri hjá Skotum, og var engu líkara en að hv. þm. (HStef) áliti, að Skotar ælu maurinn, og þess vegna ættum vjer einnig að gera það. En hv. þm. er fljótsvarað. Skotar eru ákaflega seinir til, og þó að ákveðin hafi verið útrýmingarböð hjá þeim, þá hafa þeir reynt að skjóta sjer undan böðuninni. Borið saman við okkar ástæður, þá er það engin sjerstök hvöt fyrir Skota, að útrýma kláðanum af því að markaður þeirra sje í veði. En öðru máli gegnir með oss. Jeg vil minna hv. þm. á það, að hann skildi þetta atriði í fyrra, og vil jeg leyfa mjer að benda honum á að lesa þá ágætu og rökföstu ræðu, er hann þá hjelt um þetta mál í fyrra.

Hv. þm. Mýr. (PÞ) þarf jeg engu að svara. Hann hjelt varnarræðu fyrir landbn., og er ekkert við það að athuga, þar sem hann er formaður þeirrar nefndar. Sama er um ræðu hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ). í henni var fátt, sem þörf er á að svara. Hv. þm. (SvÓ) telur þetta alt kák eitt, hvort sem um útrýmingar- eða þrifaböð er að ræða. Hann segir, að útrýmingarböðin hafi hingað til verið og muni verða kák eitt, og að þessi till. landbn. sje líka kák, og því muni hann hallast að því kákinu, sem sje ódýrara í bili.

Hv. frsm. meiri hl. (HK) hjelt langa ræðu, en það verður því miður ekki sagt, að innihaldið hafi svarað til lengdarinnar. Hefi jeg þegar drepið á margt í ræðu hans í sambandi við ræður annara hv. þm. Það var lesin hjer upp í gær skýrsla um kláðann í landinu, og sagði hv. þm., að af þeirri skýrslu sæist, að kláðinn væri svo lítill, að ekki væri ástæða til að gera þessar sjerstöku ráðstafanir. En jeg hefi nú lesið þessa skýrslu, og af henni má sjá, að kláðinn er í öllum sýslum landsins nema tveim. Hvað þarf nú framar vitnanna við?

Hv. þm. V.-Húnv. (ÞórJ) kom inn á þetta atriði viðvíkjandi skýrslunni, og gat þess, að þó að kláðinn væri lítill á tímabili, þá gæti hann altaf magnast. Þessu til sönnunar gat hann þess, að í umr. um kláðamálið á þingi 1903 hefði þess verið getið, að á einum bæ í austur hluta V.-Húnv. hefði farið fram skoðun, með þeim árangri, að enginn kláði hefði fundist þar, en að 5 dögum liðnum fór skoðun aftur fram, og reyndist þá svo, að 26 kindur höfðu smitast í millitíðinni.

Hv. þm. Barð. sagði í öðru orðinu, að kláðinn væri vel viðráðanlegur, en í hinu orðinu, að ómögulegt væri að útrýma honum. En á þesari ótrú hans, að ómögulegt sje að útrýma kláðanum, er öll barátta hans gegn útrýmingarböðunum reist.

Þá talaði hv. þm. (HK) um það, að allsherjar útrýming væri óframkvæmanleg, nema með margra ára undirbúningi. Þessi undirbúningur hefir nú þegar farið fram í 12–13 ár, eins og best sjest á frv., sem hv. þm. og samherjar hans bera fram. En auk þessa er tími til stefnu, þangað til ætlast er til, að útrýmingarböðunin fari fram, sem sje hátt á annað ár. Þá talaði hv. þm. um þann mikla kostnað, sem útrýmingarböðin hefðu í för með sjer, og taldi hann mjög tilfinnanlegan fyrir bændur. Eftir skýrslu þeirri er Magnús Einarsson gaf í fyrra, er áætlað, að kostnaður af útrýmingarböðunum mundi nema 150 þús. kr. þar af á ríkissjóður að greiða 100 þús., en bændur sjálfir 50 þús. kr., sem jafnast á alla bændur landsins. Auk þess bættist auðvitað við kostnaður af innigjöf og rýrnun. Verður því að mínu áliti ekki með sanni sagt, að kostnaðurinn verði bændum mjög tilfinnanlegur.

Hv. þm. sagði, að jeg hefði sagt, að enginn árangur hefði orðið af þrifaböðunum undanfarin ár. Jeg vildi leyfa mjer að leiðrjetta þau ummæli mín, því jeg tel sanni nær að segja, að árangurinn hafi orðið verri en enginn, því að síðan hefir kláðinn stöðugt útbreiðst.

Jeg hefi stuttlega svarað þeim hv. þm., sem talað hafa á móti útrýmingarböðun, en þeir hafa lítið komið inn á kjarna málsins. Mjer virðist, að afstaða manna til þessa verði að markast af ástandi því, sem nú er á kjötmarkaði vorum. Við höfum aðeins í tvö hús að venda með kjöt okkar, til Noregs með saltkjötið, og til Englands með fryst og kælt kjöt. Um Noregsmarkaðinn er það að segja, að verðið er þar lækkað niður í nálega það sem það var fyrir ófriðinn mikla, og um enska markaðinn er það að segja, að þar er meiri samkepni heldur en þekst hefir um langan aldur. Hefir þess nýlega verið getið í blöðum hjer, að tvö amerísk auðfjelög berðust um yfirráðin á markaðinum og seldu kjötið jafnvel aðeins fyrir flutningskostnaðinum. Þegar þannig er litið á ástandið á kjötmarkaðinum, og jafnframt á það, að framleiðslukostnaðurinn hjer á landi er margfaldur við það, sem áður var, mætti búast við því, að menn vöknuðu af því dauðamóki framtaksleysisins, sem þyrmt hefir yfir þá.

Nú byggja menn vonir sínar um bætt kjötverð á hinu nýja kæliskipi, sem bygt hefir verið með styrk úr ríkissjóði. Jeg vona, að þær vonir rætist. En menn verða að gæta þess, að meginið af því kjöti, sem kemur á markaðinn með þessu skipi, verður fryst en ekki kælt, en þar af leiðir, að það lendir í hinni miklu samkepni, sem jeg gat áðan um, við fryst kjöt frá þeim löndum, þar sem framleiðslan kostar nálega ekkert. Eina ráðið til þess að koma kjöti okkar á góðan markað, er að hefja aftur útflutning lifandi fjár til Englands. Við höfum reynslu fyrir því, að Englendingum geðjast vel að íslensku sauðakjöti, og á þann hátt einan komumst við í samkepni, sem er okkur í vil, vegna þess að framleiðslukostnaðurinn á Bretlandi er hærri en hjer.

Nú er það svo, að innflutningur lifandi fjár til Englands er bannaður með öllu frá öllum löndum nema Íslandi. Það er þó svo, að innflutningur hjeðan er ekki framar alfrjáls. Þær kvaðir eru á, að fjeð verður að vera í strangri sóttkví og vera slátrað innan 10 daga. Að vísu er ekkert því til fyrirstöðu, að útflutningur hefjist, þó að skilyrðin sjeu ekki rýmri en þetta. Hitt er einsætt, að ef útflutningur yrði nokkuð í líkingu við það, sem var langt fyrir aldamótin, þá yrðu þessi skilyrði of þröng. Nú verður að vinna að því jafnframt því sem sauðaeigninni verður komið upp hjer, að fá Englendinga til þess að slaka á innflutningshöftunum.

Ef Alþingi gerir nokkrar þær ráðstafanir, sem ætla mætti að yrðu til þess, að kláðinn útbreiddist, þá er ekkert líklegra en að við mistum þeirra hlunninda, sem við höfum nú um innflutning til Bretlands fram yfir aðrar þjóðir. En ef Alþingi hinsvegar lögleiddi útrýmingarböðun, og við gætum sýnt Englendingum fram á, að kvilli þessi væri kveðinn niður, þá má telja það mjög sennilegt, að Englendingar mundu afnema öll innflutningshöft á íslensku sauðfje. Ef svo yrði, stæðum við miklu betur að vígi. Fjeð tæki bata eftir sjóvolkið, og auk þess væri hægt að hafa betri gát á markaðsskilyrðum. Ekkert má gera til að veikja aðstöðu okkar. Jafnframt því sem unnið er að útrýming kláðans, þá verður að róa að því öllum árum, að við vinnum aftur þá aðstöðu, sem við höfðum áður á besta kjötmarkaði heimsins. Nú sem stendur eru markaðsskilyrðin of þröng til þess að útflutningur geti tekist í líkum mæli og hann var mestur áður, um 50–60 þús. fjár á ári.

Jeg hefi gert fyrirspurn til Englands um verð á enskum markaði og fjekk svar í gærkveldi. Eru þær upplýsingar mjög eftirtektarverðar og sýna átakanlega mismuninn á markaðnum fyrir nýtt kjöt og frosið kjöt. Samkvæmt upplýsingum þessum er hlutfallið þannig milli verðs á nýju og frosnu kjöti: Í október í fyrra var verðið á nýju sauðakjöti 12 pence enskt pund, og á frosnu sauðakjöti 4/2 penny. En nú er verðið á nýju kjöti 13–14 pence, en á frosnu sama og í haust, 4½ penny. Í íslenskum peningum svarar þetta verð til ca. 90 aur. kg. í haust er leið á frosnu sauðakjöti og ca. kr. 2,40 kg. á nýju sauðakjöti. Nú sem stendur er verðið á nýju sauðakjöti 25 til 50 aurum hærra á kíló en í fyrrahaust, en verðið á frosna kjötinu óbreytt. Menn hlýtur að reka í rogastans yfir þessum geysiverðmun. Og menn hljóta að spyrja: hvers vegna kaupa Englendingar nýti kjöt á kr. 2,50 eða kr. 2,60 kg., ef þeir geta fengið frosið kjöt á 90 aura kg.? Því er til að svara, að á Englandi er tiltölulega fleira af mönnum, sem hafa efni á að spyrja fyrst og fremst um gæði vörunnar en ekki verð. Þeir eru vanir því besta og hafa efni á að neita sjer ekki um það. Fjöldinn er aftur á móti svo efnum búinn, að hann verður að sætta sig við lakari vöruna, af því að hún er ódýrari.

Á það hefir verið minst, að útflutningur lifandi sauðfjár mundi eiga langt í land. En þetta er ekki svo. Sauðum verður komið upp á 2–3 árum. Heppilegasti aldur útflutningsfjár er, þegar fjeð er 2–3 vetra. Veturgamalt fje er að vísu hægt að flytja út, en það þótti illa svara kostnaði fyrrum, vegna þess að það stóðst sjóferðina miklu ver en eldra fjeð.

Út af verðsamanburðinum vil jeg biðja menn að gæta þess vel, að verðið á nýja kjötinu er miðað við bestu tegund innlendrar framleiðslu, en verð á frosna kjötinu hið almenna markaðsverð. Þetta má því ekki skilja á þá leið, að jeg búist einmitt við þessum verðhlutföllum á því kjöti, sem hjeðan flyttist á breskan markað. Verðið á nýja sauðakjötinu yrði sennilega eitthvað lægra, en verðið á lambakjötinu,- sem flutt yrði út frosið, yrði vonandi eitthvað ofan við almenna markaðsverðið á frosnu kjöti. En hvað sem þessu liður, þá má ekki loka augunum fyrir því, að verðið á þeim sauðum, sem fluttir yrðu út lifandi, mundi ákvarðast af hinu háa innlenda kjötverði í Bretlandi, en verðið á frosna kjötinu jafnan miðast við alment verð á þeim markaði. Jeg geri ráð fyrir, að kostnaðurinn yrði líkur á hvert kg., svo að verðmunurinn yrði ávalt geysimikill.

Til þess að ná bættum markaði, þarf auðvitað að breyta búnaðarháttum. En það er tiltölulega ljett verk, ef unnið er að því með fullum skilningi og áhuga. Bændur breyttu hinu gamla búskaparlagi fyrir liðugum 20 árum, í það horf, sem nú er, vegna þess að markaðsskilyrðin heimtuðu það. Þá var kjötverð fremur lágt í Englandi, en hinsvegar lögleiddar hömlur þær á innflutningi, sem ennþá gilda þar. Aftur á móti var útlit fyrir, að opnast mundi góður og öruggur markaður fyrir ljettsaltað lambakjöt í Danmörku. Eins og þá horfði við, gerðu bændur áreiðanlega það, sem líklegast var til endurbóta, er þeir hættu við sauðaeignina og tóku dilkaeignina. Bændur verða eins og aðrir framleiðendur ávalt að vera við því búnir að breyta framleiðslunni eftir því sem eftirspurnin krefur. Nú horfir málið svo við, að líklegasta úrlausnin er sú, að taka upp aftur sauðaeignina, og þá tjáir ekki að spyrna á móti broddunum.

Þegar vitnað er í það, að bændur sjeu andvígir útrýmingarböðun, verður að gæta þess, á hvaða forsendum sá dómur þeirra er reistur. Jeg fullyrði, að ef leitað væri álits íslenskra bænda eftir að þeir hafa fengið tækifæri til að kynnast ástandinu á kjötmarkaðnum, eins og það er, og þeim möguleikum til umbóta, sem framundan eru, ef rjétt er að farið, mundu þeir ekki færast undan að leggja á sig þann lítilfjörlega kostnað, sem af útrýmingarböðun leiddi. þessir fulltrúar bænda, sem telja það hlutverk sitt hjer í hv. deild, að berja lóminn fyrir hönd umbjóðenda sinna, gera bændum herfilega rangt til. Bændur eru víðsýnni, framkvæmdasamari og betri þegnar en búast mætti við, ef dæmt væri eftir framkomu ýmsra fulltrúa þeirra.

Jeg las í vetur æskuminningar Eiríks Briems. Þar segir hann frá því, að þegar fjárkláðinn geisaði um Húnavatnssýslu fyrir 60–70 árum, var leitað stuðnings bænda í Eyjafjarðarsýslu til þess að gera stjettarbræðrum þeirra í Húnavatnssýslu kleift að skera niður fje sitt og hefta þannig útbreiðslu faraldursins. Ljetu eyfirskir bændur þá 12. hverja kind sína til þeirra, og segir E. B., að hann muni ekki til þess, að nokkur maður möglaði við þessu. Slíkur var þegnskapur íslenskra bænda fyrir 2 mannsöldrum. Nú lifum vjer á tímum fjelagsskaparins og fjelagsþroskans, og samt á að fara að kenna okkur, að íslenskir bændur vilji ekki leggja á sig lítilfjörlegan kostnað til þess að útrýma með öllu þessum gamla og skæða fjanda landbúnaðarins, kláðanum. Jeg trúi því ekki fyr en jeg tek á, að þegnskap bænda hafi hrakað svo hörmulega sem hjer er látið í veðri vaka.