22.04.1927
Neðri deild: 57. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 485 í C-deild Alþingistíðinda. (2551)
11. mál, útrýming fjárkláða
Jón Kjartansson:
Hv. 1. þm. Rang. furðaði á því, að jeg skyldi ekki taka Rangárvallasýslu með í till. mína. En jeg þorði það ekki, vegna þess að jeg hefi heyrt, að kláði hafi fundist í sýslunni. Annars hefi jeg heyrt, og hygg að það muni rjett vera, að í þessari sýslu hafi ekki verið kláði. Hrúturinn í Holti undir Eyjafjöllum, sem hv. þm. Str. hefir verið að tala um, var fenginn norðan úr Þingeyjarsýslu, en beitilöndin þar, heiðarnar, eru mjög ólík mýrunum undir Eyjafjöllum, og þykir ekki ósennilegt, að hrúturinn hafi fengið óþrif aðeins af vosbúð. Það er líka óþarfi að ræða þetta hjer, því að hrúturinn var drepinn. Till. mín er heldur ekki annað en heimild handa atvrh. um að veita udanþágu þeim hjeruðum, þar sem aldrei hefir orðið vart kláða. Ef svo færi, að kláði fyndist undir Eyjafjöllum í ár eða næsta ár, mundi atvrh. að sjálfsögðu verða varkár um undanþágur. Upplýsingar hv. þm. Str. geta alls ekki mælt móti till. minni. Allir hljóta að sjá, hve hart það er, að skylda hjeruð til þrefaldrar böðunar, sem altaf hafa verið kláðalaus. Það var gert 1903, og ætti ekki að gerast aftur.
Jeg skal ekki minnast mikið á mótbárur hinna háttv. samherja minna, hv. þm. Barð., hv. 2. þm. Árn. og hv. þm. Mýr. Það er ekki rjett, að jeg vilji fleyga málið, heldur vil jeg bjarga því, sem bjargað verður. Ef mín brtt. verður feld, hlýt jeg að verða móti málinu. Jeg mun greiða dagskránni atkvæði, en ef hún verður feld, vona jeg að mín till. verði samþykt, í því skyni að bjarga því, sem bjargað verður.