18.03.1927
Efri deild: 31. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 491 í C-deild Alþingistíðinda. (2559)

89. mál, húsmæðraskóli á Hallormsstað

Jónas Jónsson:

Mjer þykir vænt um að sjá frv. frá hv. 1. þm. S.-M., ekki síst af því, að í fyrra var snúið sjer til mín um þetta mál, og jeg flutti þáltill. þess efnis, að skora á stjórnina að leita samninga við frú Sigrúnu Blöndal um það, hvort ekki gæti tekist samvinna milli hennar og ríkisins um húsmæðraskóla á Hallormsstað. Þessu var vel tekið í orði, en svo var áliðið orðið þings, að mentmn., eða form. hennar (IHB), tók málið aldrei fyrir. Jeg gerði mjer þó vonir um, að þetta hafi orðið til að kynna mönnum málið.

Jeg get í stuttu máli lýst yfir því, að mjer þykir aðalhugmynd þessa frv. góð, að fá skóla fyrir Austurland á Hallormsstað og þá ágætu konu til forstöðu, sem allir virðast vera sammála um, að eigi að hafa forstöðu þar. Jeg vil sjerstaklega taka það fram um Hallormsstað, að mjer urðu það mikil vonbrigði, að ekki var hægt að flytja þangað aðalskóla Austurlands, Eiðaskóla, þar sem þessi staður er nokkurskonar helgistaður allra Austfirðinga, nálega eins og Þingvellir eru helgistaður alls Íslands. Þetta er ekki aðeins metnaðarmál fyrir Austfirðinga, að hafa myndarlegt hús á þessum stað og að þar sje sem mest rausn á allan hátt, heldur má segja, að það sje líka heiður alls landsins, að þessi prýðilegi staður sje þannig hýstur og haldinn, að þar sje hægt að taka á móti þeim innlendu og útlendu gestum, sem þangað sækja, einkum á sumrin, á þann hátt, sem má verða fjórðungnum og landinu til sóma. Ennfremur geri jeg ráð fyrir, að einmitt þetta, að húsmæðraskólinn er rekinn sem einkafyrirtæki, verði sú heppilega lausn á málinu. Og þó að jeg styðji þetta mál í núverandi mynd, þá get jeg sagt eins og er, að jeg skoðaði það ekki neitt óhapp, þótt svo færi, að þessi skóli rísi að nokkru leyti upp sem einkafyrirtæki, með stuðning frá ríkinu. En það er hlutur, sem ekki kemur til greina nú.

Jeg lýsi því að endingu yfir, að þetta er gott mál, og jeg treysti því, að það komist sem fyrst í framkvæmd.