05.03.1927
Neðri deild: 22. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 547 í C-deild Alþingistíðinda. (2578)
60. mál, landnámssjóður Íslands
Ólafur Thors:
Jeg hefi ekki verið talinn meðal þeirra, sem standa næst landbúnaðinum. En jeg verð að láta í ljós ánægju mína yfir þessu frv. Jeg hefi á undanförnum þingum sjeð eygja hjer í einhverja hugsjón, sem hefir verið svo vandlega vafin innan í óhagsýnina, að jeg hefi ekki sjeð neina von um framkvæmdir á málinu. Nú hefir aftur á móti komið fram hjer meistari, sem hefir afklætt hugmyndina, svo að hún stendur nú miklu ljósar fyrir og nær framkvæmdum. Hugsjónin er ein. En verkið lofar meistarann; og mjer sýnist, að sá hinn síðari sje hinum fremri og meiri, svo að verulegu skifti.
Þegar nú þessi hugmynd er borin fram í einhverju því formi, að hugsanlegt er að hún komist í framkvæmd, er sjálfsagt, að hún sje athuguð með grandgæfni og velvilja.