30.04.1927
Neðri deild: 63. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 581 í C-deild Alþingistíðinda. (2591)

60. mál, landnámssjóður Íslands

Atv.- og dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Mjer sýnist, að það muni verða samkomulag um að vísa þessu máli til milliþinganefndarinnar í landbúnaðarmálum, sem ákveðið er að skipa á þessu þingi, þegar það hefir verið rætt hjer við þrjár umræður. Af því leiðir, að sú atkvæðagreiðsla, sem hjer fer fram, getur ekki átt við nema stefnuatriði málsins, og hefir því ekki alveg sömu þýðingu og venjuleg atkvæðagreiðsla við 2. umr. máls. Jeg tek þetta fram, vegna einstakra atriða í frv., sem jeg teldi fara betur að hafa á annan hátt. En aðalatriðum málsins er jeg staðráðinn í að fylgja, og jeg tel þetta eitt af hinum eftirekarverðustu málum, sem fram hafa komið alllengi.