05.05.1927
Neðri deild: 67. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 588 í C-deild Alþingistíðinda. (2600)

60. mál, landnámssjóður Íslands

Jörundur Brynjólfsson:

* Háttv. flm. (HStef) hefir misskilið ummæli mín áðan, og á jeg ef til vill sök á því sjálfur, með því að komast eigi nógu skýrt að orði, en það hefir þá verið alveg óviljandi fyrir mjer.

Jeg sagði, að við nefndarmenn hefðum búist við því, að málið næði ekki fram að ganga á þessu þingi, en þar með vildi jeg ekki láta koma fram, að nefndin hefði af ásettu ráði tafið fyrir málinu. Við nefndarmenn fundum sárt til þess sjálfir, hvað málið fjekk lítinn undirbúning hjá okkur, en við höfðum ekki ráð á þeim tíma, sem þurfti, til þess að undirbúa það til hlítar. Með öðrum orðum: við sáum okkur ekki fært að verja svo löngum tíma, sem þurft hefði, til þess að undirbúa málið að fullu, svo að örugt væri, að það gæti gengið í gegn í þinginu. En það var síður en svo, að það væri meining nefndarinnar frá upphafi að hindra framgang málsins.

Það hefir nú sýnt sig, að rjett var sú skoðun nefndarinnar, að ekki mundi vinnast tími til þess að afgreiða málið, því að nú er orðið svo áliðið þingtímans, að jeg tel vonlaust, að það geti orðið afgreitt. Við 2. umr. kom það greinilega í ljós, sem vænta mátti, að ýms atriði í þessu frv. eru þess eðlis, að nauðsynlegt er að taka til íhugunar stórmiklar breytingar á frv., áður en það yrði samþykt. Þetta var landbn. líka ljóst, en henni vanst ekki tími til að vinna að því, og eftir 2. umr. þótti meiri hl. nefndarinnar best fara á því, að þessi hv. deild rjeði afgreiðslu frv., og deildin vísaði málinu til hæstv. stjórnar með svipuðum formála og við höfum lagt til, í trausti þess, að sú milliþinganefnd, sem á að íhuga alla landbúnaðarlöggjöfina, fái málið til meðferðar, svo að það komi betur undirbúið en nú fyrir næsta þing. Í svona stórvægilegu máli skiftir það ekki miklu, hvort það kemst í framkvæmd ári fyr eða síðar. Hitt varðar mestu, að það sje vel úr garði gert upphaflega.

Mjer þykir leitt, ef jeg hefi komist svo óljóst að orði áðan, að hv. flm. (HStef) heldur, að jeg og meðnefndarmenn mínir höfum ekki unnið með heilum hug að málinu. Við höfum sannarlega unnið að því af alhug, en þó ekki eins rækilega og við hefðum óskað, vegna þess, hvað tíminn var naumur. Jeg vona að hv. flm. sje þó ljóst, eftir það, sem jeg hefi nú sagt, að vinnubrögðin í nefndinni og dagskrártill. stafa aðeins af góðum hug til málsins. Og jeg vona, að hann sætti sig við dagskrártill., því að jeg býst við því, að málið mundi ekki græða verulega á þeirri meðferð, sem það fengi hjá hv. Ed., yrði því vísað þangað, þar sem nú er svo áliðið þingtímans.

*Ræðuhandr. óyfirlesið af þm.