30.04.1927
Neðri deild: 63. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 666 í C-deild Alþingistíðinda. (2683)
94. mál, sauðfjárbaðanir
Jörundur Brynjólfsson:
Það er nú vorkunnarmál, þótt menn sjeu orðnir nokkuð langþreyttir á umræðunum um þetta mál, enda býst jeg við, að þær skifti litlu um afdrif málsins. Enda ætlaði jeg líka að sitja hjá og taka ekki frekar til máls, en hv. þm. Str. kom sínum ummælum svo sniðuglega fyrir, að ómögulegt var að komast hjá því að andmæla honum. (TrÞ?: Sannleikanum verður hver sárreiðastur!) — Jeg er nú ekki viss um, að hv. dm. sjái svo mikinn reiðisvip á mjer. En ef hv. þm. Str. hefði sjeð sjálfan sig í spegli, þá mundi hann hafa sjeð reiðisvipinn á sjálfum sjer. — En úr því að jeg er staðinn upp á annað borð, þá verð jeg að víkja nokkrum orðum að ummælum hæstv. atvrh. Hann vildi gera lítinn mun á þessu frv. og núgildandi lögum um þetta efni. Hann viðurkendi þó tvö atriði, betra eftirlit og skyldu til böðunar, sem þetta frv. hefði fram yfir núgildandi lög. Þessu er líka ekki hægt að neita. En hann fann að því, að þetta frv. gengi ekki eins langt og gildandi lög í því, að stjórnin gæti hvenær sem er fyrirskipað útrýmingarböðun. Jeg hjelt nú að hæstv. atvrh. mundi ekki sakast um þetta, því að engin stjórn mundi fyrirskipa útrýmingarböðun, nema fjárkláða yrði vart. Engin stjórn mundi grípa til þess, nema brýn nauðsyn beri til. Það er heldur ekki von til þess, eins og núgildandi lög eru og málið hingað til hefir verið búið í hendur stjórnarinnar. Með þessu frv. er stjórninni gefið meira undir fótinn með það, að koma í veg fyrir fjárkláðann. Jeg viðurkenni, að jeg vil, að stjórnin hafi alla ábyrgð í þessu máli. Það er alls ekki af neinum hrekk við þessa hæstv. stjórn. Enginn veit, hversu lengi hún fer með völd, og frv. þetta er ekki miðað við einstaka menn. En jeg skal gefa skýringu á því frá mínu sjónarmiði, hvers vegna jeg vil haga þessu svo. Ef Alþingi ákveður að heimila útrýmingarböðun, þá hefir stjórnin ríka ástæðu til þess að láta hana fram fara, nema augljósar ástæður mæli á móti. Þetta álít jeg hættulegt, að stjórnin geti sagt, að Alþingi hafi fyrirskipað útrýmingarböðunina, og hún því ekki treyst sjer til þess að fresta henni lengur. En ef stjórnin á sjálf að taka ákvörðun um útrýmingarböðunina, eins og ráð er fyrir gert í þessu frv., þá ætla jeg, að málið muni vera vel athugað og undirbúið og bændum tilkynt í tæka tíð, svo þeir eigi þess kost, að búa sig undir hana. Jeg hefi ekki trú á því, að það hepnist að útrýma kláðanum með 3 böðunum, og kemur það heim við skoðun hæstv. atvrh. Hann gat þess, og í sama streng tóku fleiri, að hann bygist ekki við því, að við værum svo lánsamir að útrýma fjárkláðanum með einni útrýmingarböðun, en hann mundi liggja niðri. En mjer þykir þessi ráðstöfun of kostnaðarsöm til þess eins, að halda kláðanum niðri. Hjer í þessu frv. er bent á algerlega nýja leið, og mjer finst rjett að reyna hana og sjá, hvort ekki er hægt að halda kláðanum í skefjum án mikils kostnaðar. Jeg held meira að segja, að þessi leið sje heppilegust til þess að útrýma kláðanum algerlega, ef samviskusamlega er að farið og eftirlitið er gott. Það er að minsta kosti áreiðanlega betra að fara þessa leið, heldur en samþykkja útrýmingarbaðanir. Mjer skildist, að hæstv. atvrh. vildi gjarnan fá bættan núgildandi lagastaf um þetta efni, því að kláðinn hafi breiðst út á undanförnum árum. Jeg hygg, að það sje nú að nokkru leyti því að kenna, að baðlyf þau, sem notuð hafa verið tvö síðustu árin, hafa verið slæm. En það er þörf á frekari reglum en hjer hafa áður gilt, en þær felast í þessu frv. Jeg þarf ekki að fara út í neinn samanburð á þessu frv. og núgildandi lögum, það gerði hv. þm. Borgf. Hæstv. atvrh. sagði, að með þessu fyrirkomulagi yrðum við að berjast við kláðann í það óendanlega. En jeg sje ekki betur en ef útrýmingarböðunin lánast ekki, þá verðum við að berjast við kláðann eins og áður, og er þá ver farið en heima setið.
Þá mun jeg ekki fjölyrða frekar um þetta, en víkja lítið eitt að hv. þm. Str. Hann sagði, að það væri leiðinlegt, að Alþingi skyldi ekki hafa manndóm í sjer til þess að þvo þennan smánarblett af hinum íslenska landbúnaði. En hann gleymir því, að þótt útrýmingarböðun verði samþykt, þá er ekki með því fengin nein trygging fyrir því, að okkur auðnist að útrýma fjárkláðanum. Það eru fult svo miklar eða meiri líkur fyrir því, að það hepnist ekki; því er það ekki rjett að vera að skírskota til manndóms Alþingis í þessu efni. Þá mintist hv. þm. á kjósendahræðslu við þetta mál. En það finst mjer liggja nokkuð fjarri. Þetta mál hefir verið rætt hjer rækilega, og það hefir verið sýnt fram á það með rökum, sem ekki hefir verið á móti mælt, hvers vegna ekki er hægt að fallast á skoðun hv. þm. Str. í þessu máli, svo að það er algerður óþarfi að blanda hræðslu við kjósendur inn í þetta mál. Slíkt er algerður hugarburður hv. þm. Str.