06.05.1927
Neðri deild: 68. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 766 í C-deild Alþingistíðinda. (2768)

64. mál, forkaupsréttur kaupstaða og kauptúna á hafnarmannvirkjum

Frsm. meiri hl. (Árni Jónsson):

Hv. frsm. minni hl. vildi ekki fallast á, að í frv. þessu væri aðallega átt við forkaupsrjett á hafnarmannvirkjum og lóðum, sem að sjó liggja. Er þetta þó tekið fram í greinargerð frv., og út frá því gekk hv. Ed. þá var hann hræddur um, að forkaupsrjettarheimild þessi mundi leiða til þess, að bæjar-og sveitarstjórnir færu að sölsa undir sig allar mögulegar fasteignir, sem þær hefðu ekkert með að gera. Þessu er því að svara, að í frv. er það einmitt tekið fram, að samþyktir þessar um forkaupsrjett nái aðeins til þeirra fasteigna, sem nauðsynlegt er fyrir bæjar- eða sveitarfjelögin að tryggja sjer forkaupsrjett á. Auk þess eru ákvæði í frv. um það, að atvrh. skuli staðfesta samþyktir þessar. Virðist það óneitanlega trygging fyrir því, að ekki verði farið út í öfgar með þennan forkaupsrjett.

Þá vitnaði hv. frsm. minni hl. í 63. gr. stjórnarskrárinnar og taldi, að samkvæmt henni væri einstökum hreppum og kaupstöðum trygður þessi rjettur. Þar er talað um helgi eignarrjettarins, og að enginn þurfi að láta af hendi eign sína, nema almenningsþörf krefji. Jeg er ekki viss um, að þetta ákvæði sje svo vítt, að undir það sje hægt að heimfæra það, sem í frv. felst. Jeg er ekki lögfræðingur, þess vegna vil jeg spyrja hv. frsm. minni hl., sem er lögfræðingur, hvort hann líti svo á, að undir þetta ákvæði 63. gr. stjskr. sje hægt að færa t. d. það, ef einhver hreppur vill eignast ákveðna jörð. Jeg vænti þess, að hv. frsm. (JK) vilji svara þessu.

Hvað snertir skriffinskuna og óhagræðið, sem hann var að tala um að mundi af þessu leiða, verð jeg að segja það, að mjer finst það ekki meira en ýmislegt annað, sem maður verður að beygja sig undir. Þannig er t. d. enginn frjáls að byggja svo mikið sem skúr hjer í Reykjavík, nema fá margfalt leyfi. Fyrst verður að fá leyfi byggingarnefndar og síðan að fara eftir krókaleiðum byggingarlaganna. Þetta finst mjer ófrelsi, engu síður en það, sem hv. frsm. minni hl. var að tala um.

Þá finn jeg ekki ástæðu til að hafa á móti því, þó að sá, sem brýtur í bág við þessi lög, býður ekki forkaupsrjettinn, verði látinn greiða hlutaðeigandi bæjar- eða sveitarfjelagi bætur fyrir tjón það, er það kann að hafa beðið af broti gegn ákvæðum laga þessara.