06.05.1927
Neðri deild: 68. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 778 í C-deild Alþingistíðinda. (2777)
64. mál, forkaupsréttur kaupstaða og kauptúna á hafnarmannvirkjum
Jón Ólafsson:
Jeg hafði alls eigi í fyrri ræðu minni minst á það, að ekkert nýtilegt gæti komið fram frá jafnaðarmönnum, og var því óþarft af hv. 2. þm. N.-M. að núa mjer því um nasir. Jeg er oft sammála jafnaðarmönnum í bæjarstjórn Reykjavíkur, en þótt svo sje, þá er í sjálfu sjer engin ástæða til þess að láta teyma sig hugsunarlaust inn á þeirra stefnubraut, sem sje þá, að þjóðin skuli eignast alt, sem einstakir menn hafa nú handa á milli.
Jeg hygg, að eignarrjettur einstaklingsins sje drýgsti og farsælasti aflvakinn til að knýja fram framfarir og framþróun innan þjóðfjelaganna, en alt, sem miðar að því að skerða áhuga einstaklingsins á því að eignast eitthvað, er þjóðunum til niðurdreps.
Hv. 4. þm. Reykv. (HjV) þarf svo sem ekki að hrósa jafnaðarmönnum í bæjarstjórn Reykjavíkur fyrir það, að þeir hafi ekki látið bæinn neyta forkaupsrjettar, hvar sem hann hefði getað, því að þeir hafa ekki verið einráðir í því efni. En alstaðar, og hvar sem þeir geta, reyna þeir að leggja einstaklingseignir undir bæjarfjelögin. Í þessu er ekkert ósamræmi hjá þeim; þetta er einn liðurinn í þeirra stefnuskrá, og þessu halda þeir áfram, þangað til kemur að skuldadögunum. Og eins og jeg sagði áðan, þá er það ólíkt, að láta þá leiða sig hugsunarlaust inn á sína braut, eða vera á móti hverju einu, sem þeir koma fram með. Þetta frv. er ekki einungis algerlega óþarft, heldur getur það einnig orðið stórhættulegt. Það er sagt, að hæstv. atvrh. (MG) eigi að staðfesta reglugerðir um þetta efni, ef bæjar- eða sveitarfjelög kynnu að vilja setja þær, og geti hann því neitað um samþykki. En mjer er það ekki vitanlegt, að hann sje kunnur að því að neita að staðfesta reglugerðir frá meiri hluta bæjarstjórna. Það er ekki að gera lítið úr bæjarstjórninni, þó sagt sje, að hægt sje að brúka þar undirróður. Hv. frsm. (ÁJ) getur farið í sinn eigin barm um það. Það er einnig mikið um undirróður hjer á hv. Alþingi, svo mikinn, að einstökum þm. er varla vært fyrir því. Þetta mál er að vísu — eins og það lítur út í fljótu bragði — hjegómamál, en það getur orðið að skaðræðismáli, af þeim ástæðum, sem jeg þegar hefi getið um.